Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 113
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 113
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Hjá Icelandair starfa um 1.200 manns. Rúmlega helm ingur þeirra er karlar, 51%, og tæplega helmingur konur, 49%.
Hvert er hlutfall kvenna á meðal stjórn
enda hjá Icelandair og hvert er hlutfall
þeirra í stjórnum?
Birna Bragadóttir, staðgengill forstöðumanns
þjónustudeildar Icelandair, sem jafn framt
stýrir vinnu jafnréttismála hjá fyrirtækinu:
„Þegar kemur að stjórnendastöðum innan
Icelandair eru 55 starfsmenn skilgreindir
sem stjórnendur. Þar er hlutfallið 32%
konur og 68% karlar. Fjöldi deildarstjóra af
kvenkyni er helmingur. Í stjórn Icelandair
Group sitja fimm stjórnarmenn, þar af tvær
konur.
hugarfar Stjórnenda
Skiptir öllu
Jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði er mann
réttindi. Til að ná því fram skiptir hugar far
stjórnenda öllu. Við stefnum að því að jafna
frekar stöðu kynjanna í áhrifa og stjórnun
arstöðum innan Icelandair. Hjá félaginu
starfar vel menntað og reynt fólk sem
hefur burði til að láta til sín taka á ýmsum
sviðum.“
Er ákveðin stefna innan fyrirtækisins í
jafnréttismálum?
„Hjá Icelandair er virk jafnréttisstefna sem
tekur til allra þátta í starfsemi fyrirtækisins
eins og kjaramála, ráðninga, stöðubreyt
inga, starfsþróunar, hlunninda, aðbúnaðar
og vinnutíma, samþættingar vinnu og
fjölskyldulífs ásamt fræðslu til stjórnenda
um jafnréttismál. Einnig er starfræktur
vinnuhópur starfsmanna sem fjallar um
jafnréttismál og eftirfylgni með þeim
markmiðum sem að er stefnt. Stór skref
hafa verið stigin í þá átt að gera jafnréttis
málum hátt undir höfði innan félagsins og
við höfum metnað til að gera enn betur í
framtíðinni. Jafnréttismál eru sanngirnis
mál. Vinnustaðir sem hafa þau í heiðri eru
eftirsóknarverðir, starfsánægja er meiri og
þeir hvetja fólk til dáða í störfum sínum.
Það er okkar trú að best sé að hafa starfs
mannahópinn sem fjölbreyttastan og leyfa
hæfileikum hvers og eins að njóta sín, óháð
kyni.“
Hvernig leggst sumarið í starfsmenn?
„Sumarið leggst mjög vel í starfsmenn Ice
landair enda spennandi tímar framundan. Í
vor hófum við áætlunarflug til fimm nýrra
áfangastaða. Sumarið er háannatími í starf
semi félagsins og það stefnir í að núverandi
sumar verði það stærsta í sögu þess. Til að
mæta aukinni áætlun í sumar hefur Iceland
air ráðið til sín alls 350 sumarstarfsmenn.“
ÍSlenSkt er Séreinkenni
icelandair
Eru einhverjar nýjungar á döfinni?
„Við erum stöðugt að fylgjast með nýjung
um og þróun þjónustumála í flugheimin
um. Við erum vel meðvituð um það harða
samkeppnisumhverfi sem við störfum
í og viljum veita viðskiptavinum okkar
bæði bestu þjónustu og tryggja endurtekin
viðskipti. Þjónustumælingar hafa sýnt
að farþegar okkar eru ánægðir með þá
þjónustu sem þeir fá hjá Icelandair og við
erum stolt af þeim árangri sem félagið
hefur náð. Til að mynda var Icelandair
val ið þjónustufyrirtæki ársins. Íslenskt er
sér kenni Icelandair. Viðskiptavinum eru
kynntar íslenskar hefðir um borð. Við erum
með íslenska tónlist, bjóðum upp á íslenskt
lambakjöt og fisk, komum íslenskri tungu á
framfæri á kaffibollum, servíettum, púðum,
teppum og hnakkastykkjum, svo dæmi séu
tekin. Þjálfun starfsfólks er lykilatriðið í
því að þjónustan sé sem best og við leggj
um mikið upp úr henni svo starfsmenn
okkar nái sem mestri færni í samskiptum
við viðskiptavini. Þannig teljum við okkur
tryggja sem besta þjónustu við viðskipta
vini okkar.“
jafnrétti er mannréttindi
„Hjá Icelandair er virk jafnréttisstefna sem tekur til allra þátta í starfsemi
fyrirtækisins eins og kjaramála, ráðninga, stöðubreytinga, starfsþróunar,
hlunninda, aðbúnaðar og vinnutíma, samþættingar vinnu og fjölskyldulífs
ásamt fræðslu til stjórnenda um jafnréttismál.“
Icelandair
Birna Bragadóttir, staðgengill forstöðumanns þjónustudeildar Icelandair eða
„Deputy Director In-flight Safety and Service“.