Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 41

Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 41
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 41 B Æ K U R Hefðbundnar hugmyndir skoraðar á hólm Bókina skrifa tveir ungir menn, Jason Fried og David Heinemeier Hansson. Þeir reka saman fyrirtæki sem þróar og selur viðskiptahugbúnað. Eins og þeir segja í inngangi er bókin ekki byggð á kenningum eða rannsóknum heldur einfaldlega eigin reynslu af því hvað virkar og hvað ekki í rekstri. Þessir ungu menn hafa af ráðunum að dæma verið duglegir að skora hefðbundnar hugmyndir um rekstur og markaðssetningu á hólm og virðast hafa náð með því góðum árangri. Eitt ráða þeirra er að hafa augun opin fyrir hliðarafurðum sem tengj­ ast aðalafurðum fyrirtækisins og geta fært auknar tekjur. Það er ein­ mitt það sem þeir eru að gera með bókarútgáfunni, þar sem þeir setja eigin reynslu á bók sem setið hefur á metsölulistum, m.a. lista The New York Times. Líklega hefur hún fært þeim meiri tekjur og umfjöllun en þeir gerðu ráð fyrir í áætlunum sín­ um. Já, eða ekki áætlunum. Líkur eru á að þeir hafi ekki gert áætlun, því samkvæmt bókinni eru áætlanir ekkert annað en ágiskanir og því einskis nýtar! Auðlesið, einfalt og óhefðbundið Segja má að bókin henti þeim sem finna að þeir þurfa að endurskoða vinnubrögð og stíga upp úr hjólför­ unum. Vissulega er margt í bókinni sem einhverjum gæti fundist orka tví mælis og er óhefðbundið svo ekki sé meira sagt. Það er hins vegar ekki hægt annað en að hugsa ýmislegt þegar bókin er lesin, ekki síst vegna þess að þeir félagar taka mörg mjög trúverðug dæmi um fyrirtæki og einstaklinga, þekkta sem óþekkta, sem hafa ein­ mitt gert það sem þeir setja fram. Bókin er afskaplega auðlesin; stuttir kaflar, grípandi fyrirsagnir og hraður stíll. Þeir ná með sérstakri nálgun sinni að vekja áhuga lesandans og spenn ing fyrir því hvað kemur næst. Hvaða hefðbundnu vinnubrögð og hugmyndir ætla þeir að brjóta niður næst? Taktu áhættu Það er ljóst að margir standa frammi fyrir erfiðum aðstæðum í starfi og þurfa að finna nýjar leiðir til að tak­ ast á við ástandið. Bókin Rework er vel til þess fallin að kveikja hug­ myndir að nýjum nálgunum og breytt um vinnubrögðum. Einhverjir kunna að hugsa að hugmyndir bók­ arinnar séu of róttækar – og margar eru það vissulega – en það er klárt að með aðlögun gætu margar þeirra sparað fyrirtækjum háar fjárhæðir. Dæmi um það eru leiðbeiningar þeirra félaga um fundi sem þeir segja eitur í bókinni og kalla þá verstu truflun í starfi sem til er. Nýsköp­ un arhugsunin, sem er rauður þráður í gegnum bókina, mun eflaust líka kveikja nokkrar hugmyndir hjá les­ andanum, í það minnsta fá hann til að opna hugann gagnvart nýjum hugmyndum, sem er fyrsta skrefið. Síðast en ekki síst mun hún fullvissa les andann um að það borgar sig að taka þá áhættu að reyna eitthvað nýtt, því oft er það svo að við höfum litlu sem engu að tapa. Jason Fried og David Heinemeier. „Hér er ekkert slangur eða uppfyllingarefni, að eins hundruð afbragðs­ góðra, einfaldra ráða til að ná árangri.“ Höfundar setja bókina upp með því að slá fram stað ­ hæf ingum sem fá lesandann til að brjóta heil ann og oftar en ekki er fyrsta hugsunin: Hvaða vit leysa, hvað meina mennirnir með þessu! Í kjölfar stað hæf ingarinnar fylgir svo greinargerð á sjónarmiði þeirra sem langoftast er mjög sannfærandi og gerir það að verkum að lesandinn hugsar með sér: Hmm, getur það verið? NOKKRAR STAÐHÆFINGAR Í BÓKINNI l Hunsaðu raunveruleikann l Fundir eru eitraðir l Ferilskrár eru fáránlegar l Markaðsmál eru ekki deild l Fréttatilkynningar eru ruslpóstur l Sendu fólk heim klukkan fimm l Þú býrð ekki til menningu l Þitt mat er glatað l Fagnaðu hömlum l Einbeittu þér að því sem mun ekki breytast l Áætlanir eru ágiskanir l Til að fá nánari skýringar verður þú að lesa bókina. Þú sérð ekki eftir því! „Bókin Rework er vel til þess fallin að kveikja hug myndir að nýjum nálgunum og breytt um vinnubrögðum.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.