Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
TÖFRARNIR OG TÓNLISTIN
KRISTJÁN JÓHANNSSON TENÓRSÖNGVARISIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONA
Í GUÐS
FRIÐI
Aðventan er minn uppáhaldstími þó svona mikið sé að gera. Það er nefnilega mjög gefandi að syngja tónlist tengda aðventunni. Mér finnst þetta mjög notaleg árstíð; um vafin kertaljósum og notalegheitum. Svo reynir maður að finna innri ró með sjálfum sér. Rykkorn hér og
þar eru ekki að þvælast fyrir mér.“
Þegar Diddú er spurð hvert sé hennar uppáhaldsjólalag segir hún:
„Lagið „Einmana á jólanótt“ sem Michael Jackson söng lítill gutti af
mikilli innlifun. Þetta er óskaplega fallegt lag.“
Hvað varðar undirbúninginn á heimilinu segist sópransöngkonan
búa til konfekt og piparkökur. „Ég hef látið af að baka margar sortir.
Undanfarin ár hefur því miður ekki gefist tími til að skrifa jólakort sem
mér finnst miður því það hefur alltaf verið svo stór hluti af aðventu
stemningunni hjá mér. Undanfarin ár hef ég leyst þann vanda með því
að senda jólakveðjur í útvarpið. Ég vona að ég nái að skrifa kortin í ár;
ég er allavega búin að kaupa jólakortin.“ Fjöldi korta: Um 200.
Diddú segir að eiginmaður sinn, Þorkell Jóelsson hornleikari, sjái
um að skreyta húsið að utan sem innan og trén í garðinum. „Hann
og dæturnar hafa alltaf skreytt jólatréð.“
Rjúpur eru að sögn söngkonunnar venjulega í matinn á aðfanga dags
kvöld hjá fjölskyldunni og býr Diddú alltaf til ís en hann er yfirleitt
ekki borðaður fyrr en á nýársdag þar sem hún segir fólk vera of satt á
aðfangadagskvöld. „Þetta er svolítið sérstök uppskrift. Ég fékk hana
þegar ég var við nám í London en þetta er ís sem fiðluleikarinn
frægi, Yehudi Menuhin, neytti á hátíðum. Uppskriftin er sérlega
margþætt; til dæmis möndlur, romm, súkkulaði, kaffi og marsipan.
Þetta er ótrúleg uppskrift.“
Diddú talar um að hún reyni að finna ró í sálinni. „Ég vona að fólk
nái að njóta aðventunnar og jólanna í Guðs friði.“
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona, Diddú,
segist koma fram á um tuttugu tónleikum á
aðventunni. Þar á meðal eru
tónleikar í London.
Sigrún Hjálmtýsdóttir.
„Ég vona að fólk nái að njóta
aðventunnar og jólanna í Guðs friði.“