Frjáls verslun - 01.02.2011, Síða 63
FRJÁLS VERSLUN 1.tbl.2011 63
Sem dæmi um iðnað sem heldur sér síung
um nefnir Orri matvælaiðnaðinn. „Matvæla
geirinn er þroskuð grein sem alltaf er á
tánum. Staða okkar í þessum geira er ágæt.
Fall krónunnar hefur veitt matvælafram
leiðslu á Íslandi bætta samkeppnisstöðu
gegn innfluttum vörum auk þess sem vit
undarvakning hefur orðið hjá neytendum
gagnvart íslenskri framleiðslu. Það er meiri
þróun og nýsköpun í matvælaiðnaði en
margir halda og horfurnar þar eru góðar.“
Ryðja þarf hindrunum úr vegi
Málmiðnaðurinn á aftur á móti við vissa
örðugleika að glíma nú um stundir, að
því er Orri greinir frá. „Þar hefur mönn
um gengið nokkuð vel en óvissa í málum
sjávarútvegsins setur sífellt meira strik
í reikninginn. Á meðan ekki er komið
á hreint hvernig sjávarútvegurinn á að
vera eru málmsmiðjurnar og slipparnir í
hæga gangi. Þetta er manngerð hindrun
sem þarf að ryðja úr vegi svo að fyrirtækin
geti hugsað lengra en fram að næstu
mánaðamótum.
Við þjáumst ekki bara af heimatilbúinni
óvissu í atvinnumálum, heldur lýsa stjórn
völd skattkerfinu með frasanum „you
ain’t seen nothing yet“ eða nú síðast sem
„stríðsskattheimtu“.
Augljóslega festa fáir fé langt fram í tím
ann undir slíku tali, hvað þá þegar hótað
er þjóðnýtingu á löglega samninga við
erlenda fjárfesta.“
Þessi sjónarmið komu einnig fram í máli
ræðumanna á nýafstöðnu Iðnþingi þar sem
fjallað var um möguleikana til nýsköpun ar.
„Leiðin út úr kreppunni felst í því að skapa
aukin verðmæti. Til þess þarf að skerpa
vinnubrögðin í ríkisfjármálum, mennta
mál um, vinnumarkaðsmálum og peninga
málum,“ segir Orri.
Orka Og iðnaður
Við þjáumst ekki bara af heimatilbúinni óvissu í atvinnumálum,
heldur lýsa stjórnvöld skattkerfinu með frasanum „you ain’t seen
nothing yet“ og nú síðast sem „stríðsskattheimtu“.
Aðeins eru liðin tvö ár síðan sprotinn
MindGames varð til í Reykjavík. Stofnend ur
voru bandarískindverska taugavísinda
konan Deepa Lyengar, eiginmaður hennar,
Hannes Högni Vilhjálmsson, og nokkrir
vinir og félagar. Frjáls verslun sagði þá frá
félaginu. Þessi hópur er enn að og hefur
sent frá sér leikinn Tug of Mind – Hugtog.
Helsti galli við hugmyndina þá var að
tæknin var eiginlega ekki til. Þau í Mind
Games voru á undan sinni samtíð! Sjálf
hugarorkan hefur alltaf verið til og hún
er mælanleg og virkjanleg. Þetta heitir
EEG – ElectroEncephaloGraphy – á máli
lífeðlisfræðinnar. Það er raforkan sem gerir
taugaboð möguleg. Höfuðtól til að nema
orkuna hafa einnig verið til um skeið og
þróast ört og minnkað síðustu ár.
En það var verra með sjálf leiktækin, far
sím ana. Þeir voru fyrir tveimur árum of
frum stæðir til að stunda þessa hugarleiki af
nokkru viti. Samt varð til frumgerð að leik
fyrir farsíma hjá MindGames en markið
var sett hærra. Það átti að búa til leiki fyrir
næstu kynslóð farsíma, síma sem núna
eru kallaðir snjallsímar – það er iPhone og
slíkir og einnig iPad.
Biðu eftir Betri síma
„Við sáum fljótt að það borgaði sig ekki að
búa til flotta leiki fyrir venjulega farsíma,“
segir Deepa. „Við þurftum betri stýrikerfi
og betri skjái með betri upplausn til að þetta
gengi upp. Snjallsímarnir voru laus nin.“
Þessir snjallsímar – hvað þá lesbretti eins
og iPad – voru tæpast til fyrir tveimur ár
um og alls ekki orðnir að almennignseign
þá. En vinnan hjá MindGames hét áfram og
núna í lok síðasta árs kom fyrsti leikurinn
af þessari gerð fyrir iPhone á markað.
Tvö ár eru stuttur tími fyrir sprota að
vaxa úr grasi. Þannig séð hefur allt gengið
framar vonum hjá MindGames þótt starfs
fólkinu þyki seint ganga.
Vinnuáætlun MindGames er aðeins á
eftir tímanum en samt hefur þróunin verið
undra hröð. Deepa segir að tafir hafi helst
orðið vegna þess að stýrikerfi iPhone studdi
ekki þennan möguleika fyrr en á lið nu hausti.
MindGames
á undan sinni samtíð!
Fyrirtækið MindGames er dæmigert sprotafyrirtæki í hugbúnaðariðnaðinum
og fellur vel að umfjölluninni um orku og iðnað. Þetta er lítið iðnfyrirtæki sem
sett hefur hugarorkuleik á markað. Leikurinn er fyrir farsíma og hugarorkan er
virkjuð við spilamennskuna.
Fyrsti
hugarorkuleikurinn
fyrir iPhone á markað: TexTi: Gísli KrisTjánsson Mynd: Geir Ólafsson
Stofnendur MindGames voru bandarísk-indverska taugavísindakonan Deepa Lyengar, eiginmaður hennar,
Hannes Högni Vilhjálmsson, og nokkrir vinir og félagar.