Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 62

Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 62
62 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 Samtök iðnaðarins efna þetta árið til átaksverkefnis sem kallast Ár nýsköpun­ar – frumkvæði, fjár­ festing, farsæld. Markmiðið er að kynna og efla nýsköpun sem leið til endurreisnar í íslensku atvinnulífi og vinna að vegvísi til framtíðar með verðmætasköp­ un og aukinn útflutning að leiðarljósi. Haukur Alfreðsson er verk­ efnastjóri Hátækni­ og sprota­ vettvangs hjá SI en um er að ræða samstarfsverkefni samtakanna og stjórnvalda. Markmið vettvangsins er að vinna á markvissan hátt að því að bæta starfsskilyrði og stuðningsumhverfi tækni­ og sprotafyrirtækja. „Hátækni­ og sprotavettvang­ ur vinnur í nánu samstarfi við fyrirtæki bæði innan og utan SI að margvíslegum verkefnum sem miða að því að bæta starfs­ umhverfi þeirra, sérstaklega sprotafyrirtækja. Við komum á framfæri upplýsingum sem nýtast fyrirtækjum í rekstri, veitum ýmiss konar þjónustu og fáum ábendingar frá þeim um það sem betur má fara. Þær upplýsingar notum við síðan til að móta stefnu m.a. tækni­ og hugverkafyrirtækja. Til að koma stefnu og mark miðum í framkvæmd eru verkefni skilgreind, þeim for gangsraðað og komið í fram kvæmd með stuðningi hags munaaðila, fyrirtækjanna, stjórn mála­ manna og stjórnvalda.“ nýsköpun Hátækni­ og sprotavettvang­ ur og SI boðuðu þingmenn, fulltrúa úr ráðuneytum og for ­ svarsmenn fyrirtækja á stefnu­ mótunarfund fyrr á þessu ári. „Við höfum verið að vinna úr tillögum sem þar komu fram og á ráðstefnu, sem við köllum Tækni­ og hugverkaþing 2011, verða þær kynntar og leitað leiða til að koma þeim í fram­ kvæmd. Við leggjum áherslu á að vinna með þingmönnum í þessu máli, m.a. til að fá ábend­ ingar og aðstoð við að koma verkefnum í framkvæmd.“ Haukur segir að Samtök iðnaðarins og Hátækni­ og sprota vettvangur vinni í æ meira mæli með fyrirtækjum sem koma úr öðrum greinum en tæknigreinum. Eins og nafn þingsins gefur til kynna er líka um að ræða málefni fyrirtækja í svokölluðum hugverkageira. Verkefnin leiði til betra starfs­ umhverfis sem nýtist fleirum en tækni­ og sprotafyrirtækjum. Í ljósi þess eru SI og Hátækni­ og sprotavettvangur að útvíkka markhóp sinn til fyrirtækja sem byggja starfsemi sína á hug­ verki og hugverkaþróun, óháð atvinnugrein, hvort sem sú þróun byggist á tækni, hönn­ un eða annarri sérstöðu. „Við erum þess fullviss að framtíðin felist í að auka verðmætasköp­ un með nýsköpun: Tækifærin liggja hjá tækni­ og hugverka­ fyrirtækjum almennt sem byggja starfsemi sína ekki eingöngu á náttúruauðlindum. Við viljum kalla þau fjórðu stoðina í verðmætasköpun og útflutningi.“ Samtök iðnaðarins hafa í gegnum árin m.a. aðstoðað fyrirtæki við nýsköpun og lagt áherslu á fyrirtæki í tæknigeiranum. Fyrirtækjum úr ýmsum starfsgreinum sem byggja starfsemi sína á hugverki er að fjölga innan samtakanna. tækni- og hugverkaþing 2011 „Hátækni­ og sprotavettvang ur vinnur í nánu sam­ starfi við fyrirtæki bæði innan og utan SI að margvíslegum verkefnum.“ Haukur Alfreðsson er verk efnastjóri Hátækni- og sprota vettvangs hjá SI. viðskiptahugmyndin

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.