Frjáls verslun - 01.07.2011, Qupperneq 47
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 47
Vill greiða úr krullunum
Þ
að er mín kenning að stoðkerfi nýsköpunar beri enn
ýmis einkenni góðærisins. Það komu fram hugmyndir
og svo var vaðið í að framkvæma þær án þess að
hugsa of mikið um skipulagið og skilvirknina,“ segir
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra en hún vill einfalda
þetta kerfi og ekki síst „kortleggja það sem fyrir er“ eins og hún
orðar það.
Fólk með nýjar hugmyndir kvartar undan því að erfitt sé að átta sig á
hver geri hvað innan þeirra stofnana og sjóða sem hafa það hlutverk
að styðja við bakið á frumkvöðlum. Hvar á ég að byrja? Við hvern á ég
að tala fyrst? En þessi eða hinn sjóðurinn sá rétti fyrir mig?
Leiðakerfi á netinu
Núna er komin á netið ný gátt sem heitir www.atvinnuvegurinn.is og
þar er hægt að finna einfalda leið inn í kerfið og um það. Að þessu
hefur verið unnið í ráðuneytinu í ár og Kartín segir að vinna við að
koma betra skipulagi á stoðkerfið verði eitt helsta verkefni ráðu-
neytisins út árið.
„Það kemur til greina að slá saman sjóðum, sem eru á vegum
hinna ýmsu ráðuneyta, og auka samvinnu stofnana út um allt land,“
segir Katrín og bendir á að það sé kreppuráðstöfun eftir góðærið
að vilja auka skilvirknina og nýta peningana betur.
„Stoðkerfið er alls ekki slæmt og tækniþróunarsjóður er til dæmis
eitt öflugasta tækið sem við höfum í nýsköpun,“ segir Katrín.
„Fyrirtæki sem voru skjólstæðingar hans skila nú gjaldeyristekjum.
Um 65% af hugmyndum sem tækniþróunarsjóður hefur styrkt hafa
leitt af sér frumgerðir og þá eru miklar líkur á að úr verði fram
leiðsla.
En við þurfum að eyða minna í stjórnunarkostnað og meira í sjálf
verkefnin,“ segir Katrín.
Mikil gróska
Annað kreppueinkenni er að óvenjumargar hugmyndir koma fram
og nýsköpun birtist á fleiri sviðum en áður.
„Margt hæfileikaríkt fólk sogaðist inn í svartholið sem bankanir
voru. Nú er það oft á lausu og með nýjar hugmyndir,“ segir Katrín.
Hún leggur og áherslu á að nýsköpun snýst um fleira en bara
hátækni. Það ber oft mest á nýjum hátæknifyrirtækjum en nýsköp-
un er líka í þjónustu af ýmsu tagi, í menntakerfinu og í hönnun.
„Það er margt spennandi að gerast í hönnun og ég vil að hönn-
uðir nýti sér líka þetta stoðkerfi nýsköpunar,“ segir Katrín og bendir
á að fatahönnun og fatagerð hafi farið illa út úr góðærinu en sé að
ná sér á strik á ný.
„Það er mikil gróska í nýsköpun en við þurfum að einfalda kerfið,
bæta aðgengi að því sem fyrir er og nýta peningana betur,“ segir
Katrín Júlíusdóttir.
kAtrÍN JúLÍuSdóttIr IðNAðArrÁðHErrA líkir stuðningskerfi nýsköpunar við krullað hár. Það hefur vaxið og aukist
á síðustu árum en samt ekki alltaf þannig að auðvelt sé að átta sig á hver gerir hvað í þessu kerfi. Nú er kominn tími
til að slétta úr krullunum.
„Við þurfum að eyða minna í stjórnunar
kostnað og meira í sjálf verkefnin.“