Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Side 25

Frjáls verslun - 01.03.2008, Side 25
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 25 Forsíðugrein dk hugbúnaður Hlíðasmára 17 201 Kópavogur Sími 510 5800 Fax 510 5812 dk@dk.is www.dk.is Viðmótsþýður og afkastamikill vinnufélagi dk viðskiptahugbúnaður C M Y CM MY CY CMY K dk 185x70 mm banner.ai 4/14/08 4:42:51 PM 19. Ert þú sammála því að skuldlaus ríkissjóður taki lán til að auka gjaldeyrisforðann og styrki lausafjárstöðu bankanna í erlendri mynt? Menn verða bara að sjá til þess að það sé gjaldeyrisflæði á Íslandi, svo einstaklingar og fyrirtæki geti átt viðskipti með gjaldeyri. Annars sér maður ekki fyrir sér hvernig fyrirtæki geta starfað hér þegar stýrivextir eru þeir hæstu í heimi í landi með þróað hagkerfi. 20. Eftir að skrúfað var nánast fyrir aðgengi bankanna að ódýru lánsfé erlendis blasir vandi bankanna m.a. við í því að það er skortur á lausafé í erlendri mynt. Þýðir þetta ekki að útrásin sé stopp í bili hjá bönkunum og íslenskum fyrirtækjum? Það má í það minnsta segja, að á meðan þetta ástand varir, séu hendur manna bundnar í þessu tilliti. Erfitt aðgengi að lánsfé er hins vegar ekki bundið við Ísland og blasir við alls staðar þar sem stunduð eru viðskipti. 21. Eftir að aðgangur erlendis að ódýru lánsfé minnkaði svo snar- lega er erfitt að selja eignir bæði hér heima og erlendis. Hversu mikil áhrif hefur það eitt og sér á stöðu íslenska bankakerfisins að seljanleiki eigna hefur snarminnkað? Við sjáum það daglega erlendis að bankar eru að selja eignasöfn. Þannig að það er markaður fyrir góðar eignir. Það er mikið fjármagn til í heiminum sem bíður eftir því að gera góð kaup. 22. Hversu mikilvægt er það gagnvart erlendum lánveitendum að sameina íslenskar lánastofnanir undir þessum kringumstæðum? Hver yrði helsti ávinningurinn af því að sameina banka núna? Ég held að þetta sé ekki tíminn að fara í stórbanka-samruna á Íslandi. Bankar verða að klára fjármögnun út 2009 áður en menn fara að skoða þessa hluti. Til lengri tíma litið er ljóst að við verðum að hag- ræða í kerfinu. 23. Ef þú ættir að gefa ríkisvaldinu og Seðlabanka Íslands eitt gott ráð í þeirri glímu sem núna er háð, hvert yrði það ráð? Við stöndum að hluta til frammi fyrir alþjóðlegri lausafjárkreppu og getum lítil áhrif haft þar á. Það sem að okkur snýr hins vegar, þá tel ég lausnina á málinu þá, að okkar litli gjaldmiðill verði gefinn upp á bát- inn. Þannig skapast sambærileg skilyrði og eru annars staðar í Evrópu. Við þurfum að hefjast handa strax. Það þarf að teikna alla myndina fyrirfram. Það er brýnt að stjórnvöld móti trúverðuga stefnu til fram- tíðar og lýsi því yfir, að þau sækist eftir viðræðum núna. Ég hef sagt það áður, að við eigum að óska eftir viðræðum um aðild að Evrópusambandinu strax og taka upp evru. Ég held að þetta sé ekki tíminn að fara í stórbanka- samruna á Íslandi. Bankar verða að klára fjármögnun út 2009 áður en menn fara að skoða þessa hluti. Krónan kemur í veg fyrir fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi. Við sjáum það t.d. á íslenska hlutabréfa- markaðnum, þar sjást varla erlendir fjárfestar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.