Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 70

Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 Birta Flókadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar, er ánægð með jólastemninguna. Jólin komin í Kringluna KRINGLAN Kringlan er komin í jólabúning, búið er að skreyta að utan sem innan, hátt og lágt. Langflestar verslanir leggja mikinn metnað í jólagluggana hjá sér, sem setur einmitt punktinn yfir i-ið í Kringlunni. Jólapakkasöfnunin aldrei mikilvægari Að sögn Birtu Flókadóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, hefur verið bætt í skreytingarnar innanhúss, sem gerir hana enn skemmtilegri stað til að gera jólainnkaupin: „Ísbjarnaland er sérstaklega sett upp fyrir yngstu kynslóðina en það hefur notið mikilla vinsælda. Fyrstu helgina í aðventu var svo kveikt á jóla tré Kringlunnar og við það tækifæri hófst jólapakkasöfnun fyrir börn Kringl­ unnar í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands. Íslendingar hafa tekið þessari söfnun afar vel og í fyrra gáfu viðskiptavinir Kringlunnar yfir 5.000 gjafir. Gjöfunum er deilt út hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða fyrir jólin. Starfsfólk Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálparinnar metur þörfina mjög mikla í ár og á mörgum heimilum gera þessar gjafir gæfumuninn á jólahátíðinni. Piparkökukeppni til styrktar Barnaspítala Hringsins Auk þessarar árvissu pakkasöfnunar stendur Kringlan nú fyrir pipar köku­ leik í samstarfi við Ljóma og Hagkaup. Þema piparkökuleiksins er Ísland og eru hugmyndafluginu engin takmörk sett. Hluti af söluandvirði Ljóma­ smjörlíkis rennur til Barnaspítala Hringsins auk þess sem staðið verður fyrir uppboði á verðlaunakökunum laugardaginn 18. desember og allur ágóði rennur óskiptur til Barnaspítalans. Gjafakortið klikkar ekki! Gjafakort Kringlunnar er vinsælasta gjafakort landsins. Ástæða þess er hin gífurlega fjölbreytni verslana og þjónustuaðila í húsinu, en ekkert gjafa­ kort býður upp á jafnmarga spennandi möguleika í notkun. Einnig tel ég að nú sem aldrei fyrr vilji fólk tryggja að gjafir hitti í mark og gjafakort Kringlunnar getur hreinlega ekki brugðist.“ „Íslendingar hafa tekið þessari söfnun afar vel og í fyrra gáfu viðskiptavinir Kringlunnar yfir 5.000 gjafir.“ Gjafakort Ævintýralegt úrval af gjöfum sem skína, sniðug lausn fyrir þig og alla þína. Gjafakort Kringlunnar er góð gjöf sem hentar öllum. Hafðu samband á gjafakort@kringlan.is eða í 517 9000 og við aðstoðum þig. Gjafakort

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.