Frjáls verslun - 01.04.2011, Blaðsíða 15
FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011 15
Það er kostur við snjallsíma að þeir eru til meira brúks en bara að tala í þá. Það er sagt að byltingin í NorðurAfríku og Arabíu hefði ekki gengið svona vel ef snjallsímar og önnur tækni í
fjarskiptum væri ekki fyrir hendi.
Það er hægt að koma myndum og myndböndum af fréttnæmum
atburðum, sem blaðamenn og ljósmyndarar verða ekki vitni að, beint
til Al Jazeera, CNN og BBC úr farsímum – nánast á því augnabliki
sem fréttin á sér stað.
Þessar farsímafréttamyndir og myndbönd horfum við á í sófanum
heima – í örygginu. Þeir snjallsímar sem bera af í myndgæðum eru
Samsung Galaxy II frá SuðurKóreu, með 8MP myndavél og linsu frá
þeim sjálfum; iPhone 4 frá Apple, með 5MP skynjara frá hinu banda
ríska OmniVision og linsu frá taívanska framleiðandanum Largan
Percision, og Nokia N8 frá Finnlandi, sem er með öflugustu 12 MP
myndavélina sem völ er á í farsímum. Skynjarinn er frá Sony og lins
an frá hinum þýska Carl Zeiss, sem þekktastur er fyrir hágæðalinsur
sínar fyrir Hasselbladmyndavélar.
Samsung og Nokiasímarnir taka síðan upp myndbönd í HD, alveg
ótrúlega skýr. Allir símarnir setja gpshnit á myndirnar, þannig að
maður veit alltaf hvar myndin eða myndbandið er tekið – og hvenær.
Það er stundum sagt að ein mynd segi meira en þúsund orð. Nú
getur maður bara hætt að tala og tekið myndir í staðinn. Það sparar
skref í símkerfinu.
Páll Stefánsson, ljósmyndari:
Talandi um myndavélar
Græjur
þau hafa orðið
Hinn fullkomni forstjóri hefur alltaf síðasta orðið. Hann veit best. Hann ræður og
tekur aðeins tillit til annarra ef það
hentar honum. Þetta gildir sama
hvort stjórinn er karl eða kona.
Merkilega oft er það svo að æðsti
stjórnandi í fyrirtæki eða stofnun
er einráður og talinn tillitslaus af
undirmönnum sínum.
Slíkir stjórar biðja ef til vill um
tillögur frá undirmönnunum en
þegar á reynir hlusta þeir aðeins
á sín eigin ráð. Þeir geta líka
fundið upp á að eigna sér allan
heiður af góðum hugmyndum
hinna lægra settu. Þetta er
hvimleitt.
Ein skýring á þessu kann að
vera að þeir sem komnir eru á
toppinn hafa gjarnan troðið á
einhverjum á leiðinni upp. Þetta
er sú manngerð sem nær lengst.
Önnur skýringin er að það
er einmanalegt á toppnum og
stjóranum finnst hann ekki eiga
jafningja að deila áformum sínum
og hugmyndum með. Stjórinn
verður einráður í einsemd sinni.
Þriðja skýringin er að stjórinn
óttist í raun undirmenn sína; óttist
að þeir séu snjallari en hann og
velti honum brátt úr sessi. Hann
reyni því að troða á þeim sem
ógna honum.
En það eru ýmis ráð til að takast
á við hinn fullkomna forstjóra.
1. Líttu á þinn eigin feril í stærra
samhengi. Líki þér ekki við hinn
ráðríka og fullkomna forstjóra
er ekkert að því að hugsa sér til
hreyfings. Það er engin skylda
að vinna fyrir manninn. Hve lengi
ætlar þú að vera í fyrirtækinu og
hvaða möguleika áttu á starfi
ann ars staðar? Gleymdu því ekki
að líta í kringum þig um leið og
þú heyrð hina daglegu baráttu
við stjórann fullkomna.
2. Ekki koma hinum fullkoma
á óvart. Hinn fullkomni forstjóri
er lítið gefinn fyrir mikil og óvænt
tíðindi. Hann vill vera sá sem
ræður för. Upplýstu því yfirmann
þinn stöðugt um stöðu mála hjá
þér og hvernig miðar í vinnunni.
Það versta sem hinn fullkomni
veit er að missa andlitið. Hann
verður því helst að vita það sama
og þú veist.
3. Ekki vera jámaður. Svo kann
að virðast sem stjórinn hlusti bara
á þá sem samsinna honum í öllu;
að hann kunni best við sig í hópi
jámanna. Sjaldnast er þetta á
rökum reist. Hinn fullkomni hefur
ekkert á móti andstöðu. Komdu
því óhikað með mótrök en þau
verða að vera skýr. Því er rétt að
beita alltaf fyrir sig staðreyndum
og tölum. Hinn fullkomni hlustar
frekar á tölur en almenn rök.
4. Léttu byrðum af stjóranum.
Oft er sagt að æðsti stjórnandi
eigi að ráða við öll verk sem
undir menn hans hafa á sinni
könnu. Þetta er þó ekki rétt og á
ekki frekar við um hinn fullkomna
for stjóra en aðra. Oftar en ekki
vefjast hin mannlegu vandamál á
vinnustað fyrir hinum fullkomna.
Hann er tuddi þegar kemur
að mannlegum samskiptum.
Taktu að þér að greiða úr slíkum
málum áður en þau ná inn á
borð forstjórans. Hann verður því
feginn að þurfa ekki að fást við
viðkvæm mál sjálfur.
Stjórnunarmoli TexTi: Gísli krisTJánsson
Fullkomni
forstjórinn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
5
52
84
9
06
/1
1 HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
TVÍBURINN
ÞÚ ERT AÐ FARA TIL ÚTLANDA OG ÞAÐ ERU 150 STUNDIR
AF AFÞREYINGU UM BORÐ Í FLUGVÉL ICELANDAIR.
NJÓTTU ÞESS.
Mynd tekin á Nokia N8 snjallsíma af öskufallinu í gosinu í Grímsvötnum í maí 2011.