Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 70
70 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
og fylgi línunni alveg eftir í gegn
um myndatökur fyrir bæklinga
og annað markaðsefni. Við erum
loksins búin að ráða manneskju
sem vinnur með mér hugmynda
vinnuna.“
Á meðal annarra starfsmanna
má nefna grafískan hönn uð sem
hannar grafík á sumar flíkurnar
með Heiðu, annar grafískur hönn-
uður sér eingöngu um teikn ingar
sem eru síðan prent aðar á efni,
einn starfsmaður sér um hönn-
un á töskum … Og svona má
lengi telja. Tvær sænskar konur
hanna gallabuxna línu fyrirtækisins
og búa þær í Svíþjóð.“
Vörurnar eru framleiddar í Kína,
Taívan, Víetnam, Argen tínu, Ind
landi og Túnis.
Þrjár línur
Heiða segir að línan sé orðin
svo stór að hún sé í rauninni
þrískipt. Í fyrsta lagi er um snjó -
brettafatnað að ræða og í
öðru lagi hversdagsföt en hjá
fyrirtækinu er hannað fjölbreytt
úrval af buxum, svo sem
galla buxum, kjólum, bolum,
hettu peysum, húfum, töskum,
skart gripum … „Snjóbrettafatn-
aðurinn hefur gengið mjög vel
sem og gallabuxnalínan.“ Í þriðja
lagi er um að ræða litla línu sem
kölluð er „Nikita selekzion“ sem
er stíluð á eldri viðskiptavini
og þar er m.a. að finna fínni föt
sem nota má spari.
Flíkur frá Nikita hafa alla tíð
þótt frábrugðnar þeim sem fyrir
voru á markaðnum en götu tísk-
an hefur haft áhrif á litavalið.
Fyrirtækið var tilnefnt til Sjónlista -
verðlaunanna á sínum tíma og í
greinargerð segir m.a. að fötin
hafi ferskt yfirbragð, séu nútíma-
leg og frumleg. Þá segir líka:
„Notkun á hvers kyns mynstrum
og teikningum sem eru þrykkt,
saumuð eða ofin í fötin nær oft
og tíðum listrænum hæðum.
Litasamsetningar eru fjölbreyti
legar og áræðnar.“
Almennt er lögð áhersla á
þægileg föt, hvort sem er að
ræða föt sem nota á uppi í fjalli,
föt sem nota má dags daglega
eða fínni föt.
Mikil barátta
Aðspurð hvað stýri velgengni
fyrirtækisins segir Heiða að þau
Rúnar og Valdimar hafi sjálf
unnið sleitulaust í fyrirtækinu.
„Allt fjármagn sem við höfum
haft hefur farið í reksturinn, til að
markaðssetja merkið og borga
laun. Við erum í rauninni enn-
þá að byggja upp fyrirtækið.
Þetta er ekki bara búinn að vera
blússandi uppgangur; það hafa
komið tímar þar sem reksturinn
hefur ekki gengið nógu vel.
Við höfum hins vegar einbeitt
okkur að því sem við höfum
verið að gera og haft endalausa
trú á að þetta gæti gengið en
það er nauðsynlegt þegar ekki
gengur nógu vel. Við höfum
gengið í gegnum tímabil þegar
hefur vantað meira fjármagn og
höfum þurft að fara í gegnum
hlutafjáraukningar. Þetta hefur
verið mjög mikil barátta. Þetta
rennur ekkert „smooth“. Þetta
eru endalausar vangaveltur
um hvert hver króna á að fara;
það er vel haldið utan um
hverja krónu í fyrirtækinu og við
höfum aldrei eytt í vitleysu. Við
keyptum ekki skrifstofubygg
ingu þegar mesta góðærið var
á Íslandi. Fyrirtækið er ennþá í
sama húsnæðinu og þegar það
var stofnað en við höfum bara
bætt við rýmum inni í sömu
bygg ingu. Það liggur við að fólk
sé í sömu stólunum og fyrir 10
árum. Vinnuandinn er góður og
það skiptir miklu máli að hafa
gott starfsfólk sem er líka tilbúið
til að vinna mikið.“
Heiða segist sjaldan hafa
tekið sér frí frá því fyrirtækið
var stofnað. Hún stundar
snjóbretta íþróttina og hefur t.d.
stundum rennt sér í Austurríki
ef hún fer á sýningar þar í landi
eða nágrannalöndunum. Hún
á ungan son og hefur reynt
að fækka og stytta vinnuferðir
til útlanda eftir að hann kom í
heiminn. „Við förum oft til út
landa þegar verið er að mynda
fyrir bæklinga og hefur hann oft
komið með; þetta er upplifun
fyrir hann.“
atikin
Nikita – Atikin. Strákarnir fá sína
athygli í fyrirtækinu. „Við erum
með litla strákalínu sem heitir
Atikin. Okkur langar til að gera
eitthvað fyrir strákana. Það má
segja að þetta sé ennþá hálf
gert gæluverkefni. Þarna erum
við að ryðjast inn á markað þar
sem er meiri samkeppni. Við
eigum alveg heima á þessum
markaði en höfum þó ekki lagt
mikið fjármagn í þessa línu;
hún hefur svolítið fengið að
vaxa af sjálfu sér. Við höfum
selt ágætlega hér á Íslandi en
höfum ekki lagt mikla áherslu
á hana hvað dreifingaraðilana
varðar. Við hönnuðum ekkert
fyrir þessa línu eitt tímabilið og
vorum að velta því fyrir okkur
hvort við ættum að vera að
eyða tíma í hana. Þetta er nátt-
úrlega bara viðbótarvinna en
okkur fannst bara svo skemmti
legt að vinna við hana og fáum
það góð viðbrögð frá strákun-
um að við vildum ekki hætta.
Það er aldrei að vita hvað við
gerum í framtíðinni.“
verðlaun og viðurkenningar
Heiða sagði að þetta væri bú
ið að vera mikil barátta. Sjálf
segist hún hafa lært mikið af
því að standa í fyrirtækisrekstri.
„Ég er búin að læra það sem
ég er að gera í dag. Ég hef lært
að hlutirnir gerast ekki nema
maður helli sér út í þá. Ég hef
endalausa trú á því sem ég
er að gera og ef maður efast
einhvern tímann um það heldur
maður ekkert áfram í svona
leik.“
Hún hefur reynsluna og er
spurð hvað þurfi að hafa í huga
við stofnun frumkvöðlafyrir-
tækis. „Í fyrsta lagi þarf að byrja
á því að fá pening en fáir eiga
tugi milljóna króna í vasanum.
Maður fer ekkert öðruvísi af
stað. Svo þarf fólk að vera
tilbúið að vinna mjög mikið í
mörg ár; mann þarf virkilega
að langa til að gera þetta.
Það er líka mikilvægt að geta
unnið með öðrum því maður
getur ekki gert þetta allt sjálfur.
Ég hefði aldrei farið út í þetta
ein. Ég hef til dæmis engan
áhuga á að vinna í bókhaldi
eða neinu slíku. Þegar við þrjú
byrjuðum með fyrirtækið vorum
við með mismunandi hæfileika
og áhuga. Rúnar er markaðs-
og sölu maður, Valdimar er
viðskipta maður og ég hafði
verið í hönnun. Öll þekktum við
þennan bransa orðið mjög vel.“
Heiða segir starfið vera
fjölbeytt. „Það hefur gefið mér
alls konar tækifæri. Ég er búin
að ferðast víða og hef komið til
alls kyns landa sem ég hefði
kannski ekki farið til í frí. Ég er
búin að gera ýmislegt skemmti
legt og upplifa margt.“
Fyrirtækið hefur hlotið ýmis
verðlaun og viðurkenningar.
Heiða segir að fyrirtækið hafi
tvisvar verið tilnefnt til SIMA,
sem eru alþjóðleg samtök innan
„surf“- og brimbrettabransans,
og tvisvar hefur það fengið
verðlaun hérlendis fyrir vef
fyrirtækisins. Þá hlaut Heiða fyrr
á þessu ári viðurkenningu Fél-
ags kvenna í atvinnurekstri.
„Snjóbrettafatn
aðurinn hefur
gengið mjög vel
sem og galla
buxna línan.“
Í þriðja lagi er
um að ræða litla
línu sem kölluð
er „Nikita
selekzion“
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
5
52
84
9
06
/1
1 HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
TVÍBURINN
ÞÚ ERT AÐ FARA TIL ÚTLANDA OG ÞAÐ ERU 150 STUNDIR
AF AFÞREYINGU UM BORÐ Í FLUGVÉL ICELANDAIR.
NJÓTTU ÞESS.
Rafmagnað andrúmsloft
Fyrirtækið HBT var stofnað í frumkvöðlasetrinu á Ásbrú árið 2008. Fyrirtækið framleiðir
rafbjögunarsíu sem uppfinningamaðurinn Árni Bergmann Pétursson var 10 ár að þróa.
Búnaðurinn eyðir rafmagnstruflunum sem eru algengar í verksmiðjum, frystihúsum og
frystitogurum. Hann dregur úr orkunotkun, minnkar mengun og eykur verulega líftíma
rafmagnsbúnaðar. HBT hefur selt búnaðinn innanlands og hefur einnig náð góðri fótfestu á
alþjóðlegum mörkuðum. Rafbjögunarsían er gott dæmi um útflutning á íslensku hugviti.
HBT er eitt fjölmargra fyrirtækja sem
kjósa Ásbrú, samfélag frumkvöðla, fræða
og atvinnulífs, sem sína bækistöð.
Nánari upplýsingar um Ásbrú má finna á
www.asbru.is og hjá Kadeco sem hefur frá
árinu 2006 leitt uppbyggingu á Ásbrú.
Ásbrú í Reykjanesbæ er kjörinn staður fyrir fyrirtæki á sviði tækni og
heilsu tengdrar þjónustu, auk fyrir tækja sem sjá hag sinn í nálægð við
alþjóða flugvöll.
Á Ásbrú er stór háskóla garður, spennandi nám í boði hjá Keili, kvikmynda
ver, heilsu þorp í farar broddi heilsu ferða mennsku, tækni þorp þar sem
alþjóð legt gagna ver er að rísa og fjöldi áhuga verðra sprotafyrirtækja.
Mikil upp bygging er á svæðinu og má
þar nú meðal annars finna leikskóla,
grunn skóla, verslun og veitinga stað.
Verður þín hugmynd að veruleika á Ásbrú?
Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
www.hbtinternational.com
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
10
4
69