Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
MJÖG
HELG STUND
Hvað aðfangadag varðar segist hann fara snemma af stað til að syngja fyrir aldraða á elliheimilum. Þá er hann vanur að syngja í kirkjum á aðfanga dags kvöld.„Foreldrar mínir koma í mat á aðfangadagskvöld en við náum ekki að byrja að borða fyrr en um
níuleytið; svona er að vera söngvari! Ég byrja að undirbúa jóla mat
inn á Þorláksmessu en á aðfangadagskvöld borðar fjölskyldan svo
kall aða „beinlausa fugla“ sem er niðurskorið lambalæri, marínerað í
sólarhring með svínaspekki. Jólaguðspjallið er alltaf lesið á aðfanga
dags kvöld, síðan syngjum við jólasálma sem endar á Heims um ból,
tökum upp pakkana og borðum svo desert, Tobleroneís, sem konan
mín, Íris Björk, er snillingur í að búa til.“
Þegar Jóhann Friðgeir er spurður hvað jólin séu í huga hans segir
hann: „Af því að ég er trúaður þá er þetta mjög helg stund og hátíð
legir dagar. Þetta er sá árstími sem fjölskyldan nær að eyða saman,
stund um með fjölskylduboðum og vaninn er líka að fara í spilaboð
þar sem mæta rúmlega fimmtíu manns og spiluð er félagsvist.“ Jó hann
Friðgeir segist halda veislu og partí á gamlárskvöld þar sem vinir,
vandamenn og ættingjar mæta. „Bílskúrinn troðinn af skot kök um
og rakettum og svo skálar hópurinn saman þegar nýárið er gengið
í garð.“
Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenórsöngvari
syngur á fjölmörgum Frostrósatónleikum
fyrir þessi jól auk þess að koma fram í
mörgum kirkjum í kringum jólin.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson.
„Af því að ég er trúaður þá er þetta
mjög helg stund og hátíðlegir dagar.“
TÖFRARNIR OG TÓNLISTIN
JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON TENÓRSÖNGVARI
í textanum um Jóhann Friðgeir kemur fram að hann muni koma fram á
rúmlega 30 tónleikum Frostrósa. Hins vegar sá ég á heimasíðunni,
frostrosir,.is, að tæplega 30 tónleikar verði haldnir!!! Gætir þú
breytt þessu - orðað þetta á annan hátt??? (Til dæmis að hann komi
fram á fjölda Frostrósartónleikum eða einfaldlega að hann komi fram á
tónleikum Frostrósa )