Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 81
Fólk
INGI HEIÐAR BERGÞÓRSSON
þjónustustjóri hjá Hertz
Ingi Heiðar Bergþórsson:
„Við erum nýkomin úr
skemmtilegri sumar-
bústaðarferð þar sem
var tekið forskot á
jólagleðina, bakað,
föndrað og slakað á.“
É
g hef starfað í ferðamanna-
geir anum í 13 ár og frá apríl
sl. hef ég verið þjónustustjóri
hjá Hertz-bílaleigunni. Starfið,
sem er mjög fjölbreytt og
skemmti legt, snýst í stuttu máli um að
finna leiðir til að sameina krafta innan
fyrir tækisins og gera okkur að öflugri heild
með sterka þjón ustulund sem skilar sér
í betri þjónustu við viðskiptavini okkar.
Starfi mínu tilheyra einnig starfsmannamál,
flotastjórn, námskeiða hald og tölvumál ásamt
fjölmörg um skemmtilegum verkefnum. Nýir
eigendur komu að Hertz í mars á þessu ári
og hefur mikið gengið á; eldgos, fækkun
ferðamanna, bílamál og breytingar á niður-
fellingargjöldum sem hafa mikil áhrif á
rekstur bílaleigna á Íslandi.
En öflugur eigendahópur og frábært starfs-
fólk innan Hertz er staðráðið í að snúa
við blaðinu og blása til sóknar. Við erum í
mikilli innri vinnu með það að markmiði að
vera tilbúin í árið 2011 og þar mun þjón ustan
og ferlavinna gegna mikilvægu hlutverki.
Ég tel að við í ferðaþjónustunni megum
ekki missa dampinn þrátt fyrir kreppufréttir
þar sem svartsýni og depurð blasa við
daglega (vantar jákvæðar fréttir inn á milli).
Maður heyrir hjá erlendum ferðamönnum
að þeir upplifi flotta náttúru en viðmótið
hjá okkur mætti vera betra. Við höfum
fengið ákveðinn skammt hjá Hertz og nú
er verið að snúa við blaðinu með reglulegri
þjónustukönnun hér heima og einnig vinna í
gríðarlega skemmtilegu verkefni sem Hertz
International vinnur að.“
Ingi Heiðar er kvæntur Ósk Guðmunds-
dótt ur og eiga þau tvö börn, Markús Heiðar
og Matthildi, og býr fjölskyldan í Hafnarfirði.
„Mottó fjölskyldunnar er „Happiness is a
mood, not a destination“. Átján ára gamall
byrjaði ég að vinna hjá bílaleigunni Avis á
Keflavíkurflugvelli eða 1997. Á þessum
árum stundaði ég nám í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja með vinnu, var í vélstjóranámi
ásamt því að vera á íþróttafræðibraut. Síðar
tók ég rekstrar- og fjármálanám hjá HR.
Einnig hef ég hef sótt mörg námskeið á
sviði þjónustu og verkefnastjórnunar. Fyrir
tveimur árum stofnaði ég Trip ehf. sem er
upplýsinga- og bókunarþjónusta fyrir erlenda
ferðamenn og hefur aðsetur á Laugavegi.
Í dag sér bróðir minn um daglegan rekstur
fyrirtækisins og frúin um bókhald og
tilfallandi verkefni.
Áhugamálin eru íþróttir, útivist, ferðalög
og stang- og skotveiði. Ekki má líða ár
án þess að renna fyrir lax og leita uppi
rjúpur. Við höfum mjög gaman af því að
ferðast í fjölskyldunni og gerum mikið af
því. Við erum nýkomin úr skemmtilegri
sumarbústaðarferð þar sem var tekið
forskot á jólagleðina, bakað, föndrað og
slakað á. Á sumrin er fellihýsið hengt á og
brunað af stað þegar tími gefst. Íslensk
náttúra er svo ótrúleg.“
Nafn: Ingi Heiðar Bergþórsson
Fæðingarstaður: Reykjavík, 9. júní 1978
Foreldrar: Hulda María Þorbjörnsdóttir
og Bergþór Heiðar Sigfússon
Maki: Ósk Guðmundsdóttir
Börn: Markús Heiðar, 5 ára, og
Matthildur, 3 ára
Menntun: Grunnskóli, Fjölbrautaskóli
Suðurnesja, vélstjórn, rekstrar- og
fjármálanám hjá HR