Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 8
8 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Kjarnafæðis.
– hefur vaxið og dafnað á 25 ára starfstíma sínum
KJARNAFÆÐI
Fyrirtækið Kjarnafæði fagnaði fyrr á þessu ári 25 ára afmæli sínu en það var stofnað í mars árið
1985 af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum.
Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá því bræðurnir hófu fram leiðslu á pítsum og hrásalati í litlu húsnæði hefur starfseminni vaxið fiskur um hrygg, framleiðslan er afar fjölbreytt og fer fram víða um land og starfsfólkið er um 120 talsins.
Miklar annir hafa sett svip sinn á starfsemina vikurnar fyrir jól, líkt og
búast má við hjá svo öflugu fyrirtæki í framleiðslu matvara.
„Hér hefur allt verið á fullu undanfarnar vikur, við byrjum að undir
búa jólatörnina í lok október og svo stigmagnast þetta eftir því sem nær
dregur jólum,“ segir Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Kjarna fæðis.
Mikil sala er jafnan á hangikjöti, hamborgarhrygg og öðru hefðbundnu
jólakjöti og þá er einnig mikið um að vera við að útbúa jólagjafakörfur
þar sem finna má margvísleg matvæli sem tengj ast jólahaldi.
Jólagjafir sem koma sér vel
„Við tókum eftir því strax og kreppan skall á að eftirspurnin óx
mikið og sala á jólagjafakörfum frá okkur jókst verulega og hefur
farið vaxandi. Það er greinilegt að fyrirtæki leggja nú áherslu á að
gefa starfsfólki sínu eitthvað nytsamlegt og þá koma körfur af þessu
Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri
Kjarnafæðis, segir að eftir að kreppan
skall á hafi sala á jólagjafakörfum frá
fyrirtækinu aukist umtalsvert. Greini
legt sé að fyrirtæki vilji gefa starfs fólki
sínu jólagjafir sem komi að gagni.