Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Side 46

Frjáls verslun - 01.10.2010, Side 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 kunnur trotti frá þessum árum er Már Guð­ mundsson seðlabankastjóri. „Trottatal er auðvitað löngu tímabært og yrði forvitnileg lesning,“ bendir Sigurður á. „Þetta entist ekkert hjá mér og miklu skemur en hjá Má,“ segir Sigurður. „Það hefur aldrei átt við mig að trúa á eitthvað sérstakt en þetta var góður félagsskapur og skemmtilegur. Ég var með hár niður á rass. Þetta var þessi tími og þetta var gott fólk en svo komu aðrir tímar.“ Bróðirinn Stefán tekur undir þetta með að róttæknin hafi enst stutt hjá Sigurði. Stefán segist reyndar halda að róttæknin hafi mest verið til að ganga í augun á stelpunun. Þetta var kúl. Fræði markaðarins Og ekki heldur hefur Sigurður hallað sér að frjálshyggjunni. Þó segir hann að fræði ­ grein sín, hagfræðin, taki yfirleitt mið af markaðnum. Því sé markaðshyggja innbyggð í fræðin, óháð því hvort menn aðhyllist kenningar frjálshyggjunnar eða ekki. Hagfræðingar vari stjórnmálamenn oft­ sinnis við ákvörðunum sem gangi þvert á lögmál markaðarins og kunni því að vera hagfræðilega óskynsamlegar. Við reynum að fá Stefán Snævarr til að ljóstra upp hugsanlegum pólitískum skoðunum Sigurðar. Hann efast um að hægt sé koma á hann sérstökum lit. „Hann er laus við alla pólitíska trú­ hneigð,“ segir Stefán. „Ég held að bæði í gamni og alvöru megi kalla hann tækni­ krata. Hann er mest fyrir að leita að prakt­ ískum lausnum.“ Hagfræðin „Stundum þarf auðvitað efnahagsstjórn að ganga þvert á markaðinn,“ segir Sigurður. Hagfræðin varð grein Sigurðar. Þó var ekki sjálfgefið að hann færi í hagfræði að loknu stúdentsprófi frá MR. Hann hafði einnig hug á að nema heimspeki, sagnfræði eða sálfræði. Stefán bróðir hans tók heimspekina, og er nú prófessor í Noregi, en yngri bróðirinn, Árni, tók síðar sagnfræði. Aðeins yngri systirin, Valborg Þóra, las lög eins og fað­ irinn og starfar sem hæstaréttarlögmaður í dag. Sigríður, elst þeirra systkina, las alþjóða stjórnmálafræði og er sendiherra. Áhugi á afkimum „Innsti kjarni hagfræðinnar er löngu úrelt sálfræði,“ segir Sigurður sem fór til náms í Lundi í Svíþjóð og síðar í London School of Eoconomics með áherslu á peningamarkaðsfræði og síðar vinnu­ markaðs hagfræði. Hann kom heim árið 1982 og varð þá hagfræðingur við Þjóðhagsstofnun og síðar forstöðumaður þar fram til ársins 2001. Sig­ urður segir að á tímabili hafi öll syst kin in fimm verið við nám eða störf í öðrum löndum. „Ég ætlaði að verða bankastjóri,“ segir Sigurður sposkur um áhugann á peningamálahagfræði. Hann kennir pró­ fessorum sínum í LSE um að sá áhugi færðist yfir á vinnumarkaðshagfræði, en þessir prófessorar eru báðir nóbels verð­ launahafar. Hann segist einnig alltaf hafa haft áhuga á ýmsum afkimum hagfræðinnar sem hann kallar svo. Í þeim afkimum er hagfræðinni beitt á vandamál sem í fyrstunni sýnast ekkert hafa með hagfræði að gera. Þetta eru svið eins og verkaskipting á heimilum eða spurningar um af hverju fólk ákveður að eignast börn. „Ég tek eftir því að það fæðast tiltölulega mörg börn núna í kreppunni,“ segir Sigurður. „Það bendir til bjartsýni á fram tíðina en segir okkur líka að fórnar kostnaður tímans hefur lækkað með kaup máttar hruni og atvinnuleysi.“ Ytra var Sigurður í hópi námsmanna sem síðar hafa sett svip sinn á íslenska þjóðmálaumræðu og hafa með sér félags­ skap. Þetta eru menn eins og Ólafur Ísleifs son, Ólafur Þ. Harðarson, Albert Jónsson, Finnur Geirsson, Gunnar Helgi Kristinsson og Yngvi Örn Kristinsson. Ekki alltaf sama sagan Með vinnu fyrir Þjóðhagsstofnun og borg ina hefur Sigurður kennt haglýsingu Íslands við Háskóla Íslands frá árinu 1988 og gaf út bók um efnið árið 1993. Núna er hann að endurskrifa bókina með nýja útgáfu í huga. „Jú, bókin breytist auðvitað mikið, enda mikið vatn runnið til sjávar síðan hún var skrifuð. Líklega einar tvær hagsveiflur og eitt hrun,“ segir Sigurður. „Og jafnvel fortíðin er alltaf í mótun. Auðvitað má finna hliðstæður við ástandið núna í okkar sögu og gagn af því að leita þeirra,“ segir Sigurður. „Samt er margt ólíkt nú og á fyrri krepputímum. Ég bendi á að ungt fólk er miklu hreyfanlegra en áður og hefur alþjóðlegri menntun. Hættan á atgervisflótta er meiri núna en í fyrri kreppum.“ N Æ R M Y N D A F S I G U R Ð I Á R M A N N I S N Æ V A R R „Ég man reyndar ekki eftir að hann stundaði aðrar íþróttir í mennta­ skóla en að reykja camel.“ „Þar hljóp Sigurður líka og mér þótti hann áberandi léttur á fæti.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.