Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 78
78 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
Ég þakka traustið og mér hlýnar um hjartarætur við að finna að þessum konum hugnast sú hug myndafræði sem við hjá Auði stöndum fyrir en samt:
Nei takk! Eins og umræðuhefðin er núna hef
ég ekki áhuga á að gerast stjórnmálamaður
á Íslandi,“ segir Halla Tómasdóttir, stjórnar
formaður Auðar Capital, sem hlaut flest
at kvæði í könnun Frjálsrar verslunar.
Halla er greinilega vel kynnt meðal kvenna
en er ekki á leið í pólitík eins og sagt er. „Ég
stefni ekki að pólitískum frama þótt ég hafi
brennandi áhuga á forystu og efnahags og
samfélagsmálum. Ég held satt að segja að
ég geri meira gagn í því sem ég er að gera
núna,“ segir Halla.
Niðurstaða könnunarinnar er raunar ekki
ólík því sem varð í fyrra en þó þannig að
þær Halla Tómasdóttir og Ragna Árnadóttir
hafa skipt um sæti. Þá var Ragna ráðherra
dóms og mannréttindamála í fyrsta sæt
inu og í sviðsljósinu. Núna er hún skrif
stof u stjóri Landsvirkjunar. Hún er þó ekki
gleymd og hlaut meira en fjórðung atkvæða
nú. Þriðja er svo sem fyrr Rannveig Rist,
forstjóri Alcan.
FjáRMálaFyRiRtæki kvenna
Halla stofnaði Auði Capital ásamt Kristínu
Pétursdóttur árið 2007 en var áður hjá Við
skiptaráði og þar áður hjá Háskólanum í
Reykjavík, raunar ein þeirra sem komu skól
anum á fót.
Halla er annars lærð í Bandaríkjunum
og lauk viðskiptafræðiprófi með áherslu á
mannauðsstjórnun frá Auburn University
í Alabama og MBAprófi í alþjóðlegum
við skiptum frá Thunderbird í Arizona. Að
loknu námi var hún við störf vestra, m.a. hjá
M&M/Mars og Pepsi Cola.
„Þrátt fyrir að svartsýni ríki núna trúi ég
því einlæglega að ný og betri nálgun verði
á endanum ofan á í okkar samfélagi og hvet
eindregið gott fólk, ekki síst konur, til að
gefa kost á sér til forystu á öllum sviðum
sam félagsins svo sá tími komi fyrr en
seinna,“ segir Halla.
HandvaldaR MálsMetandi konuR
Þessi könnun Frjálsrar verslunar, sem nú
er orðin árleg, er ekki skoðanakönnum
konur vElja konur í ríkisstjórn kvEnna fyrir frjálsa vErslun
TexTi: gíSli KriSTjánSSon
Hópur þrjátíu málsmetandi kvenna hefur komist að niðurstöðu. Flestar vilja að Halla Tóm as
dóttir, kennd við Auði Capital, verði forsætisráðherra. Þetta er niðurstaða könnunar sem
Frjáls verslun stendur árlega fyrir með það að markmiði að mynda ríkisstjórn kvenna.
Halla fékk flest atkvæði
„Þrátt fyrir að svartsýni ríki
núna trúi ég því einlæglega
að ný og betri nálgun verði
á endanum ofan á í okkar
samfélagi og hvet eindregið
gott fólk, ekki síst konur, til
að gefa kost á sér til forystu
á öllum sviðum samfélags
ins svo sá tími komi fyrr en
seinna,“ segir Halla.
Halla Tómasdóttir fékk flest atkvæði í kvennastjórnina en hugur hennar er ekki við pólitík.
Könnun Frjálsar verslunar á kvennastjórn: