Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 80

Frjáls verslun - 01.07.2011, Side 80
80 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011 fÓlk „Það að strita við að koma litlum bolta í þar til gerðar holur í sem fæstum höggum er að vísu misskemmtilegt, eftir því hvernig gengur, en félagsskapurinn og útiveran er hvort tveggja ómetanlegt.“ ÍT-ferðir voru stofnaðar haustið 1996 og fagna því 15 ára afmæli á næstunni. Áður hafði ég starf- að sem verktaki í ferðaþjónust­ unni í 10 ár. Ég er því að halda upp á 25 ár í ferðaþjónustu nú í haust. Við erum nú að vinna að nýrri heimasíðu ÍT-ferða, sem við vonumst til að opna í september, og svo er í vinnslu ársbæklingur fyrir 2012 sem verður flottur á 15 ára afmælinu og kemur út 1. októ ber næstkomandi. Það sem er mest spennandi á afmælisárinu eru tvö afar metn aðarfull verk- efni. Annað er gönguferð í Nepal um páskana 2012, flott ferð á frábæru verði. Hitt er ferð í fót spor Guðríðar Símonardóttur, eftir magnaðri bók Steinunnar Jóhannesdótt ur. Næsta vor verður fyrsti hluti heimferðar Guðríðar frá Alsír til Íslands og síðan haldið áfram 2013 og 2014. Steinunn verður faglegur leiðangursstjóri en far ar stjóri er Hjördís, systir mín, sem hefur farið með fjölmarga hópa á okkar vegum út um allan heim, í göngu-, sögu- og menn ingarferðir.“ Hörður býr ásamt Ritu Lúkas- dóttur eiginkonu sinni og tveim ur dætrum við Elliðavatn/Vatns- enda á höfuðborgarsvæðinu. „Dæturnar sem heima búa eru 17 og 20 ára og stunda nám í framhaldsskóla og vinna með náminu. Elsta dóttir mín býr hins vegar í Madrid og er þar gift frábærum ungum manni, Fran. Hún er hagfræðingur frá HÍ og vinnur í fjárreiðudeild stórfyrirtækis. Sjálfur er ég kenn- aramenntaður og starfaði í 10 ár við kennslu, auk þess sem ég vann lengi við íþróttaþjálfun, blaðamennsku o.fl.“ Hörður hefur gaman af góðum bókum, góðum kvikmyndum og góðu fólki, en aðaláhugamálið síðustu árin er golf. „Ég byrjaði að vísu tuttugu árum of seint og var þá orðinn of þungur og stirður til að geta náð einhverj­ um árangri, en finnst ægilega gaman. Það að strita við að koma litlum bolta í þar til gerðar holur í sem fæstum höggum er að vísu misskemmtilegt, eftir því hvernig gengur, en félagsskapur­ inn og útiveran er hvort tveggja ómetanlegt. Annars er ég mikill íþróttafíkill og fylgist vel með í heimi íþróttanna, hér heima og erlendis. Liverpool FC er mitt félag í enska boltanum, en ég á í vandræðum á Spáni þar sem Real Madrid og Barcelona hafa barist um hylli mína – Real Mad­ rid vegna dótturinnar. Hér heima er það Valur enda er blóðið rautt. Ég og Valur höfum átt samleið í yfir 50 ár af 100 ára sögu þessa magnaða íþróttafélags. Hvað varðar ferðalög þá ferð- ast ég mikið til útlanda vegna vinnunnar og í ár hef ég tekið konuna með í tvær vikuferðir, til Spánar og Ítalíu. Þá hefur gefist tími til að fara saman út að borða og „hygge sig“, en það er nokk uð sem ég kann vel að meta; eins og sjá má á vaxandi um fangi fyrrverandi íþróttamannsins. Ég þekki hins vegar ekki tveggja til sex vikna frí. Hef aldrei upplifað svoleiðis. Í fyrra fórum við hjónin hringinn á Íslandi á átta dögum. Það var frábær ferð og gaman að hitta og heimsækja ættingja og vini á leiðinni. Ísland er stórkostlegt land og fólkið almennt yndi­ slegt.“ Hörður Hilmarsson – framkvæmdastjóri ÍT-ferða Nafn: Hörður Hilmarsson Fæðingarstaður: Reykjavík, 21. nóv. 1952 Foreldrar: Aðalheiður Bergsteins- dóttir og Hilmar Bjarnason Maki: Rita Lúkasdóttir Börn: Bryndís, 31 árs, Sara Mildred, 20 ára, og Birna Ósk, 17 ára Menntun: Kennaramenntun, markaðs- og útflutningsfræði Endur- menntun HÍ, fjölmörg námskeið um stjórnun, markaðsmál o.fl. arionbanki.is – 444 7000 ÍS LE N SK A S IA .IS A R I 5 60 72 0 9/ 11 Íslenskt hugvit eflir íslenskt atvinnulíf Nýsköpun Hvað skiptir þig máli? Það skiptir máli að íslensk nýsköpunarfyrirtæki njóti stuðnings við þróunarstarf sitt og breikki þannig grundvöll íslensks atvinnulífs. Arion banki hefur stutt við fjármögnun Marorku sem hefur náð miklum árangri og skipað sér í röð með leiðandi fyrirtækjum í orku- stjórnun og orkusparnaði skipa á heimsvísu. Arion banki hefur einnig stutt við uppbyggingu Remake Electric sem hefur þróað einstakt orkustjórnunarkerfi fyrir heimili og fyrirtæki. Við erum stolt af þessum stuðningi. Hann skiptir máli. „ Að bankinn okkar skilji nýsköpun og veiti okkur stuðning til að vaxa.“ Þórður Magnússon stjórnarformaður Marorku og Remake Electric TexTi: Hilmar KarlSSon

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.