Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
S T J Ó R N U N
Bandaríski fræðimaðurinn Jim Collins sendi frá sér bókina Good to Great (fínt til framúrskarandi) árið 2001. Hún hefur vakið mikla at
hygli innan stjórnunarfræðanna og vekur
enn mikið umtal.
Collins og aðstoðarmenn hans (22 tals
ins) vörðu fimm árum í að rannsaka
1.435 fyrirtæki sem áttu sæti á Fortune
500listanum á tuttuga ára tímabili frá
19651995. Rannsóknarspurningin fjall aði
um hvort góð fyrirtæki gætu orðið framúr
skarandi fyrirtæki. Ef svo væri, hvernig gæti
það átt sér stað?
Collins og félagar leituðu svara við rann
sóknar spurningunni með því að skoða sér
staklega fyrirtæki sem höfðu breyst frá því
að vera góð fyrirtæki yfir í það að verða fram
úrskarandi, og viðhaldið þeirri stöðu sinni.
Það voru aðeins ellefu fyrirtæki af öllum
þessum fjölda sem stóðust umræddar rann
sóknarforsendur, enda sköruðu þau fram úr
öllum hinum og skiluðu einstökum hagnaði.
Collins nefnir þessi ellefu fyrirtæki „fín –
framúrskarandi“ (good to great).
Það sem þessi fyrirtæki áttu sameiginlegt
var það sem Collins og félagar nefndu
„fimmta stigs forystu“ (Level 5 Leadership).
Fimmta stigs leiðtoginn situr efst í stig
skiptu kerfi. Þar fyrir neðan eru fjögur lög.
Hann umbreytir fyrirtækinu úr því að vera
fínt yfir í að verða framúrskarandi. Stig
skipt ingin er eftirfarandi:
Fimmta stig – Forstjórinn/leiðtoginn
byggir upp framúrskarandi fyrirtæki sem
heldur stöðu sinni vegna þess mótsagna
kennda samblands auðmýktar og faglegs
vilja sem hann býr yfir.
Fjórða stig – Áhrifamikill leiðtogi sem
hvetur starfsmenn til að leita skýrrar fram
tíðarsýnar og örvar þá til að setja sér háleit
frammistöðumarkmið.
Þriðja stig – Hæfur stjórnandi virkjar
starfsmenn og aðrar auðlindir skipulags
heildar í leit að fyrirfram ákveðnum mark
miðum.
Annað stig – Liðsmaður sem leggur fram
sinn skerf í framkvæmd markmiða hópsins.
Hann vinnur vel í liðsvinnu.
Fyrsta stig – Mjög hæfur einstaklingur
sem leggur fram sinn skerf til skipulags heild ar
með hæfileikum sínum, þekkingu og færni.
Auðmýkt þessara fimmta stigs leiðtoga
byggist á því að sýna undirmönnum virð
ingu og traust. Metnaðurinn er mikill fyrir
hönd skipulagsheildarinnar. Þeir eru dug
legir að deila verkefnum til annarra. Þegar
vel gengur hjá fimmta stigs leiðtogum horfa
þeir út um gluggann og finna þar skýringar
á velgengni fyrirtækja sinna. Þegar illa árar
líta þeir gjarnan í spegilinn og sjá þar það
sem þeir vilja bæta. Mikilvægasta atriðið í
farsæld þessara ellefu fyrirtækja er þetta ein
staka sambland af auðmýkt og járnvilja sem
leiðtogarnir búa yfir.
Fimmta stigs forystan er ekki eini grund
vallarþátturinn sem þarf að vera fyrir hendi
Collins og aðstoðarmenn hans
(22 talsins) vörðu fimm árum
í að rannsaka 1.435 fyrirtæki
sem áttu sæti á Fortune
500-listanum á tuttuga ára
tímabili frá 1965-1995.
Fimmta stigs forysta:
TEXTI: BJARNI ÞÓR BJARNASON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Collins og aðstoðarmenn hans vörðu fimm árum í að rannsaka 1.435
fyrirtæki sem áttu sæti á Fortune 500-listanum á tuttuga ára tímabili
frá 1965-1995. Aðeins ellefu þessara fyrirtækja voru skildgreind sem
framúrskarandi fyrirtæki. Mikilvægasta atriðið í farsæld þessara ellefu
fyrirtækja er þetta einstaka sam bland af auðmýkt og járnvilja sem leið-
togarnir búa yfir.
Greinarhöfundur,
Bjarni Þór
Bjarnas on, er
prestur og M.Sc.
í mannauðs-
stjórnun.