Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0
FJÖGUR
MATARBOÐ
Ég syng á einhverjum jólakvöldum þar að auki.“ Ólöf er í Zontaklúbbi Reykjavíkur sem hún segir berjast fyrir framgangi kvenna hér heima og annars staðar í heiminum, aðallega þriðja heiminum, og á jólakvöldi sínu á aðventunni stendur klúbburinn fyrir fjáröflun. „Fyrir
það er nauðsynlegt að undirbúa eitthvað svo ég baka fyrir það.“
Hvað heimilið varðar segist Ólöf Kolbrún gæta þess að búið sé að
þrífa og setja upp ljós í glugga fyrsta sunnudag í aðventu. „Svo bætum
við við jólaskrauti smátt og smátt eftir því sem líður á aðventuna.
Laufabrauðsdagur fjölskyldunnar var í þetta skiptið annan sunnudag
í aðventu en hann er ómissandi. Þá er laufabrauðið skorið á ótrúlega
listrænan hátt af ýmsum úr fjölskyldunni, hlustað á gömlu jólalögin og
þess notið að vera saman allan daginn. Í lok dags er svo borðað hangi
kjöt á gamla mátann, það er kjötbitar á beini með uppstúfi, græn um
baunum og tilheyrandi.“
Uppáhaldsjólalagið? „Ó, helga nótt,“ segir Ólöf Kolbrún og bendir
á að sér finnist jólalegust þau lög sem hún hefur þekkt hvað lengst.
„Þar er Ó, kom Immanúel eitt af þeim ómissandi, enda dæmigert fyrir
að ventuna.“
Ólöf Kolbrún og eiginmaður hennar, Jón Stefánsson, organisti í Lang
holtskirkju, eru vön að kaupa hangikjöt „beint frá bónda“ að hausti. „Við
bjóðum upp á hangikjöt af fullorðnu, hrátt hangikjöt með piparrótarsósu
eða soðið hangikjöt á beini.“ Þess má geta að Ólöf Kolbrún segir þau
hjón yfirleitt halda fjögur matarboð yfir hátíðirnar. „Meðal rétta auk
hangikjöts eru rjúpur, svínasteik, hrein dýr og nautatunga með því viðbiti
sem tilheyrir.
Það er ómissandi að fara í kirkju um jólin, hlusta á söng og talað orð
auk þess að lifa sig inn í ómissandi jólastemninguna. Jólin eru fyrst
og fremst hátíð ljóssins og þess að gefa sig að ættingjum og vinum og
eiga með þeim notalegar samverustundir. Sem slík eru þau ómissandi
á löngum, dimmum vetri. Að þeim liðnum finnur maður fljótt hvað
munar mikið um hænufetið í átt að bjartari degi.“
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópransöngkona
og yfirkennari Söngskólans í Reykjavík,
kemur fram á tónleikum, Jólasöngvum Kórs
Langholtskirkju, síðustu helgina fyrir jól
ásamt fleiri söngvurum.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
„Jólin eru fyrst og fremst hátíð ljóssins
og þess að gefa sig að ættingjum og
vinum og eiga með þeim notalegar
samverustundir.“
GLEÐI OG
FRIÐUR
TÖFRARNIR OG TÓNLISTIN
ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONAÓLÖF KOLBRÚN HARÐARDÓTTIR SÓPRANSÖNGKONA
Hangikjötskvöldverður upp á gamla mátan.