Frjáls verslun - 01.07.2011, Page 82
82 FRJÁLS VERSLUN 7.tbl.2011
A
rtasan er dóttur
fyrirtæki Veritas og
systurfyrirtæki Vis
tor, Distica og ME
DOR og sinn ir sölu
og markaðssetningu á lyfjum,
heilsuvörum og fæðubótarefn-
um. Fyrirtækið markaðssetur til
dæmis Nicotinell, Voltaren Gel,
VoltarenDolo, Lamisil, Strep
sils, Galive og Otrivin ásamt
lyfseðilsskyldum lyfjum. Auk
þess erum við með EAS- og
Powerbar-fæðubótarefni, Zone
Perfect-máltíðarstangir sem
hafa heldur betur slegið í gegn
á síðustu mánuðum og Dettol
sótthreinsilínu svo eitthvað sé
nefnt. Spennandi tímar eru
framundan því allar deildir
fyrirtækisins koma til með að
markaðssetja eitthvað nýtt á
næstu vikum og mánuðum.
Hjá fyrirtækinu starfar samhent
ur hópur af frábæru fólki og
við njótum þess að vera lítið
fyrirtæki þar sem allir láta sér
annt hverjum um annan.“
Aðalheiður segir einnig mikil
vægan þann tíma sem hún
sinnir fjölskyldunni. „Það leit ekki
væn lega út þegar við fór um í frí
í byrjun sumars því við lentum í
seinkun vegna gos sins í Gríms
vötnum en allt fór vel og við end-
uðum á að upplifa bæði margt
og mikið. Við flugum til New
York, þaðan til Miami og svo til
Albuquerque. Þar tókum við bíla-
leigubíl og fórum á „road trip“
um Nýju-Mexíkó, Arizona, Nev-
ada og Kaliforníu og upplifðum
miklar öfgar, allt frá því að gista
í kofa að hætti frumbyggja í
Monument Valley með stjörnu-
bjartan himininn sem eina ljós
gjafann í að gista í glæsisvítu á
Bellagio í Las Vegas með allri
sinni ljósadýrð og gosbrunna
listaverki, örfáum dögum síðar.
Þá áttum við ótrúlegar stundir
annars vegar í algjörri þögn og
eyðimerkurauðn White Sands í
Nýju-Mexíkó og hins vegar í kaos
og erli á miðju Times Square.
Þetta var frábær ferð og við erum
þegar farin að tala um þá næstu
og hvert væri gam an að fara.
Í haust er svo ferð til Indlands
á vegum Lyfjafræðingafélagsins
þar sem ég er formaður en á
Ind landi fer fram árlegt þing
al þjóðlegra samtaka lyfjafræð
inga. Í lok þingsins ætlum við
hjónin að skoða okkur aðeins um
enda aldrei komið til Indlands
áður.
Þótt gaman sé og gefandi að
ferðast erlendis er alltaf ómiss
andi að ferðast innanlands og
fasti punkturinn í tilverunni er
árleg ferð að Látrum en þar
er móðir mín fædd og uppalin
og þau systkinin eiga þar hús
sem skipst er á um að nýta.
Þarna hættir tíminn að eltast
við klukkuna, maður fer í langar
göngur upp á heiði, gleymir sér
yfir spennandi bók, skokkar út
á Látrabjarg eða fylgist með
krökkum standa í virkjunarfram
kvæmdum í læknum. Eina teng-
ingin við umheiminn eru fréttir á
Gufunni, þegar munað er eftir
að kveikja á útvarpinu. Það eru
forréttindi að vera Íslendingur
og eiga aðgang að slíkum
auðæfum sem náttúran býður
upp á og ekki spillir að vera
þarna með mömmu, sem þekkir
hvern stein eins og lófann á sér.
Eftir slíkt sumar kemur maður
endurnærður inn í haustið, til
búinn að takast á við spennandi
áskoranir í starfi. Hvað varðar
áhugamálin er af nægu að taka.
Þar ber hæst bókaklúbbinn
Lespíurnar og svo auðvitað
enska boltann. Bjartir tímar eru
fram undan og svei mér þá ef
það lítur ekki bara vel út með að
Liv erpool taki deildina í ár.“
Aðalheiður Pálmadóttir
– framkvæmdastjóri Artasan hf.
„Við upplifðum miklar öfgar, allt frá því að gista í kofa að hætti frumbyggja í Monument Valley
með stjörnubjartan himininn sem eina ljósgjafann í að gista í glæsisvítu á Bellagio í Las Vegas
með allri sinni ljósadýrð og gosbrunnalistaverki.“
Nafn: Aðalheiður Pálmadóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík, 29.
apríl 1966
Foreldrar: Pálmi Hlöðversson og
Jóna Guðmunda Helgadóttir
Maki: Pétur S. Gunnarsson
Börn: Daníel, 19 ára, og Emma, 17 ára
Menntun: Lyfjafræðingur og MBA
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
57
83
0
7/
2
01
1
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
• Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair.
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
SAGA CLASS