Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 58
58 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
Hvergi í hinni stóru Ameríku sér maður betur hve maðurinn er lítill eða stór tækur og í Appalachiafjöllum í VesturVirginíu, hjarta kolaiðnaðarins í þessu víðfeðma landi. Á
hverjum degi eru notaðar 3,5 milljónir punda af sprengiefni til þess
að losa um kol.
Þarna hefur í áratugi farið fram það sem er kallað upp á engilsaxnesku
„Mountain Top Removal“, en heilu fjöllin hafa verið sléttuð. Nú er svo
komið að 500 fjöll eru horfin, hafa verið mokuð niður í árfarvegi, og
fyllt hefur verið upp í 3.200 kílómetra af dölum.
Ár hverfa, landslagið umbreytist. Þessu fylgir mikið umrót, mikið af
eiturefnum fellur til í stað þess að vera föst í fjalli.
Kolalögin liggja ekki eins og víðast hvar djúpt í jörðu. Hér liggja þau
hátt uppi í jarð lögunum – þar sem auð velt og ódýrt er að nálgast þau.
Þetta er kallað mesta umhverfisslys Bandaríkjanna. Kanawahasýsla
í VesturVirginíu er á lista yfir tíu menguðustu staði jarðar. Meðan
kol eru 23% af þeirri orku sem notuð er í Bandaríkjunum eru ekki
miklar líkur á að þetta breytist.
Það er barist hart gegn þessum umhverfisspjöllum um þver og endi
löng Bandaríkin, alls staðar nema í VesturVirginíu, í hjarta kola
iðnaðarins. Þarna er fólk þakklátt fyrir að hafa vinnu. Það eru ekki
mörg önnur tækifæri í þessu fátæka ríki.
Í Kanawhasýslu gengur allt út á kol. Ríkishöfuðborgin er Charlestone.
Kolatrukkar, kolabátar, kolanámur, kolabingir, kolanáma fólk og kola
fyrirtæki.
Íbúarnir skilja ekki þessa andstöðu við að slétta fjall og annað. Eins
og einn kola kallinn sagði við mig: „Þú sérð þetta ekki, námasvæðin eru
lokuð, það kemst enginn að, það sér þetta enginn. Fyrir okkur eru kol
gull. Svart gull, sem knýr Ame ríku áfram.“
Í Kanawhasýslu gengur allt út á kol. Ríkishöfuðborgin er Charlestone. Kola
trukkar, kolabátar, kolanámur, kolabingir, kolanámafólk og kolafyrirtæki.