Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 43
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 43
S T J Ó R N U N
til þess að fyrirtæki breytist úr fínu í fram
úr skarandi. Aðrir þættir sem Collins og
félagar fundu í rannsókn sinni voru:
Fimmta stigs leiðtogar hófu umbreytinga
ferilinn með því að ráða rétta fólkið (They
got the right people on the bus) til fyrir
tæk isins, en ráku það sem passaði ekki inn
í myndina. Þar á eftir fóru þeir út í stefnu
mótun skipulagsheildarinnar.
Stockdalemótsögnin er kennd við James
Stockdale, fyrrverandi bandarískan herm
ann sem barðist í Víetnam. Hann lifði af
sjö ára fangabúðadvöl hjá Víetkong. Allan
tímann hafði hann ákveðna mótsögn í
huga. Líf hans gat annars vegar ekki orðið
verra, hins vegar myndi það lagast einn
dag inn og verða ágætt. Starfsfólk í fínt –
framúrskarandifyrirtækjum horfðist í augu
við skelfilegar staðreyndir líðandi stundar
á sama tíma og það trúði því að allt myndi
lagast einn daginn. Það eru því staðreyndin
og vonin sem takast í hendur í Stockdale
mót sögninni.
Umbreytingin átti sér ekki stað í einu
stóru stökki. Ferillinn var líkastur þungu
kast hjóli í gufuvél sem á að halda bullunni
í henni á samfelldri hreyfingu. Í fyrstu
snerist kasthjólið aðeins einn hring, en með
stöðugu erfiði fór það tvo hringi, síðan
fimm, þá tíu og svo byggðist upp meiri
skrið þungi þar til kasthjólið fór á mikinn
og stöðugan hraða.
Heimspekingurinn Isaiah Berlin sagði
eitt sinn dæmisögu þar sem hann lýsti
tvenns konar afstöðu til lífsins. Ref ur
inn veit lítið um marga hluti, en brodd
gölturinn veit mikið um einn hlut.
Refurinn er flókinn en broddgölturinn
einfaldur. Broddgölturinn vinnur. Collins
og félagar segja að rannsóknir þeirra sýni
að tímamótaskref krefjist einfalds brodd
galtarskilnings. Á hvaða sviði getur við
kom andi fyrirtæki skarað fram úr? Hvernig
virka fjármál þess best? Hvað vekur brenn
andi áhuga starfsmanna á fyrirtækinu?
Tíma mótaskref eru stigin þegar maður
hefur broddgaltarhugmyndafræðina á
hreinu, verður marksækinn og sjálfum sér
sam kvæmur og ekkert annað kemst að.
Fín – framúrskarandi fyrirtæki áttu
mót sagnakennd samskipti við tæknina.
Annars vegar forðuðust þau að taka upp
nýja tækni um leið og hún kom fram á
sjónar sviðið, hins vegar voru þau frum
kvöðlar á sviði ákveðinnar tækni, fjárfestu í
henni. Það var í samræmi við brodd galtar
hugmyndafræðina.
Fín – framúrskarandi fyrirtæki áttu það
sameiginlegt að búa yfir öguðu starfsfólki,
agaðri hugsun og framkvæmd. Þegar agaðir
starfsmenn eru til staðar er minni þörf á
stigveldi og öguð hugsun leiðir til minna
skrif ræðis. Öguð framkvæmd kallar á minni
stjórnun.
Collins nefnir Abraham Lincoln til sög
unnar. Hann segir að egó þessa merka
forseta hafi aldrei þvælst fyrir honum í því
að uppfylla drauminn um mikla þjóð. Á
sama hátt hafi egó þessara fimmta stigs
leiðtoga ekki staðið í veginum fyrir því að
fyrirtæki þeirra yrðu farsæl.
Einkenni forstjóra í hinum ellefu fyrirtækjum
l Þeir forðuðust kastljós fjölmiðla,
en voru mjög einbeittir í því að byggja
upp fyrirtæki sem skiluði árangri, sem og
einstökum hagnaði.
l Þeir beindu allri orku sinni að því að
auka veg fyrirtækisins.
Þeir notuðu ekki einhverja flotta og fína
titla.
l Þeir héldu ró sinni á krepputímum,
montuðu sig aldrei og öxluðu ábyrgð á
röngum ákvörðunum.
l Þeir voru kurteisir og sýndu mikla
háttvísi. Þeir gáfu tóninn innan virtra
skipulagsheilda sinna.
l Þeir löðuðu að sér rétta fólkið og
mynduðu hópa starfsmanna sem skiluðu
framúrskarandi frammistöðu.
Fimmta stigs leiðtogar eru annars konar
en dæmigerðir leiðtogar skipulagsheilda. Á
níunda áratug síðustu aldar var það almenn
hegðun meðal leiðtoga að þeir reyndu að
komast í sjónvarpið. Þetta voru oft leið
togar með persónutöfra sem hugsuðu meira
um eigin upphefð og upphafningu en vel
gengni fyrirtækja sinna. Jeff Skilling hjá
Enron er dæmi um einn slíkan.
Collins segir að því miður séu stjórnar
menn fyrirtækja enn að leita að leiðtogum
og forstjórum með útgeislun í stað fimmta
stigs leiðtoga. Hann segir að þeir hafi
ekkert lært af sögunni.
Bandaríski fræðimaðurinn Jim Collins.
Það sem þessi fyrirtæki áttu sam
eiginlegt var það sem Collins og
félagar nefndu „fimmta stigs
forystu“ (Level 5 Leader ship).
Mikilvægasta atriðið í farsæld
þessara ellefu fyrirtækja er
þetta einstaka sambland af
auðmýkt og járnvilja sem
leiðtogarnir búa yfir.