Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 29

Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 29
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 29 Sigrún Ragna tók við starfi forstjóra VÍS um síðustu mán aðamót en áður starf aði hún sem framkvæmda stjóri fjár­ málasviðs Íslands banka. Því starfi hafði hún gegnt frá því í október 2008, þegar bank inn var stofn­ aður. Sigrún Ragna hefur víð tæka stjórnunar reynslu en hún var jafn framt einn eig enda og stjórnar form aður Deloitte hf. þar sem hún starfaði um langt skeið. Að taka við forstjóra stöð - unni í VÍS eru talsverð um­ skipti fyrir Sigrúnu Rögnu. VÍS er stærsta vátrygginga­ félag landsins með ríflega 36% markaðshlutdeild og eignir upp á 35 milljarða og rúmlega 11 milljarða króna í eigið fé. „Ég tek við mjög góðu búi frá forverum mínum, því að VÍS hefur um ára - tuga skeið verið og er mjög traust og stöndugt félag. Það eru allar forsendur fyrir hendi til að treysta enn frekar stöðu VÍS sem leiðandi vátryggingafélags á Íslandi.“ Aðspurð segir Sigrún Ragna að sér lítist mjög vel á það sem hún hafi séð eftir að hún kom til starfa. „Hjá VÍS er frábært starfsfólk með mikla reynslu og þekk ingu á sínu sviði. Sam heldni þess er mikil og starfsánægja eins og hún gerist best, samkvæmt öllum mælingum. Það segir sína sögu að VR valdi VÍS fyrirmyndar fyrirtæki ársins 2011 og á árinu tilnefndi Creditinfo VÍS eitt af fram úrskarandi fyrirtækjum 2010. Í þessari tilnefningu komu einungis til greina þau fyrirtæki sem höfðu staðist styrkleikamat Creditinfo og uppfylltu ströng skilyrði sem lögð voru til grundvallar við grein inguna. VÍS er á meðal 1% íslenskra fyrir ­ tækja sem standast þær kröfur. Allt eru þetta vís­ bendingar um mjög sterka innviði, sem eru grunn ur ­ inn að góðu fyrirtæki til að veita viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu,“ segir Sigrún Ragna. VÍS á sér mikla sögu og rætur þess liggja víða um landið. Skrifstofur félagsins eru á 42 stöðum víðsvegar um landið. „Við leggjum mikla áherslu á nærþjón- ust una, eða þjónustuna í heimabyggð, en umsvif félagsins eru hvað mest á landsbyggðinni,“ segir Sigrún Ragna. Liðsheildin nær árangri En hvernig forstjóri er Sigrún Ragna? „Ég vil láta verkin tala. Ég á gott með að vinna með fólki og held jafnframt að fólk eigi gott með að vinna með mér. Mér er að minnsta kosti um hugað um að svo sé. Ég legg mikla áherslu á gleðina, þegar vinnan er ann ars vegar og að það sé gaman að fara í vinnuna. Ég var heppin að vera á slíkum vinnu stað þegar ég var hjá Íslandsbanka. Þar var ótrúlegt hve góður liðsandi gat gert vinnuna skemmti­ lega, þó svo að úrlausnarefn­ in væru stór, viðkvæm og flókin,“ segir Sigrún Ragna. „Forstjóri verður að hafa með sér öflugt stjórnenda- teymi, það er veigamikill þáttur. Mitt markmið er að dreifa ábyrgð og vera með sterkt teymi með mér. Mér finnst fátt skemmtilegra en að vinna með snjöllu fólki og ekki verra að það sé meiri sérfræðingar en ég, bara betra. Forstjóri einn og sér nær ekki ár ang ri nema liðsheildin og liðs andinn sé góður. Það skiptir mestu máli. Þá er það hlutverk for ­ stjóra að tryggja að félagið hafi skýra sýn – sýn sem allir starfsmenn fyrirtækis­ ins þekkja. Það er svo mik ilvægt að allir gangi í takt og viti hvert förinni er heitið. Verkefni mitt er að tryggja að rekstur félagsins gangi vel og félagið nái settum markmiðum.“ Það breytast alltaf eitt ­ hvað áherslurnar með nýj um forstjóra og segist Sigr ún hlakka til að kynnast fél aginu og starfseminni enn frekar og vinna að mót un stefnu þess. Í grunninn sé rekstur tryggingafélags þó ekki svo frábrugðinn öðr - um rekstri. „Þetta snýst um að þjóna viðskiptavinum sem best og að bjóða samkeppnishæft verð svo að viðkomandi geti hugsað sér að halda áfram viðskiptunum. Þetta bygg ist allt á langtímasam­ bandi við viðskiptavininn.“ Endurskipulagning fyrir ­ tækja mikilvæg Það er mikil breyting fyrir Sigrúnu Rögnu að færa sig yfir til VÍS frá Íslandsbanka þar sem úrvinnsla á skulda­ vanda fyrirtækja var eitt af brýnustu verkefnunum sem hún tók þátt í þar. „Mér finnst of lítið fara fyrir því í umræðunni hve jákvætt það er að fyrirtækin ljúki endurskipulagningu. Þegar óvissunni, sem stjórnendur og starfsmenn hafa staðið frammi fyrir, er eytt, þá sjáum við gríðarlega krafta losna úr læðingi. Ég hef heyrt dæmi þess að þegar fyrirtæki eru heim­ sótt nokkrum mán uð um eftir að þessu ferli lýkur þá gangi reksturinn mun betur en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta er jákvætt og því trúi ég að við munum brátt sjá meiri árangur og ávinning af þessari vinnu enda geta stjórnendur þá fyrst sett fyrirtækjum sínum raunhæf framtíðarmarkmið.“ Sigrún Ragna hefur trú á því að atvinnulífið nái sér á strik. „Okkur finnst held ég öllum að þessi endurskipulagningarvinna taki alltof langan tíma. Ég trúi því hins vegar að við höfum svo góða innviði hér á landi að þegar henni lýkur og fyrirtækin búa við meiri stöðugleika í starfsumhverfi sínu hefjist uppbyggingarskeið. Þess vegna er ég bjartsýn. Jafnt fyrirtæki sem heimili hafa þurft að hagræða í rekstri og lín urn ar hafa skýrst talsvert að undanförnu. Vinnan fram undan snýst því um að klára hlutina og margfeldis áhrifin af því verða mikil. Mörg stór fyrirtæki hafa þegar gengið í gegnum fjár hagslega endurskipulagn ingu og fjöldi annarrra lýkur því ferli brátt. Þar að auki er mikill þrýstingur á fjármálastofn- anirnar að hraða þessari vinnu. Að sjálfsögðu skiptir líka máli að fyrirtækin komi ekki of skuldsett út úr endurskipulagningunni, að rekstrarhæfi þeirra verði í lagi. Svo er líka jákvætt að línurnar eru að skýrast hvað varðar eignarhald.“ Gjaldeyrishöft hamla Fyrirtæki standa frammi fyrir fleiri hindrunum um þessar mundir og eru þar nærtækust gjaldeyrishöftin, sem Sigrún Ragna segir mikilvægt að losa um sem fyrst. „Seðlabankinn hefur gert áætlun um afléttingu gjaldeyrishaftanna, en óvissa er um hvernig þeim verði aflétt og á hve löng­ um tíma. Maður óttast að þessi höft verði viðvarandi næstu árin, sem er slæmt því að við þurfum á því að halda að fyrirtæki og sjóðir eigi þess kost að fjárfesta erl endis aftur. Höftin hafa líka mjög slæm áhrif á erlenda aðila sem kynnu að vilja fjárfesta á Íslandi. Nú eru liðin tæp þrjú ár frá því að þau voru sett á og eflaust sáu einhverjir fyrir sér að aflétting haftanna myndi taka styttri tíma.“ Og hún heldur áfram: „Gjaldeyrishöft hafa áhrif á fyrirtæki eins og VÍS, sem er með fjármuni á móti tjónaskuld, sem nauðsynlegt er að ávaxta vel með traustum hætti. Við erum bundin af þeim takmörkuðu fjárfestingar­ kostum sem fyrir hendi eru hér innanlands, rétt eins og til dæmis lífeyrissjóðirnir. Þessar aðstæður þrengja mjög okkar valkosti. Ætli við séum ekki nú með um 17 milljarða króna í ríkisskuldabréfum. Auðvit­ að væri æskilegt að dreifa áhættunni meira. Það er mjög mikilvægt að fjár- magnsmarkaðurinn á Ís­ landi taki við sér og eitthvað fari að gerast í hlutabréfa­ og skuldabréfaútboðum. Við horfum mjög til nýskráninga í kauphöllinni, því þá geta oft skapast áhugaverð fjár festingatækifæri ef undir- liggj andi rekstur er góður, en hingað til hefur lítið verið að gerast. Það kann þó að breytast hratt. Þannig að eins og staðan er núna þá er ekki um auðugan garð að gresja í fjárfestingarkost um.“ Horfum fram á veginn Atvinnulífið hefur ekki bara glímt við skuldavanda eftir hrunið, heldur líka tortryggni. Sigrún Ragna segir að neikvætt viðhorf í garð stórfyrirtækja sé ekki einhlítt og að sum ­ um tiltölulega stórum fyrir tækjum hafi tekist að við halda jákvæðri ímynd þrátt fyrir neikvæðan frétta flutning. Vinnan við að byggja upp traust eða við­ halda trausti tekur aldrei enda. „Ég finn að umræðan hefur verið að mildast und­ anfarna mánuði. Dregið hefur úr neikvæðninni, sem er mjög jákvætt, því hún getur líka hindrað eðlilega uppbyggingu í samfélaginu. Það er einnig mikilvægt að fá betri mynd af því sem er framundan á næstu árum og skýrari leikreglur og umgjörð frá stjórnvöldum svo atvinnulífið þurfi ekki að búa við meiri óvissu en nauðsynlegt er. Það er orðið tímabært, nú þremur árum eftir hrun, að hætta að horfa í baksýnisspegil­ inn og fara að horfa fram á veginn. Við þurfum að sækja fram og vinna okkur út úr þessum erfiðleikum,“ segir Sigrún Ragna að endingu.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.