Frjáls verslun - 01.04.2011, Side 42
42 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
bækur
T
ilvitnunin hér að of an
er ein af fyrstu setn
ingunum í bókinni
Five Dysfunctions of
a Team eftir Patrick
Lencioni.Þóttbókinhafikomið
út fyrir meira en áratug er hún
enneinsúallrabestaíflokki
bóka um teymi og hvernig auka
má árangur þeirra. Bókin er fyrir
löngu komin í hóp klassískra
stjórn unar og leiðtogabók
mennta og ætti að vera í bóka
hillu allra stjórnenda.
Styrkur dæmisögunnar
Fráörófialdahafadæmisögur
verið notaðar til að uppfræða
og kenna. Þær eru vel til þess
fallnar að fá lesandann til að
samsama sig efninu, tengja
það við sinn veruleika og sjá
leiðirtilaðyfirfæraþekkinguna
yfirásinnraunveruleika.Um
leið og við lesum eitthvað sem
við tengjum við eykst áhuginn,
varðveisla þekkingarinnar
verður meiri og þar af leiðandi
áhrif bók arinnar. Þetta er ein
mitt styrkur bókarinnar Five
Dysfuncti ons of a Team þar sem
höfundur segir sögu stjórnanda
semtekurviðforstjórastarfií
fyrirtæki sem stendur keppi naut
unum að baki. Nýi stjórn andinn
fær það hlut verk að snúa við
skút unni. Sagt er frá hvernig
tekist er á við þetta krefjandi
verk efni, á sumpart óhefð bund
inn hátt, og sagan rekur hvernig
hug myndafræðin virkar í fram
kvæmd.
Hugmyndafræðin
Stysti hluti bókarinnar fjallar um
hugmyndafræðina á fræðilegan
hátt. Eftir lestur sögunnar er
lesandinn vel meðvitaður um
hvernig ná má fram auknum
árangri hóps með því að vinna
meðfimmþættisemstuðlaað
árangursleysi hópa. Fræðilega
umfjöllunin rammar inn dæm i
sög una og lesandinn getur vísað
í þau raunverulegu dæmi sem
fram hafa komið í huganum
um leið og hann les fræðilega
kaflann.Höfundurlæturþóekki
staðar numið þar heldur dregur
einnigsamanþæræfingarog
verkefni sem nýi forstjórinn
lætur fólkið sitt fara í gegnum
í sögunni til að auka árangur
hópsins. Lesendur bókarinnar fá
því fjölmörg góð verkfæri í hend
urnar til að auka árangur sinna
hópa. Hægt er að nýta þau öll,
eða einungis hluta þeirra, allt
eftirþvíhverþörfineríhverjum
hópi fyrir sig. Í bókinni er einnig
matsblað til að meta stöðu hóp
sins/teymisins sem eykur enn á
notagildi hennar.
Hlutverk leiðtogans
Í síðasta hluta bókarinnar, þar
sem hugmyndafræðin er dregin
saman, er einnig á mjög skýran
og hnitmiðaðan hátt fjallað um
hlutverk leiðtogans þegar unnið
ermeðhvernþeirrafimmþátta
sem stuðla að árangursleysi
hópa. Hvað á leiðtoginn t.d. að
gera þegar ekki ríkir traust innan
hópsins? Hvert er hans hlutverk
þegar óttinn við ágreining heldur
aftur af árangri hópsins o.s.frv.
Þessirstuttukaflaraukaenn
frekar á styrk bókarinnar og gera
það að verkum að lesandinn fær
ennfleiriverkfæriíverkfæra
kistuna við lestur hennar. Segja
má að lestri loknum að lesand
innhafiíhöndunumtroðfulla
kistu af verkfærum sem duga til
að auka árangur þeirra teyma
sem hann stýrir/leiðir.
Hægara sagt en gert
Það er eitt að fá í hendurnar
verkfærakistu fulla af verkfærum
en annað að nota þau. Það er
mesta áskorunin og því er gott
að hafa lesið dæmisögu um
stjórnanda sem sigraðist á þeim
vanda áður en farið er að raða
verkfærunum í kistuna. Líkurnar
á að þau falli í gleymsku eru því
minni en ella. Engu að síður er
það ávallt í höndum okkar sjálfra
að nýta þá þekkingu sem við
öflumokkurtilaukinsárangurs.
Það er ljóst að ef stjórnendur
nýta þær hugmyndir sem fram
koma í þessari frábæru bók
eiga þeir auðveldara með að
leiða sín teymi áfram til aukins
árangurs.
Hvers vegna ná sumir hópar ekki árangri?
„Ef hægt væri að fá alla starfsmenn fyrirtækis til að róa í sömu átt mætti ná yfirburðum á hvaða sviði sem
er, á hvaða markaði sem er, gegn hvaða samkeppni sem er, hvenær sem er.“ – Óþekktur stjórnandi.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar
um ive dysfunctions of a team eftir
Patrick lencioni.
Í bókinni er á mjög
hnitmiðaðan hátt
fjallað um hlutverk
leiðtogans þegar
unnið er með hvern
þeirra fimm þátta
sem stuðla að árang
ursleysi hópa.
Eða með öðrum og jákvæðari orðum:
Liðsmenn sterkra hópa treysta hver öðrum, þeir taka óhikað þátt í ágreiningi
um hugmyndir, sem stuðlar að skuldbindingu gagnvart ákvörðunum og
aðgerðaáætlunum. Þeir gera hver annan ábyrgan gagnvart því að standa við
áætlanir og setja markið á að ná fram sameiginlegri niðurstöðu frekar en að
einblína á eigin árangur.
fImm þættIR Sem Stuðla að
áRanGuRSleySI Hópa
Einblínt á ranga niðurstöðu.
Komist hjá ábyrgðarskyldu.
Skortur á skuldbindingu gagnvart verkefnum.
Ótti við ágreining.
Skortur á trausti milli meðlima hópsins.
EinKEnni hÓpA Á hVErju Stigi fyrir Sig
Hópar sem óttast ágreining:
halda leiðinlega fundi.
Skapa umhverfi þar sem baktjaldamakk
og persónulegar árásir líðast.
Sneiða hjá umdeildum málum sem gætu
haft úrslitaáhrif á árangur hópsins.
ná ekki fram skoðunum og
sjónarhornum allra liðsmanna.
Sóa tíma og orku í að setja sig í „réttar“
stellingar til að komast hjá því að taka
áhættu.
Hópar sem takast á við
ágreining:
halda skemmtilega og líflega fundi.
Draga fram og fullnýta hugmyndir allra
liðsmanna.
Leysa raunveruleg vandamál fljótt og
örugglega.
forðast baktjaldamakk og „pólitík“.
Leggja úrslitaþætti á borðið
til umræðu.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
5
2
8
4
0
6
/2
0
1
1
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
I Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
I Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
I Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair.
I Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
ECONOMY COMFORT
Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða,
rafmagnsinnstunga fyrir tölvu.