Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 49
S T J Ó R N U N
LENGI LIFI BARNEY?
Auðlindasýn Jays B. Barneys
Auðlindasýnin, sem Jay B. Barney hefur átt
hvað ríkastan þátt í að þróa, leitar hins vegar
orsakanna innan fyrirtækisins, í auðlindum
þess og færni. Með auðlindum er átt við
efnis legar eignir (þar með talið þær eignir
sem koma fram í efnahagsreikningi) og
óefnislegar eignir. Þær síðarnefndu koma
alm ennt ekki fram í efnahagsreikningi, t.d.
virði vörumerkja, tengsl við viðskiptavini,
fyrir tækjabragur, rútínur, þekking og færni
starfs fólks. Þetta eru eignir sem fyrir tæki
nota til að hugsa upp og innleiða stefnu.
Ef auðlindir og færni fyrirtækisins eru
verðmætar og fágætar geta þau náð sam
keppnisforskoti og hagnast meira en meðal
talið í atvinnugreininni. Ef við bætist að það
sé erfitt (kostnaðarsamt) fyrir keppi nauta
að herma eftir þeim geta sum fyrirtæki náð
viðvarandi betri árangri en önnur.
Auðlindasýnin snýst fyrst og fremst um
að leggja mat á Sið og Við í SVÓT
greiningu, þ.e. styrkleika og veikleika, á
meðan atvinnuvegasýnin, t.d. fimm krafta
líkan Michaels E. Porters, snýr meira að
Óinu og Tinu (þ.e. ógnunum og tæki
færum).
Það takmarkar notagildi hefðbundinnar
SVÓTgreiningar, eins og henni virðist
yfirleitt vera beitt í íslenskum fyrirtækjum,
að atvinnuvegasýninni (og öðrum verk
fær um) er ekki beitt með skipulögðum
hætti til að fá fram tækifæri og ógnanir né
auðlindasýninni til að meta styrkleika og
veikleika eða hvort styrkleikarnir séu líkleg
uppspretta samkeppnisforskots og þar af
leiðandi meiri hagnaðar.
SVÓTgreiningar þar sem ofangreindu er
ekki beitt eru harla lítils virði.
Tengslin milli SVÓT, auðlindasýnar og
atvinnuvegasýnar
En hvort skiptir þá meira máli staðfærsla
fyrirtækjanna í atvinnugreininni eða
auðlindir þess og færni? Hvort skiptir
með öðrum orðið meira máli stjórnun
fyrir tækisins sem slíks eða að vera í réttu
atvinnu greininni? Hvort útskýrir meira af
breytileikanum í árangri fyrirtækja?
Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar
á þessu. Einungis tvær þær fyrstu (önnur
gerð 1985 og hin 1988) komust að þeirri
niðurstöðu að atvinnugreinin sem fyrir
tækið væri í hefði meiri áhrif á árangur
þess en auðlindir þess og færni. Allar aðrar
rann sóknir á þessu sem gerðar hafa verið
frá árinu 1988 hafa komist að því að þessu
sé öfugt farið. Auðlindir og færni fyrirtækja
útskýra að meðaltali 5,5 sinnum meira af
breytileikanum í árangri en atvinnugreinin!
1:0 fyrir Jay B. Barney!
Í rannsókn sem gerð var 2008 kom síðan
í ljós að meira en tvöfalt sterkari tengsl
eru á milli auðlinda/færni og árangurs ef
auðlindirnar og færnin eru verðmætar,
fágætar og erfitt að herma eftir þeim en ef
þær eru það ekki. Rannsóknin sýndi líka að
óefnislegar auðlindir og færni skipta meira
máli en efnislegar þegar árangur er annars
vegar.
Samkeppnishæfni þjóða
En hvað þá með samkeppnishæfni þjóða?
Hve miklu máli skiptir það umhverfi sem
fyrirtækin starfa í fyrir árangur þeirra?
Árið 1990 setti Micheal E. Porter fram þá
fullyrðingu að eini vitræni mælikvarðinn
á samkeppnishæfni þjóða væri framleiðni
þeirra, þ.e. þjóðartekjur á vinnustund (eða
einingu fjármagns).
Porter hélt því jafnframt fram að hagsæld
þjóða væri búin til en ekki fengin í arf (t.d.
náttúruauðlindir). Að lokum hélt hann því
fram að fyrirtæki öðluðust fyrst og fremst
Michael E. Porter
Michael E. Porter er prófessor við Harvard Business
School. Sérsvið hans eru stefnumótun fyrirtækja
og samkeppnishæfni þjóða og svæða. Meðal
þekktustu verka Porters eru bækurnar Competitive
Strategy (1980), Competitive Advantage (1985)
og Competitive Advantage of Nations (1990).
Meðal helstu framlaga Porters eru atvinnuvegasýn
hans (fimm krafta líkanið) og demantslíkanið/
klasakenningar (samkeppnishæfni þjóða).
En hvað þá með samkeppnishæfni þjóða? Árið 1990 setti Micheal
E. Porter fram þá fullyrðingu að eini vitræni mælikvarðinn á sam
keppnishæfni þjóða væri framleiðni þeirra, þ.e. þjóðartekjur á
vinnustund (eða einingu fjármagns).
Hvort skiptir meira máli stjórnun
fyrirtækisins sem slíks eða að
vera í réttu atvinnugreininni?
Tengslin milli SVÓT, auðlindasýnar og atvinnuvegasýnar.