Frjáls verslun - 01.04.2011, Page 57
FRJÁLS VERSLUN 4.tbl.2011 57
Frjálst framsal drifkrafturinn í kvótkerfinu
kvótakerfið – bitbein þjóðarinnar
Sjávarklasinn á Íslandi velti yfir 300 millj örðum króna á síðasta ári. Þar af námu verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða um 220 milljörð um króna og jókst um
10% á milli ára í verðmætum en dróst saman
að magni um 5,5%.
Mörg fyrirtæki eiga viðskipti við sjávarút
veginn. Iðnaður á borð við málmsmíði á
hvað mest undir viðskiptum við sjávarút
veginn, eða um 51%. Umboðsverslun á 27%
sinnar veltu undir sjávarútvegi, orku fyrir
tæki um 15% og samgöngu og flutn inga
starfsemi 510%.
Sjávarklasinn er samstarfsverkefni margra
fyrirtækja í haftengdri starfsemi. Mark
miðið með starfinu er að bæta samstarf,
auka verðmæti og efla skilning á mikilvægi
þess starfs sem fram fer innan klasans.
Verkefnið er vistað hjá Viðskiptafræðistofn
un Háskóla Íslands.
Vonir standa til að verkefnið Sjávarklas inn
muni bæta þarna úr og veita meiri yfirsýn
yfir umfang haftengdrar starfsemi og gefa
vísbendingar um hvar megi efla sam starf,
ekki síst milli nýrra og eldri greina, og finna
vaxtarbrodda sem hlúa má að.
Allur sjávarklasinn og starfsmenn innan
hans eru rúmlega tólf þúsund. Óbein eða
afleidd störf sem tengjast honum eru hins
vegar átján þúsund og því eru samtals
þrjátíu þúsund störf sem tengjast beint og
óbeint íslenska sjávarklasanum.
3X Technology
Eitt þeirra fyrirtækja sem tekið hafa þátt í
verkefninu Sjávarklasanum er 3X Technol
ogy, en það býður upp á úrval af lausnum
fyrir matvælaiðnað, bæði stöðluðum og
sérhæfðum. Hjá 3X vinnur hópur tækni
manna, hönnuða og ráðgjafa með mikla
reynslu við að innleiða og sérsníða lausnir
fyrir matvælavinnslu.
„Það kom mér á óvart hversu mörg félög
eru starfandi innan íslenska sjávarklasans
og kortlagningin er þegar farin að skila
sér,“ segir Jóhann Jónasson, framkvæmda
stjóri 3X Tecnology. „Ég vissi ekki um allan
þennan fjölda fyrir tækja í líftækniiðnaði
svo dæmi sé tekið. Það verður afar spenn
andi að fylgjast með þeim á næstu árum.
Það er ekki einungis verið að kortleggja
hvaða félög starfa á þessari torfu heldur
er einnig verið að leggja ákveðinn grunn
að því á hvern hátt þau geta unnið saman.
Aukin vitund um það sem er að gerast
innan greinarinnar, auk þess sem með
auk inni samvinnu mun tengslanet þessara
fyrirtækja margfaldast, gefur bæði sprota
félögum og þeim sem eru lengra komin
tækifæri til að nálgast nýja viðskiptavini
hér heima og erlendis á mun fljótvirkari og
árangursríkari hátt en hingað til. Afrakst
ur þessa verkefnis verður í formi aukins
verðmætis íslensks sjávarfangs, bættrar
sam keppnishæfni íslensks sjávarútvegs og
einnig aukins útflutnings á þeirri þekkingu
sem verður til með samstarfinu innan
sjávar klasans. Við eigum að marka okkur
þá stefnu að tvöfalda útflutningsverðmæti
íslenska sjávarklasans á næstu tíu árum.“
Jóhann segir að fyrirtækið 3X hafi verið
stofnað árið 1994 á Ísafirði, undir nafninu
3XStál, og í upphafi byggðist starfsemin
á hönnun og framleiðslu á búnaði úr
ryð fríu stáli og þjónustu við sjávarútvegs
fyrirtækin á Ísafirði og nágrenni. Síðar
opnaði 3X söluskrifstofu í Kanada vegna
mikilla verkefna og frá árinu 2002 voru
meginverkefni fyrirtækisins tengd inn
leiðingu á heildarlausnum í móttöku og
karameðhöndlun fyrir rækju og bolfisk.
Árið 2006 hlaut 3X Útflutningsverðlaun for
seta Íslands fyrir sölu og markaðssetningu
á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum
fyrir matvælaiðnaðinn. Árið 2007 var nafni
fyrirtækisins breytt í 3X Technology, með
aukinni áherslu á erlenda markaði.
sjávarklasinn á íslandiKortlagning heillar atvinnugreinar:
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
Ríflega sjö hundruð fyrirtæki starfa í hinum svokallaða sjá var
klasa á Íslandi og skapar hann beint og óbeint um 30 þús und
störf og rekja má tæplega fimmtung landsframleiðsl unnar til
umsvifa í sjávarútveginum, eða sem nemur ríflega 300 millj
örð um króna á ári hverju.
Jóhann Jóhannsson, framkvæmdastjóri 3X Tecnology.