Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 65
FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 65
Við brotthvarf varn arliðsins á sínum tíma var þróunarfélagið Kadeco stofn að
í tengslum við þær eignir sem
íslenska ríkið yfirtók. Markmiðið
var að breyta varnar svæðinu
fyrrverandi til borg aralegra nota.
Í dag búa tæplega 2.000 manns
á Ásbrú, 600 manns stunda þar
nám hjá Keili og yfir 50 fyrirtæki
og stofnanir eru með starfsemi
þar. Fjármálaráðuneytið á 100%
eignarhlut í félaginu sem starfar
samkvæmt samningi við ráðu
neytið.
„Stefnumótun hófst í fram
haldinu en þar voru farnar
nýjar leiðir hér á landi,“ segir
Kjartan Þór Eiríksson, fram
kvæmdastjóri Kadeco. „Þetta
er í fyrsta skipti sem svona
stórt umbreytingarverkefni er
unnið á Íslandi en við höfum
horft til fordæma annars
staðar í heiminum. Farið var
að greina mjög nákvæmlega
hverjir væru samkeppnisyfir
burðir svæðisins og reynt að
nýta þau tækifæri sem gætu
tengst þessum yfirburðum. Út
frá því var útfærð sú stefna að
byggja upp það sem við köllum
Samfélag frumkvöðla, fræða og
atvinnulífs þar sem íbúðar
byggð, menntauppbygging,
frumkvöðlasetur og atvinnu
starfsemi eru hlið við hlið.
Hér höfum við reynt að skapa
frjótt umhverfi fyrir nýsköpun
arverkefni – allt frá stórum
verkefnum eins og gagnaverum
og til smærri verkefna. Við
getum unnið með aðilum í
gegn um líftíma verkefnis; alveg
frá því að hugmyndin verður til
með því að skapa þeim aðstöðu
annaðhvort í frumkvöðlasetri
eða í fyrirtækjahóteli þar sem
mikil þjónusta er innifalin upp í
það ef verkefnið á síðari stigum
krefst einhverrar landþróunar
svo sem uppbyggingar á sér
hæfðu húsnæði.“
umfangsmikil verkefni
Kjartan segir að viðtökur hafi
verið góðar og að margir leiti
til Kadeco með hugmyndir.
„Verkefnið fór af stað í þensl
unni og við vorum komin vel á
veg með mörg verkefni þegar
kreppan skall á. Þar af leiðandi
vorum við vel í stakk búin til
að taka við aðilum með nýjar
hugmyndir; það var breytt
hugar far á þessum tíma og
þörf fyrir atvinnusköpun. Við
höfum aðstoðað mörg fyrirtæki
undanfarin ár – bæði stór og
smá – við að komast á legg.
Reyndar hefur verið minna
um stórskalaverkefni þar sem
fjármagn hefur verið frekar af
skornum skammti í slík verk
efni en við finnum þó töluverða
breytingu núna og eru menn
farnir að horfa aðeins meira í
þau.“
Verkefni Kadeco eru um fangs mikil. Það sam an
stendur bæði af þróunarþættin
um, sem þeg ar hefur verið fjallað
um, auk þess sem félagið á
enn töluvert mikið af eignum
sem sýslað er með. „Við höfum
reynt að halda allri yfirbygginu
í lágmarki þannig að félagið
hafi mikinn sveigjanleika til að
bregðast við en það kaupir út
töluvert af þjónustu svo sem
ráðgjafarþjónustu auk þess að
kaupa þjónustu verktaka.“ Á
meðal verkefna má nefna þróun
og uppbyggingu auk hreinsunar
og niðurrifs á mann virkjum á
svæðinu. Tíu manns vinna hjá
félaginu.
Ýmis tækifæri sköpuðust á Miðnesheiði þegar bandaríski herinn fór úr landi. Á svæðinu, sem heitir í dag Ásbrú, er aðstaða fyrir
áhugasama að þróa verkefni og byggja upp sprotafyrirtæki.
samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs
Kjartan Þór Eiríksson.
Á meðal verkefna má
nefna þróun og uppbygg
ingu auk hreinsunar og
niðurrifs á mannvirkjum
á svæðinu.
viðskiptahugmyndin