Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 79
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 79
GLEÐI OG
FRIÐUR
Þá segist hún vera búin að setja upp jólagluggatjöldin fyrir eldhúsgluggann og aðventuljósin í gluggana. „Þetta hef ég gert allan minn búskap eða í 28 ár.“Elín Ósk og sonur hennar eru vön því á aðventunni að búa til jólaísinn sem settur er í ýmiss konar form.
Elín Ósk segist syngja fyrir heimilisfólk á elliheimilinu Grund á
aðfanga dag þar sem eiginmaður hennar er organisti. Stundum
komi fram hópar með þeim og nefnir hún félaga úr Óperukór
Hafnarfjarðar en hún hefur verið aðalstjórnandi hans í tíu ár. „Þetta
er yndisleg stund og þá finnst mér jólin vera komin.“ Þá hefur hún
oft sungið við miðnætur messu í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu.
Hamborgarhryggur er á boðstólum á heimili Elínar Óskar á aðfanga
dagskvöld. „Hann er forsoðinn en þar sem ég syng á Grund og kem
heim um klukkan fimm þá er hann tilbúinn til að hægt sé að setja á
hann sykurgljáa og beint í ofninn.“ Heimatilbúni jólaísinn er að sögn
söng konunnar í eftirrétt á aðfangadagskvöld. Hann er venju lega borð
aður með heitri marssúkkulaðisósu og stundum eru ávextir með.
Elín Ósk útbýr líka rabarbarasveskjutriffli sem hún býður upp á
á öðrum dögum um hátíðirnar en hún tínir rabarbara úti í garði.
Sérrí legnar makkarónur eru í botninum, þá kemur rabarbarasveskju
maukið, síðan þeyttur vanillubúðingur og að lokum þeyttur rjómi.
„Síðan set ég súkku laðispæni yfir allt og kannski jarðarber ef ég á þau.
Þetta er algjört nammi!“
Jólaboð eru fastur liður og segir Elín Ósk að á jóladag sé vaninn
að hitta ættingja, borða hangikjöt og spila vist. „Ég ólst upp við það
að spila vist heima hjá mömmu og pabba þegar stórfjölskyldan kom
saman á jóladag á Hvolsvelli, en þaðan er ég ættuð, og var jafnvel
spilað á fleiru en einu borði.“
Þegar Elín Ósk er spurð hvers hún óskar sér í jólapakkann segir
hún: „Gleði og friðar og að við hugsum fallega hvert til annars.“
„Ég hef gaman af því að baka og þarf að fá
kökuilminn í hús,“ segir Elín Ósk Óskarsdóttir
sópransöngkona sem er vön að bjóða upp á
piparkökur og heitt súkkulaði fyrsta
sunnudag í aðventu.
Elín Ósk Óskarsdóttir.
„Ég hef gaman af því að baka og þarf
að fá kökuilminn í hús.“
TÖFRARNIR OG TÓNLISTIN
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONAÓLÖF KOLBRÚN HARÐARDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONA