Frjáls verslun - 01.07.2011, Síða 80
80 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
fÓlk
„Það að strita við að koma litlum bolta í þar til gerðar holur í sem fæstum höggum er að
vísu misskemmtilegt, eftir því hvernig gengur, en félagsskapurinn og útiveran er hvort
tveggja ómetanlegt.“
ÍT-ferðir voru stofnaðar haustið
1996 og fagna því 15 ára afmæli
á næstunni. Áður hafði ég starf-
að sem verktaki í ferðaþjónust
unni í 10 ár. Ég er því að halda
upp á 25 ár í ferðaþjónustu nú í
haust. Við erum nú að vinna að
nýrri heimasíðu ÍT-ferða, sem við
vonumst til að opna í september,
og svo er í vinnslu ársbæklingur
fyrir 2012 sem verður flottur á
15 ára afmælinu og kemur út 1.
októ ber næstkomandi. Það sem
er mest spennandi á afmælisárinu
eru tvö afar metn aðarfull verk-
efni. Annað er gönguferð í Nepal
um páskana 2012, flott ferð
á frábæru verði. Hitt er ferð í
fót spor Guðríðar Símonardóttur,
eftir magnaðri bók Steinunnar
Jóhannesdótt ur. Næsta vor
verður fyrsti hluti heimferðar
Guðríðar frá Alsír til Íslands og
síðan haldið áfram 2013 og
2014. Steinunn verður faglegur
leiðangursstjóri en far ar stjóri er
Hjördís, systir mín, sem hefur
farið með fjölmarga hópa á okkar
vegum út um allan heim, í göngu-,
sögu- og menn ingarferðir.“
Hörður býr ásamt Ritu Lúkas-
dóttur eiginkonu sinni og tveim ur
dætrum við Elliðavatn/Vatns-
enda á höfuðborgarsvæðinu.
„Dæturnar sem heima búa eru
17 og 20 ára og stunda nám í
framhaldsskóla og vinna með
náminu. Elsta dóttir mín býr
hins vegar í Madrid og er þar
gift frábærum ungum manni,
Fran. Hún er hagfræðingur frá
HÍ og vinnur í fjárreiðudeild
stórfyrirtækis. Sjálfur er ég kenn-
aramenntaður og starfaði í 10
ár við kennslu, auk þess sem
ég vann lengi við íþróttaþjálfun,
blaðamennsku o.fl.“
Hörður hefur gaman af góðum
bókum, góðum kvikmyndum og
góðu fólki, en aðaláhugamálið
síðustu árin er golf. „Ég byrjaði
að vísu tuttugu árum of seint
og var þá orðinn of þungur og
stirður til að geta náð einhverj
um árangri, en finnst ægilega
gaman. Það að strita við að
koma litlum bolta í þar til gerðar
holur í sem fæstum höggum er
að vísu misskemmtilegt, eftir því
hvernig gengur, en félagsskapur
inn og útiveran er hvort tveggja
ómetanlegt. Annars er ég mikill
íþróttafíkill og fylgist vel með í
heimi íþróttanna, hér heima og
erlendis. Liverpool FC er mitt
félag í enska boltanum, en ég á
í vandræðum á Spáni þar sem
Real Madrid og Barcelona hafa
barist um hylli mína – Real Mad
rid vegna dótturinnar. Hér heima
er það Valur enda er blóðið rautt.
Ég og Valur höfum átt samleið í
yfir 50 ár af 100 ára sögu þessa
magnaða íþróttafélags.
Hvað varðar ferðalög þá ferð-
ast ég mikið til útlanda vegna
vinnunnar og í ár hef ég tekið
konuna með í tvær vikuferðir,
til Spánar og Ítalíu. Þá hefur
gefist tími til að fara saman út
að borða og „hygge sig“, en
það er nokk uð sem ég kann
vel að meta; eins og sjá má á
vaxandi um fangi fyrrverandi
íþróttamannsins. Ég þekki hins
vegar ekki tveggja til sex vikna
frí. Hef aldrei upplifað svoleiðis.
Í fyrra fórum við hjónin hringinn
á Íslandi á átta dögum. Það var
frábær ferð og gaman að hitta
og heimsækja ættingja og vini
á leiðinni. Ísland er stórkostlegt
land og fólkið almennt yndi
slegt.“
Hörður Hilmarsson
– framkvæmdastjóri ÍT-ferða
Nafn: Hörður Hilmarsson
Fæðingarstaður: Reykjavík,
21. nóv. 1952
Foreldrar: Aðalheiður Bergsteins-
dóttir og Hilmar Bjarnason
Maki: Rita Lúkasdóttir
Börn: Bryndís, 31 árs, Sara Mildred,
20 ára, og Birna Ósk, 17 ára
Menntun: Kennaramenntun,
markaðs- og útflutningsfræði Endur-
menntun HÍ, fjölmörg námskeið um
stjórnun, markaðsmál o.fl.
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
A
R
I 5
60
72
0
9/
11
Íslenskt hugvit eflir
íslenskt atvinnulíf
Nýsköpun
Hvað skiptir þig máli?
Það skiptir máli að íslensk nýsköpunarfyrirtæki njóti stuðnings við
þróunarstarf sitt og breikki þannig grundvöll íslensks atvinnulífs.
Arion banki hefur stutt við fjármögnun Marorku sem hefur náð
miklum árangri og skipað sér í röð með leiðandi fyrirtækjum í orku-
stjórnun og orkusparnaði skipa á heimsvísu. Arion banki hefur einnig
stutt við uppbyggingu Remake Electric sem hefur þróað einstakt
orkustjórnunarkerfi fyrir heimili og fyrirtæki.
Við erum stolt af þessum stuðningi. Hann skiptir máli.
„ Að bankinn okkar
skilji nýsköpun og
veiti okkur stuðning
til að vaxa.“
Þórður Magnússon
stjórnarformaður Marorku
og Remake Electric
TexTi: Hilmar KarlSSon