Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYND: GEIR ÓLAFSSON
Fólk
BÁRA SIGURÐARDÓTTIR
mannauðsstjóri Termu ehf
Bára Sigurðardóttir:
„Fjórða barnabarnið var
að fæðast fyrir fáeinum
dögum. Komnar eru tvær
stúlkur og tveir drengir.
Þetta eru augasteinar
ömmu sinnar og ég fæ
aldrei nóg af samverunni
með þeim.“
É
g hef starfað sem mann auðs-
stjóri hjá snyrtivöru heild versl-
un inni Termu ehf. síðan árið
2007. Áður hafði ég starfað við
endurskoðun í um 18 ár, síðast
hjá endurskoðunarskrifstofunni Deloitte.
Terma er eitt af stærstu fyrirtækjunum í inn-
flutningi á snyrtivörum, flytur inn ellefu þekkt
snyrtivörumerki, og hefur verið starfandi
síðan 1983. Fyrirtækið byggist á traustum
grunni og þótt erfiðleikar hafi komið upp
við efnahagshrunið og gjaldeyrishöftin sem
voru í gangi horfum við nú björtum augum til
framtíðarinnar. Ég lít til baka á þessi ár frá
hruni sem mjög lærdómsrík og þroskandi
fyrir mig.
Starf mitt hjá Termu snýst um starfs menn-
ina, en auk þess sé ég um samskipti við
Fríhöfnina og er líka að vinna ýmsar tölu-
legar upplýsingar. Þetta er fjölbreytt og mjög
skemmtilegt starf og gaman að mæta til
vinnu á hverjum degi þar sem engir tveir
dagar eru eins. Nú er jólavertíðin framundan
og nóg að gera.“
Frítíma sínum ver Bára með fjölskyldunni
í göngutúrum um Fossvogsdal og í félags-
starfi fyrir Stjórnvísi sem er stærsta stjórn-
unarfélagið á Íslandi. „Hér áður fyrr snerust
mín félagsstörf um börnin í skólanum þeirra
eða Tennisfélagi Kópavogs. Ég kynntist
Stjórn vísi þegar ég var í mastersnámi í
Háskóla Íslands. Í framhaldinu fór ég að
sækja þar faghópafundi í mannauðsstjórnun
og varð virk í þeim hópi. Var þar í stjórn
og eitt ár formaður, en síðastliðin þrjú ár
hef ég verið í aðalstjórn félagsins og tvö
síðustu sem varaformaður. Félagið hjálpar
meðlimum að fylgjast með straumum og
stefnum og hvað önnur fyrirtæki eru að
gera, þannig að þeir þurfi ekki stanslaust
að vera að finna upp hjólið. Tengslanetið er
tvímælalaust einn af kostum félagsins, sem
og að þetta er ódýrasta símenntun sem völ
er á.
Talandi um fjölskylduna, þá var fjórða
barnabarnið að fæðast fyrir fáeinum dögum.
Komnar eru tvær stúlkur og tveir drengir.
Þetta eru augasteinar ömmu sinnar og ég
fæ aldrei nóg af samverunni með þeim.
Þá er yngsta dóttir mín í háskólanámi
í Savannah State University í Georgíu í
Bandaríkjunum. Við hjónin fórum og heim-
sóttum hana í október sl. þegar hún varð
tvítug. Hún er að spila tennis fyrir þennan
skóla og er því á skólastyrk. Þarna valdi
hún sér aðeins annan menningarheim þar
sem 90% nemenda eru svört og hún upplifir
því að vera í minnihlutahópi. En þarna er
tekið mjög vel á móti henni, hún geislar af
hamingju og segir að þetta kenni sér að
vera ekki með fordóma gagnvart nokkrum
manni.
Lífið blasir því við mér sem fullt af tæki-
færum og það eina sem þarf til að sjá þau
er jákvætt viðhorf.“
Nafn: Bára Sigurðardóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík, 29. janúar 1956
Foreldrar: Sigurður Hafsteinn Konráðsson,
fv. deildarstjóri hjá Símanum, og Stella Þórdís
Guðjónsdóttir, fv. afgreiðsludama í Bókabúðinni
Laugavegi 100
Maki: Kristján O. Þorgeirsson,
sölufulltrúi hjá Á. Guðmundssyni
Börn: Atli, 32 ára, MS í viðskiptafræði, Stella Rún,
29 ára, BS í viðskiptafræði, Hafsteinn Dan, 26 ára,
mag. jur. í lögfræði, Sandra Dís, 20 ára,
nemi í Bandaríkjunum
Menntun: Cand. oecon. í viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands 1982. MA í mannauðsstjórnun
frá Háskóla Íslands 2004