Frjáls verslun - 01.05.2011, Blaðsíða 141
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 141
þar sem Hanks leikur titilhlutverkið. Ekki
nóg með það, hann leikstýrir myndinni,
fram leiðir hana og skrifar handritið ásamt
Niu Vardalos sem skrifaði handritið og lék
í My Big Fat Greek Wedding, kvikmynd
sem Tom Hanks framleiddi, og leikur hún
einnig í Larry Crowne. Aðalkvenhlutverkið
er í höndum Juliu Roberts, en hún og Tom
Hanks léku saman í Charlie Wilson’s War
fyrir fáeinum árum, kvikmynd sem ekki
var upp á marga fiska. Vonandi tekst þeim
betur upp nú, enda bæði þrælvön að leika
í rómantískum kvikmyndum, Julia Roberts
varð fræg fyrir Pretty Woman og Tom Hanks
tókst ekki síður upp í Sleepless in Seattle.
Atvinnulaus í skóla
Eins og nafnið bendir til er Larry Crowne
aðalpersónan í samnefndri kvik mynd. Áður
en honum var sagt upp hjá stórversl an a
keðju hafði hann leitt þróunar starf versl
un arinnar og þar áður verið hermaður.
Skyndilega veit Crowne ekkert hvað hann á
við tímann að gera og í stað þess að mæla
göturnar og vorkenna sér sækir hann um
almennt nám í háskóla þar sem hann kemur
sér fljótlega vel fyrir og verður einn leiðtogi
nemenda í klíku þar sem uppistaðan er ungt
fólk sem veit í raun ekki hvað það vill með
náminu en hefur það markmið að koma sér
betur fyrir í lífinu en það hefur gert hingað til.
Crowne verður fljótt hrifinn af einum kenn
aranum, Mercedes Tainot (Julia Roberts),
sem hefur misst alla ástríðu fyrir kennara
starfinu sem og áhuga á eiginmanni sínum.
Larry Crowne er vanur að láta verkin tala
og er ekki lengi að ná til kennarans sem
fær áhuga á lífinu aftur. Sambandið er þó
langt í frá að vera einfalt og á margt eftir að
gerast áður en einhver botn fæst í það. Auk
Hanks og Roberts leika í myndinni Bryan
Cranston, Vilmer Valderama, Pam Grier,
Cedric The Entertainer og áðurnefnd Nia
Vardalos.
Tvær kvikmyndir framundan
Tom Hanks hefur leikið sama leikinn einu
sinni áður, það er að segja að leikstýra
kvik mynd, framleiða, skrifa handrit og
leika aðalhlutverkið, var það That Thing
You Do (1996) sem var óður til Bítlanna
og álíka hljómsveita sem spruttu fram á
sjötta áratugnum. Fjallar myndin um hljóm
sveit sem slær í gegn í Pennsylvaníu árið
1964 og lék Hanks umboðsmann hljóm
sveitarinnar. Sú mynd fékk góðar viðtökur
og hafa margir beðið eftir því að Hanks
myndi leikstýra annarri kvikmynd en hann
hefur ekki fundið tíma til að gera það fyrr
en nú.
Í farvatninu hjá Tom Hanks, auk sjónvarps
þáttaraðanna sem nefndar hafa verið, er
leikur í tveimur kvikmyndum, Extremely
Loud and Incredibly Close, sem breski
leikstjórinn Stephen Daldry (Billy Elliot, The
Reader) leikstýrir. Þar fer hann fyrir hópi
sérfræðinga sem leita geymsluhólfs sem
lykill, sem er í þeirra fórum, passar við, en
eigandi lykilsins fórst í hryðjuverkaárásinni
11. september 2001. Mótleikkona hans er
Sandra Bullock. Hin myndin er Cloud Atlas,
sem er í sex hlutum sem í fyrstu virðast
eiga lítt sameiginlegt, en stefna þó að sama
marki. Þá má fastlega gera ráð fyrir að
Tom Hanks bregði sér í þriðja sinn í gervi
Roberts Langdons þegar kemur að því að
kvik mynda nýjustu skáldsögu Dans Browns,
The Lost Symbol.
kvikmynDir
Listamaðurinn
Margar eftirminnilegar kvik
myndir voru sýndar á nýliðinni
kvik myndahátíð í Cannes og
var kvikmynd Terence Malicks,
The Tree of Life, vel að sigrinum
komin. Ein kvikmynd skar sig úr
fjöldanum, franska kvikmyndin
The Artist, sem ekki aðeins
er í svart/hvítu, heldur er hún
þög ul. Vakti myndin mikla at
hygli og fékk Jean Dujardin
verð laun sem besti leikarinn.
Leik stjóri The Artist er Michel
Hazanavicius sem sagði í viðtali
að hann hefði lengi gælt við
að gera þögla kvikmynd, bæði
vegna þess að hann væri mikill
aðdáandi slíkra kvikmynda
sem gerðar voru á fyrstu tugum
síð ustu aldar og einnig vegna
þeirr ar sérstöku tæknivinnu sem
þarf við gerð þögulla kvikmynda.
Þótt The Artist sé frönsk gerist
hún í Hollywood og segir frá
tveimur kvikmyndastjörnum,
hann sér frægðarsól sína falla
á meðan hún er rísandi stjarna.
Kvikmyndin er tekin upp í
Holly wood. Meðan á tök um
stóð spilaði Hazanavicius lög
úr gömlum klassískum kvik
myndum.
Skuldin
Það eru ekki margar þekktar
leikkonur sem komnar eru vel
yfir miðjan aldur sem geta valið
úr kvikmyndahlutverkum. Ein
slík er breska leikkonan Helen
Mirren, sem leikur í hverri gæða
myndinni á fætur annarri. Ein
af nýrri kvikmyndum hennar er
The Debt, þar sem hún leikur
fyrrverandi njósnara á vegum
Ísraels sem ásamt tveimur öðr
um fyrrverandi njósnurum er
fengin til starfa á ný vegna máls
sem þau leystu af hendi árið
1966 og voru heiðruð fyrir. Ekki
virðast öll kurl komin til grafar
og eru þau fengin til að fara
á fornar slóðir á ný. The Debt
gerist í nútímanum og einnig í
fortíðinni og þá leikur Jessica
Chastain hlutverk Mirren. Aðrir
leikarar eru Sam Worthington,
Tom Wilkinson og Ciarán Hinds.
Leikstjóri er John Madden
(Shake speare in Love, Proof)
og er The Debt endurgerð ísra
elskrar kvikmyndar sem gerð
var 2007.
Einn dagur
Danska leikstýran Lone Scherfig
er óðum að festa sig í sessi í
al þjóðlegri kvikmyndagerð og
það má hún þakka velgengni
An Education en sú mynd
sló eftirminnilega í gegn og
gerði Carey Mulligan fræga.
Var Scherfig tilnefnd til bresku
BAFTAverðlaunanna sem besti
leik stjóri. Nýjasta kvikmynd
Lone Scherfig nefnist One Day
og skartar Anne Hathaway og
Jim Sturgess í aðalhlutverkum.
Fjallar myndin um Emmu og
Dexter sem hittast fyrst 15. júlí
1989 og gerist myndin síðan
þennan tiltekna dag á næstu
tveimur áratugum og fáum við
innsýn í líf þeirra og hvernig
það hefur þróast. Upphafið að
vel gengni Lone Scherfig má
rekja til dönsku kvikmyndarinnar
Ítalska fyrir byrjendur sem hún
leikstýrði þótt ekki sé nafn henn
ar að finna á kreditlistanum, nema
sem handritshöfundur, þar sem
myndin var gerð með dog ma
að ferðinni sem Lars von Trier
kynnti fyrir heiminum á sín um
tíma.
Skólaklíkan sem Larry Crowne leiðir fer allra sinna ferða á vespum.