Frjáls verslun - 01.04.2011, Síða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011
ominique StraussKahn
stend ur eftir nakinn í tvenn
um skilningi. Áð ur hafði
fólk mynd af valda mikl um
en mann legum náunga.
Núna stendur hann nakinn í
sturtu dyrunum, berrassaður
frammi fyrir dauðskelkaðri
hótel þernu og ræður ekki við sig. Þarna
stendur líka nakin ímynd gamaldags
karlrembu. Valdamiklir menn hafa alltaf
hlaupið á eftir hótelþernum með buxurnar
á hælunum. Áður þótti það jafnvel lofsvert
að ráða illa við kynhvötina – en ekki lengur.
Núna kostar það bæði æru og völd.
Að vísu er það ósannað mál að Strauss
Kahn hafi ætlað að neyða þernuna til sam
ræðis við sig. Hugsanlega var hún ráðin til
að tæla hann. Það segir hann í það minnsta.
Þar stendur orð á móti orði þótt þernan
hafi sterkari vitni með sér en StraussKahn.
Lögreglan mun og hafa fundið lífsýni sem
styðja mál þernunnar.
samúð í raunum
Samt er reglan að sérhver er talinn saklaus
þar til annað sannast. Meðferð bandarískra
yfirvalda á StraussKahn er meira í ætt við
aftöku án dóms og laga en réttláta rann
sókn. Maðurinn er búinn að vera, hvað svo
sem sannast að lokum.
Fyrir vikið nýtur StraussKahn nokkurrar
samúðar alveg óháð því sem hugsanlega
gerð ist á hótelinu. Er þetta ekki fulllangt
gengið hjá Kananum? spyrja í það minnsta
Evrópubúar. Og meirihluti Frakka ku trúa
sögunni eins og StraussKahn segir hana.
Það var víst landi StraussKahn, Napó
le on Bonaparte, sem sagði eftir sneypuför
í átt að Moskvu að skammur vegur væri
milli hins háleita og háðuglega. Þetta
hef ur sannast á StraussKahn. Hann var
orðinn að eins konar frelsara fátækra þjóða;
maðurinn sem léði hinum illa þokkaða
gjaldeyrissjóði mannlegt andlit.
góður náungi
Það var hætt að tala um AGS sem hand
rukkara ríkra þjóða. Það geta sjóð urinn og
ríkar þjóðir þakkað StraussKahn. En núna
er þessi mannlega mynd orðin að háðung
og ljóst að héðan í frá stendur barátta hans
um að hreinsa mannorð sitt en ekki brjótast
til meiri valda.
Hann var meira en líklegt forsetaefni í
Frakklandi á næsta ári. Skoðanakannanir
sýndu að hann hafði forskot á Nicolas
Sarkozy forseta hvort sem það hefði enst
fram á kjördag eða ekki.
StraussKahn naut þess að geta baðað
sig í ljósi alþjóðlegra frétta. Hann var orð
inn alþjóðlegur leiðtogi og þótti við hæfi
að skreyta ferilskrána með forsetatitli.
Draumurinn var að koma heim til Frakk
lands og taka við stjórn og fara svo á
eftirlaun. En þessi draumur rætist ekki.
af góðu fólki kominn
StraussKahn er 62 ára, fæddist í París 25.
apríl árið 1949. Hann er af efna og mennta
fólki kominn; faðirinn lögmaður og móð irin
blaðamaður. Í báðum ættum eru gyðingar
frá Alsace og fjölskyldan á einnig ættir
að rekja til fyrrverandi nýlendna Frakka
í Afríku. Æskuárum sínum eyddi hann í
Agadír í Marokkó. Fjölskyldan flutti þangað
þegar piltur var tveggja ára árið 1951.
Dominique litli var orðinn ellefu ára þegar
fjölskyldan flutti til Mónakó árið 1960 í kjölfar
jarðskjálftanna miklu í Marokkó. Hvað
menntun varðar fetaði hann í fótspor Gilberts
föður síns. Hann lagði stund á lög og einnig
hagfræði og er með próf í báðum greinum –
varð doktor í hag fræði árið 1977 í París.
Ferill hans er alls ekki beinn og breiður.
StraussKahn hefur átt í ýmsu basli við
að koma sér áfram. Upphaflega var hann
háskólakennari en einnig embættismaður
og sérfræðingur í þjónustu stjórnarstofnana
í París. Hann var einnig um tíma lobbíisti
fyrir franska auðmenn í Brussel en samt
alltaf tengdur frönskum róttæklingum.
Hann var í hópi kommúnista á námsár un
um um og fyrir 1970 en er nú flokkaður
með hægrikrötum í flokki franskra sósí al
de mókrata.
á refilstigum stjórnmálanna
Hann varð ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu
neytinu árið 1982. Þaðan fór hann á þing
árið 1986 og varð ráðherra iðnaðar og
utanríkisviðskipta árin 19911993. Þá féll
hann af þingi og datt um tíma út úr lands
pólitík en varð þess í stað bæjarstjóri í ein
um nágrannabæja Parísar auk þess að reka
eigið ráðgjafarfyrirtæki.
Ráðgjafarfyrirtækið hét einfaldlega DSK
– það eru upphafsstafirnir í nafni hans og
meðal Frakka er hann þekktur sem DSK.
Á þessum útlegðarárum frá
landspólitíkinni kynntist hann sjónvarps
frétta konunni Anne Sinclair. Þau gengu
í hjónaband árið 1995. Anne er þriðja
eiginkona hans og henni er ekki öng vits
gjarnt. Anne styður mann sinn og hefur
stutt þrátt fyrir að karl hafi orðið vís að
framhjáhaldi og árum saman verið orð
lagð ur kvennabósi. Hún var fræg sem
þáttastjórnandi en hætti árið 1997 þegar
StraussKahn – eða DSK – var skipaður
ráðherra yfir fjármálum, efnahagsmálum
og iðnaði í ríkisstjórn Lionel Jospin. Þar
með varð hann einn valdamesti maður
landsins og lykilmaður í ríkisstjórn
Frakklands.
Fjandvinur Evu joly
En þetta varð ekki langur valdaferill. Eva
Fallið er HÁtt
Einn valdamesti maður heims, vinur skuldugra þjóða og von í heimskreppu,
kássast upp á hótelþernu og veröldin hrynur. Kynhvöt Dominique StraussKahn
hefur meira að segja skyggt á Osama bin Laden dauðan í fréttum síðustu vikna.
st
ra
us
s-k
ah
n
TexTi: Gísli krisTJánsson
Dominique Strauss-Kahn, fráfarandi forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.