Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 33
Vantaði dúkkulísuvef
Dúkkulísuleikir eru stafræn útgáfa af gömlu dúkkulísunum sem klipptar
voru út með skærum og nutu vinsælda áratugum saman. Nú hefur vefur
inn leyst pappír og skæri af hólmi.
Ekkert fjármagn þarf til að koma svona vef upp og hann hefur aldrei
verið auglýstur sérstaklega. Árið 2000 keypti Inga María lén og hefur
borgað fyrir hýsingu eftir það.
„Ég eyddi engu í hýsingu og forrit fyrstu tvö árin,“ segir Inga María.
„Hins vegar tekur þetta hrikalega mikinn tíma, sérstaklega að byrja
eins og ég gerði án nokkurrar þekkingar á forritun eða vefsmíði.“
Milljónir líta inn
Dress Up Games er tenglavefur. Aðgangur er að ótal síðum í gegn um
vefinn sem er eins konar miðstöð fyrir áhugafólk um dúkku lísur. Núna
koma milljónir notenda inn á vefinn á mánuði. Um helgar í haust hafa
flettingar farið yfir milljón á dag.
Umferð um vefinn byggist nú fyrst og fremst á því að stór hópur
þekkir hann og hann kemur upp í gegnum leitarvélar eins og Google.
Í fyrstu var vefurinn kynntur á öðrum síðum og Inga María segir að
það hafi hjálpað mikið í byrjun.
„Það er mikil umferð gegnum vefinn og síðueigendum þykir eðli
lega mikill fengur að því að fá sína tengla þarna inn,“ segir hún. „Ég
hef í mörg ár haft það þannig að það er mjög auðvelt að sækja um
að koma leik á síðuna. Fyrstu árin voru það mest lesendur sem sendu
mér ábendingar um leiki en núna eru það svo til eingöngu eigendur
leikjavefja sem vilja koma sínu efni að.“
Inga María á einnig sína eigin leiki á síðunni en forritar þá ekki sjálf.
„Þegar ég panta leiki þá er það allt frá því að panta ákveðið þema yfir
í að ákveða öll föt og heildarútlit leiksins,“ segir Inga María. „Þannig
að ég kem alltaf að einhverju leyti að hönnun leikj anna og birti að
meðaltali nýjan leik frá mér tvisvar í mánuði.“
Vefurinn auglýsir sig sjálfur að nokkru í gegnum leitarorð sem
líklegt er að fólk noti þegar það leitar uppi nýja afþreyingu á netinu.
„Ég reyni að missa mig ekki mikið í leitarorðafræðin,“ segir Inga María.
„Held að það geti orðið hálfgerð árátta hjá fólki. Auðvitað reynir
maður samt alltaf að nota lýsandi titla, bæði fyrir notendur og leitar
vélarnar.“
Eini starfsmaðurinn
Inga María er eini starfsmaður Dress Up Games en kaupir þá þjón
ustu sem hún sinnir ekki sjálf.
„Hingað til hef ég eingöngu keypt vinnu að utan og hef í gegnum
það komist í kynni við fólk frá öllum heimsálfum,“ segir Inga María.
„Mér er í raun alveg sama hvar fólk er í heiminum ef vinnan er góð.“
Sjálf er hún ekki lærð í forritun. „Ég lærði HTML þegar ég var að
byrja og hef svo lært annað sem ég þarf eftir hendinni,“ segir hún.
Hún segist ómögulega geta áætlað vinnutímann því vinnudagurinn
sé ekki alltaf heill og óslitinn.
„Ég get verið að hlaupa í eitthvað frá morgni til kvölds,“ segir Inga
María. „Ég gæti trúað að samtals væri þetta svona hefðbundinn vinnu
tími. Fyrstu árin notaði ég kvöld og helgar eins og ég hafði áhuga á og
nennu til, en síðar fór þetta að vera markvissara. Nú upp færi ég síðuna
alla virka daga, líka þótt ég sé í fríi, og er ekki lengur í annarri vinnu.“
Tekjurnar koma með sölu auglýsingapláss á vefnum. Hún er þó
ekki sjálf í auglýsingasölunni en leigir plássið til AdSenseauglýsinga
þjón ustunnar frá Google. Þau sjá svo um að fylla plássið með auglýs
ingum sem höfða til notenda Dress Up Games.
Mikil vinna
Og hún staðfestir að fréttir um hagnað af rekstri Dress Up Games
séu réttar: Rúmar 100 milljónir árið 2009.
Vefurinn er 12 ára gamall. Hvaða lærdóm má draga af reynslu þinni
til þessa?
„Það er vinnan. Ég vil alls ekki draga móðinn úr fólki en þetta er
mikil vinna,“ segir Inga María.
Hún segir að aðalmálið í sambandi við að hafa tekjur af vefnum sínum
sé að nógu margir hafi áhuga á að nota hann. Þá þarf efni og innihald
að vera gott og höfða til notenda.
„Það skiptir engu máli hvernig þú markaðssetur lélegan vef með efni
sem enginn hefur áhuga á, notendur láta kannski plata sig einu sinni inn
á vefinn en koma aldrei aftur,“ segir Inga María Guðmunds dóttir.
Dúkkulísuleikir eru stafræn útgáfa af gömlu dúkkulísunum sem klipptar voru út með skærum
og nutu vinsælda áratugum saman. Nú hefur vefurinn leyst pappír og skæri af hólmi.
Tekjurnar koma frá Google með sölu
auglý singa á vefnum. Inga er þó ekki
sjálf í auglý singa sölunni en leigir
plássið til Google.
N E T L E I K I R