Frjáls verslun - 01.02.2011, Page 56
56 FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011
orka og iðNaður Á
heimssýningunni í Sjanghæ í Kína á
síðasta ári var þema íslenska skálans
Pure Engergy, Healthy Living, eða
Hrein orka, heilbrigt líf. Fjöl margir
komu og sann færðust um mikilvægi
hinnar hreinu orku á Íslandi. Íslenskur iðnaður
byggist að stórum hluta á hreinni orku. Íslensku
álverin þrjú nota t.d. hreina orku; endur nýjan lega
raforku. Fyrir vikið eru þau talin umhverfis væn
álver og losa ekki gróðurhúsalofttegundir út í
andrúms loftið.
Bent hefur verið á að hefði Fjarðaál ekki risið á
Reyðar firði, en þess í stað risið í kolaorkulandi,
hefði losun gróður húsa loft teg unda sem því hefði
fylgt verið nífalt meiri. Íslensk ur iðnaður notar
mikla orku og er um að ræða græna orku.
Fyrir vikið er íslenskur iðnaður hreinni og grænni
en í lönd um þar sem í iðnaði eru not aðir meng
andi orkugjafar.
Það mæðir mikið á íslenskum iðnaði við að koma
íslensku atvinnu lífi aftur í fyrra horf. Hlut ur iðnaðar
ins í landsframleiðslunni hefur verið um fjórðungur
á undanförnum árum en hefur minnkað eftir hrun
vegna hruns í byggingariðnaði.
Þá er iðnaðurinn, þ.e. almennur iðnaður og stór
iðjan, með um 56% af útflutningstekjum lands
manna. Þar er áliðnaðurinn með yfir 25% og nema
hreinar tekjur af álútflutningi um 120 millj örðum.
Árið 2010 voru fluttar út vörur fyrir 560 millj arða en
inn fyrir 442 millj arða. Afgangur af vöru skiptum var
því um 118 milljarðar á síð asta ári.
HreiN orka,
HreiNN iðNaður
Íslendingar eru orðnir þekktir fyrir sína hreinu orku.
Í erlend um tímaritum hefur verið fjall að um Ísland sem tákn grænn ar
orku. Græn orka er notað yfir umhvefis væna orku eins og vatnsorku,
jarðvarma, sólar- eða vindorku og hefur þann meginkost að
fela ekki í sér losun koltvísýrings og mengun.
„Þegar rætt er um græna orku er átt við
orku notkun sem ekki tengist kolefnislosun
eða sérstökum hættulegum geislavirkum
úrgangi eða annarri mengun. Það er stund
um talað um endurnýjanlega orku sem er
önnur skilgreining á grænni orku,“ segir
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri.
„Menn hefur hins vegar greint svolítið á
um það hvort til dæmis jarðhiti, sem er vist
væn orka eða græn orka, sé endur nýjan leg
orka sé horft mjög langt inn í fram tíð ina. Sá
orkuforði sem við nú teljum okkur eiga er
þó fullkomlega nægilegur til þess að halda
uppi eðlilegri þjóðfélagsgerð með eðlilegri
fólksfjölgun þegar horft er til næstu 200
ára,“ segir Guðni.
Hann bætir því við að á svo löngu tíma
bili verði miklar framfarir í tækni. Guðni
græn orka skapar ný störf
Mikill meirihluti allrar orku sem notuð er á Íslandi kemur frá endurnýjanleg-
um orkulindum landsins eða yfir 80 prósent þeirrar frumorku sem notuð
er. Hlutfall grænnar orku hér setur Ísland í algjöran sérflokk og getur til
framtíðar skapað mörg tækifæri í atvinnuuppbyggingu.
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri:
TexTi: inGibJörG b. sveinsdóTTir Mynd: Geir ólafsson
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri.