Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 65
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 65
ÞÁ FYRST BRYNNI
ÉG MÚSUM
Svo nefnir hann glögg á aðventunni og að eiginkona sín, Sigurjóna Sverrisdóttir, baki smákökur. „Við erum í góðum húmor og hlustum gjarnan á klassíska kirkju og jólatónlist eins og hún gerist best.“ Kristján segir að venjan sé að sjóða hangikjöt á Þorláksmessu. „Siðurinn er nú sá bestur að
þykja vænt hverju um annað og vera saman.
Ítalir borða yfirleitt seint á aðfangadagskvöld en margir fara í mið
næturmessu. Þá er yfirleitt borðaður fiskur, jafnvel saltfiskur, og
eru margir með lardo; hamsatólg. Ein af þeim ítölsku hefðum sem við
höf um tileinkað okkur er ítalska jólakakan, panettone, sem er alltaf í
eftirrétt hjá okkur á aðfangadagskvöld en Ítalir drekka mjög oft kampa
vín með kökunni.“
Kristján og fjölskylda hans borðuðu yfirleitt hamborgarhrygg á að fanga
dagskvöld á Ítalíu og voru alltaf með hangikjöt á jóladag. „Það er gott að
hafa eitthvað létt á Þorláksmessukvöld því síðan kýlir maður sig út af
kjöti og tertum dagana á eftir.“ Í forrétt á aðfangadag er yfirleitt grill aður
humar. „Við erum mjög opin fyrir jólamatnum, höfum haft kalkún,
nautasteik eða hamborgarhrygg. Aðalmálið er að allir séu sáttir.“
Kristján og fjölskylda hans fluttu til Íslands í fyrra og gerir hann
ráð fyrir að boðið verði upp á hreindýrakjöt á aðfangadagskvöld.
Tenórinn segir að fjölskylduformið hafi breyst en hann á fjögur
barnabörn. „Jólin eru náttúrlega hátíð barnanna í mínum huga og
mér finnst yndislegt að hafa það þannig. Ég álít að sagan um Jesú
Krist sé að miklu leyti búin til en ég trúi á Guð almáttugan.“
Kristján segist koma fram á um tíu tónleikum á aðventunni. „Þegar
ég bjó á Ítalíu söng ég stundum á aðfangadag og gamlárskvöld.“
Uppáhaldsjólalagið? „Heims um ból. Það er engin spurning. Þá fyrst
brynni ég músum og finn tilfinninguna sem jólin kalla á.“
Kristján Jóhannsson tenórsöngvari bjó á Ítalíu í 35
ár og segir hann að lögð hafi verið áhersla á að
halda í íslenskar hefðir svo sem hvað
laufabrauð varðar.
Kristján Jóhannsson.
„Siðurinn er nú sá bestur að þykja vænt
hverju um annað og vera saman.“
TÖFRARNIR OG TÓNLISTIN
KRISTJÁN JÓHANNSSON TENÓRSÖNGVARISIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONA
Kristján með barnabarni sínu, Þóreyju Ingvarsdóttur.
Kristján og Sigurjóna með tvíbur-
ana og barnabörnin Kristján og Völu
Ingvarsbörn.
Kristján og nafni hans
Kristján Ingvarsson.