Frjáls verslun - 01.10.2010, Side 21
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 21
Ævintýrið á bak við
Hamborgarafabrikkuna:
Ímark valdi þá Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson á Hamborgarafabrikkunni markaðsmenn
ársins nýlega. Þessir landsþekktu skemmtikraftar hafa sannað sig sem biss nes menn. Hamborgarafabrikkan
var opnuð í mars sl. og eftir fyrstu sex mánuðina höfðu þeir selt 180 þúsund hamborgara og gert fabrikkuna
að einum vinsælasta veitingastað landsins og svo til skuldlausan.
TEXTI: HRUND HAUKSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON OG KRISTINN MAGNÚSSON
Þeir urðu þjóðþekktir með þáttinn Popptíví en slógu fyrst almennilega í gegn hjá þjóðinni sem kynnar í Idol. Þeir kvöddu sjónvarpið og gerðust bankamenn um tíma. En í mars sl. opnuðu þeir Hamborgarafabrikkuna í Turn inum, Höfða torgi, ásamt Skúla Gunnari Sigfússyni,
eiganda Subway, og seldu 180 þúsund hamborgara fyrstu sex mánuðina
og gerðu stað inn að einum vinsælasta veitinga stað landsins.
Aldrei áður hefur veitingahús á Íslandi verið opnað með eins miklu
fyrir framplöggi. Þáttur þeirra á Stöð 2 undirbjó jarð veginn vel fyrir
opnun staðarins og það fór ekki fram hjá neinum að þeir væru að
opna nýjan veitingastað. Á undir búningstímanum voru þeir enn
fremur í viðtölum í blöðum og útvarpi.
Staðurinn sló strax í gegn. Biðraðir mynduðust. Salan hefur auð
veldað þeim að greiða upp fjárfestinguna. Þetta er vinsæll staður, líkt
og þeir gerðu Idol–stjörnuleitina að einum vinsælasta sjónvarps þætti
frá upphafi.
Leiðir þeirra Sigmars Vilhjálmssonar og Jóhannesar Ás björns sonar
lágu saman árið 1998. Þeir hafa allar götur síðan brallað ýmislegt.
Verið með þætti í útvarpi, sjónvarpi og sem skemmti kraftar.
Þeir eru ungir að árum. Sigmar er 33 ára, fæddur og upp alinn á
Egils stöðum. Jóhannes Ásbjörnsson er 31 árs, fæddur og uppalinn í
Reykja vík.
Sigmar er þriggja barna faðir og giftur Bryndísi Björgu Einars dóttur,
flugfreyju og framkvæmdastjóra. Jóhannes á tvær dætur með eigin
konu sinni Ólínu Jóhönnu Gísla dóttur, viðskiptafræðingi og fram
kvæmdastjóra.
HAMBORGARAR Á FYRSTU SEX MÁNUÐUNUM
Við reynum að mæta í Laugar á hverjum
morgni og skiptum tímanum jafnt á milli
brennslu og gufu. Það hressir líkama og sál og
er lykillinn að góðum degi.