Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
Vantar fólk
Davíð Lúðvíksson hjá Samtökum iðnaðarins segir að skortur
á mann afla hamli vexti þrátt fyrir atvinnuleysi. Þó bæti úr að
fyrirtæki eins og CCP hafi byrjað að flytja inn sérmenntað fólk.
Útflutningstekjur upp á 11,5 milljarða eru 2-3 prósent af því sem
lands menn afla með útflutningi. Leikir eru með öðrum orð um
um talsverð útflutningsgrein þótt ekki skáki þeir fiski og áli.
Reiknað hefur verið út að stóriðjan skilji eftir um 70 milljarða á ári.
Leikjagerðin er þó frábrugðin mörgum öðrum iðngreinum í
því að viðbótarkostnaður við hvern nýjan viðskiptavin er nær
enginn. Hafi menn á annað borð komið leiknum á koppinn
getur hann með vin sældum skilað miklum tekjum. Málið er
að falla á rétta syllu þegar menn velja sér viðfangsefni.
Það kemur á óvart í samtölum við stjórnendur leikjafyrirtækjanna
að gjald eyrishöftin eru til meiri vandræða í utanríkisviðskiptum en
ætla mætti. Höftin eru hugsuð til að hindra fjárflótta úr landi og
gengis fall vegna vantrúar á krónuna.
Genginu er haldið uppi með takmörkunum á flutningi fjár úr
landi en höftin virðast virka í báðar áttir þótt svo eigi ekki að vera.
Sam kvæmt upplýsingum frá Seðlabanka eiga engin formleg höft
að vera á flutningi gjaldeyris til landsins og rafrænum greiðsl um.
Höft í báðar áttir
Framkvæmdastjórar fyrirtækjanna verða hins vegar áþreif-
anlega varir við stirðleika og vantrú erlendis vegna gjaldeyris-
haft anna. Fjárfestar forðast landið af ótta við að fé þeirra lokist
inni og greiðslumiðlanir halda að ekki megi senda peninga
rafrænt til Íslands.
„Þetta kemur auðvitað illa við leikjafyrirtækin því þau fá
sínar tekjur nær undantekningarlaust í gjaldeyri,“ segir Jónas
Björgvin Antons son hjá Gogogic.
Rafræn greiðslukerfi eins og til dæmis PayPal virka ekki. Þó er
al gengast að nota PayPal á lágar upphæðir eins og áskrift að
leikjum.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, sem er lang-
stærsta fyrirtækið í greininni, tekur undir þetta: „Gjald eyrishöftin
eru hræðileg að öllu leyti og draga verulegan mátt úr út flutn-
ings fyrirtækjum á marga vegu,“ segir Hilmar. „Tjónið sem
þetta hefur valdið verður líklega aldrei metið að fullu.“
Hjá Samtökum iðnaðarins er einnig fullyrt að gjaldeyrishöftin
ásamt skorti á sérhæfðu starfsfólki dragi helst úr vaxtarmöguleikum
hjá fram leiðendum leikjanna.
CCP er skammstöfun fyrir „Crowd Control Productions“ og vísar til þess að fyrirtækið fæst við fjölþátttökuleiki. Þetta er fyrirtæki sem malar gull. Það var með um 6,8 milljarða í tekjur á síðasta ári og yfir 800 milljónir í hagnað.
Þetta var í upphafi draumur nokkurra ungra manna árið 1997 og
þeir gáfust ekki upp. Upphaflega voru það Reynir Harðarson, Ívar
Kristj ánsson og Þórólfur Beck sem hófu þessa vinnu við EVE-Online.
Undirbúningur tók fjögur ár. Það þurfti að hanna leikinn og það þurfti
að afla fjár til vinnunnar meðan tekjur voru engar.
Það kemur á óvart í samtölum við
stjórnendur leikjafyrirtækjanna
að gjaldeyrishöftin eru til meiri
vandræða í utanríkisviðskiptum en
ætla mætti. Höftin eru hugsuð til að
hindra fjárflótta úr landi og gengisfall
vegna vantrúar á krónuna.
Sagan á bak við CCP hófst fyrir um tólf árum þegar hugmynd
kviknaði um að búa til tölvuleik á netinu þar sem margir spil
uðu saman um langan tíma. Fjöldi þátttakenda væri ótak mark
aður og leiknum þyrfti aldrei að ljúka.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.
EVE-ONLINE
MALAR GULL
N E T L E I K I R