Frjáls verslun - 01.04.2011, Side 38
38 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
leiðtoGafræði
Nokkur af megin verkefn um leiðtoga eru að taka ákvarðanir, móta sýn og móta og leiða stefnu. Það er mikil vægt að þeir nýti
sér skapandi nálgun í starfi og gæti þess
að hvetja til og rækta skapandi hugsun
og nálgun með einhvern tilgang á meðal
starfsmanna.
Mörg fyrirtæki gefa sig út fyrir að vera
skapandi, og viðhafa þar með það sem
við getum kallað skapandi forystu. Slík
fyrirtæki hafa innan sinnan raða skapandi
leiðtoga, jafnvel fleiri en einn, sem og skap
andi starfsfólk. Skapandi nálgun á að skila
sér í betri lausnum á vandamálum sem og
betri ákvörðunum en að finna nýjar og betri
leiðir til að ná markmiðum er oft lykilatriði
til að ná sem mestum árangri.
Til að þetta takmark náist þarf skapandi
nálgunin að skila árangri en slík „sköpun“
á sér stað þegar um er að ræða sköpun sem
hefur ákveðinn tilgang.
Þetta þýðir að þegar leiðtogi beitir sköp
unar hæfni er hann eða hún ekki eingöngu
skapandi til að vera skapandi heldur hefur
sköpunin einhvern tilgang. Dæmi um þetta
væri leiðtogi sem innleiðir nýja hugsun í
meðhöndlun viðskiptavina og það þjón
ar því markmiði að gera viðskiptavini
ánægðari.
Ef sami leiðtogi innleiðir síðar nýstárlega
meðhöndlun á viðskiptavinum sem eng
inn hugsun liggur á bak við önnur en sú að
vera frumleg og afleiðingarnar eru alveg
á huldu eða hvað þetta á að gera fyrir við
skiptavini, þá væri það dæmi um sköp un
án tilgangs. Mikilvægt er að hafa í huga að
skapandi leiðtogamennska eða skapandi
forysta getur verið samvinna fjölda leiðtoga
á vinnustað og/eða samvinna leiðtoga og
starfsfólks.
Sköpun með tilgang í huga
Það er sumsé ekki nóg að vera einungis
„skapandi“. Í þessu samhengi er m.a. gagn
legt að horfa til þriggja þátta líkansins (e.
The three components of creativity) sem
segir okkur að til að auka líkur á árang
urs ríkri sköpun þurfi þrír þættir að vera
fyrir hendi: 1. Skapandi hugsun. Hér er um
að ræða persónuleika sem er skapandi og
getur m.a. séð hluti í nýju ljósi. Þetta er sá
þáttur sem margir halda að sé nægjanlegur
til að tryggja sköpun. 2. Sérfræðiþekking.
Hér er um það að ræða að líkur á gagnlegri
sköpun aukast þegar viðkomandi hefur
ákveðna þekkingu, getu, færni o.fl. á við
eig andi sviði. 3. Innri hvati. Hér er um það
að ræða að viðkomandi hefur gríðarlega
löngun til að vinna að einhverju sem hon
um/henni finnst áhugavert, spennandi o.fl.
Samkvæmt þessu líkani er því t.d. ekki
nóg að hafa einstakling eða einstaklinga
sem búa eingöngu yfir „skapandi hugs
un“. Þeir verða líka að búa yfir sérfræði
þekkingu og hafa brennandi áhuga á
við fangsefninu. Dæmi um einstakling
sem býr yfir öllum þremur þáttum er
hinn dæmigerði vísindamaður sem býr
yfir skapandi hugsun, hefur gríðarlega
þekkingu á sínum fræðum og brennur fyrir
að ná hámarksárangri.
„Doc“ eða dr. Emmett Brown úr „Back
to the Future“myndunum, leikinn af
Christo pher Lloyd, er gott dæmi um
slíkan vísindamann. Ef við myndum yfir
færa þetta líkan yfir á hóp eða teymi þá
myndum við segja að til að iðka skapandi
nálgun þurfi samsetning teymisins að vera
með þeim hætti að í því séu einstaklingar
sem tryggja að allir fyrrnefndir þrír þættir
séu til staðar.
Í tengslum við leiðtogafræði getum við
sagt að nokkur af meginverkefnum leið
toga séu að: Taka ákvarðanir, móta sýn og
móta og leiða stefnu. Auðvitað eru verk
efnin fleiri en skoðum þessi verkefni út frá
sköpun með tilgang í huga.
Taka ákvarðanir
Það að taka ákvarðanir snýst um að finna
lausnir við vandamálum og til að finna
bestu lausnirnar er gagnlegt að beita
skap andi nálgun. Ein aðalástæðan er sú
að það hjálpar til við að skilja og greina
vandamálið sem og koma auga á ýmsar
mögulegar nýjar leiðir til að leysa það.
Sköpun með tilgang í huga við ákvarð ana
töku kann því að leiða til þess að betri og
gagnlegri ákvarðanir verði teknar.
Samkvæmt Robert
Greenleaf, höfundi
þjónandi forystu,
greina leiðtogar
fortíð og nútíð og
nota svo innsæi
sitt til að brúa bilið
á milli nútíðar og
framtíðar.
TexTi: siGurður raGnarsson Myndir: Geir ólafsson
Hvað eru
skapandi leiðtogar að pæla?
Höfundur greinar, Sigurður Ragnarsson, er sjálfstætt
starfandi háskóla kennari og stundar doktorsnám í
leiðtogafræðum.