Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 25
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 25
Forsíðugrein
dk hugbúnaður
Hlíðasmára 17
201 Kópavogur
Sími 510 5800
Fax 510 5812
dk@dk.is
www.dk.is
Viðmótsþýður og afkastamikill vinnufélagi
dk viðskiptahugbúnaður
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
dk 185x70 mm banner.ai 4/14/08 4:42:51 PM
19. Ert þú sammála því að skuldlaus ríkissjóður taki lán til að
auka gjaldeyrisforðann og styrki lausafjárstöðu bankanna í
erlendri mynt?
Menn verða bara að sjá til þess að það sé gjaldeyrisflæði á Íslandi, svo
einstaklingar og fyrirtæki geti átt viðskipti með gjaldeyri. Annars sér
maður ekki fyrir sér hvernig fyrirtæki geta starfað hér þegar stýrivextir
eru þeir hæstu í heimi í landi með þróað hagkerfi.
20. Eftir að skrúfað var nánast fyrir aðgengi bankanna að ódýru
lánsfé erlendis blasir vandi bankanna m.a. við í því að það er
skortur á lausafé í erlendri mynt. Þýðir þetta ekki að útrásin sé
stopp í bili hjá bönkunum og íslenskum fyrirtækjum?
Það má í það minnsta segja, að á meðan þetta ástand varir, séu hendur
manna bundnar í þessu tilliti. Erfitt aðgengi að lánsfé er hins vegar
ekki bundið við Ísland og blasir við alls staðar þar sem stunduð eru
viðskipti.
21. Eftir að aðgangur erlendis að ódýru lánsfé minnkaði svo snar-
lega er erfitt að selja eignir bæði hér heima og erlendis. Hversu
mikil áhrif hefur það eitt og sér á stöðu íslenska bankakerfisins
að seljanleiki eigna hefur snarminnkað?
Við sjáum það daglega erlendis að bankar eru að selja eignasöfn.
Þannig að það er markaður fyrir góðar eignir. Það er mikið fjármagn
til í heiminum sem bíður eftir því að gera góð kaup.
22. Hversu mikilvægt er það gagnvart erlendum lánveitendum að
sameina íslenskar lánastofnanir undir þessum kringumstæðum?
Hver yrði helsti ávinningurinn af því að sameina banka núna?
Ég held að þetta sé ekki tíminn að fara í stórbanka-samruna á Íslandi.
Bankar verða að klára fjármögnun út 2009 áður en menn fara að
skoða þessa hluti. Til lengri tíma litið er ljóst að við verðum að hag-
ræða í kerfinu.
23. Ef þú ættir að gefa ríkisvaldinu og Seðlabanka Íslands eitt
gott ráð í þeirri glímu sem núna er háð, hvert yrði það ráð?
Við stöndum að hluta til frammi fyrir alþjóðlegri lausafjárkreppu og
getum lítil áhrif haft þar á. Það sem að okkur snýr hins vegar, þá tel ég
lausnina á málinu þá, að okkar litli gjaldmiðill verði gefinn upp á bát-
inn. Þannig skapast sambærileg skilyrði og eru annars staðar í Evrópu.
Við þurfum að hefjast handa strax. Það þarf að teikna alla myndina
fyrirfram. Það er brýnt að stjórnvöld móti trúverðuga stefnu til fram-
tíðar og lýsi því yfir, að þau sækist eftir viðræðum núna.
Ég hef sagt það áður, að
við eigum að óska eftir
viðræðum um aðild að
Evrópusambandinu strax
og taka upp evru.
Ég held að þetta sé ekki
tíminn að fara í stórbanka-
samruna á Íslandi. Bankar
verða að klára fjármögnun
út 2009 áður en menn fara
að skoða þessa hluti.
Krónan kemur í veg
fyrir fjárfestingar
erlendra aðila á Íslandi.
Við sjáum það t.d. á
íslenska hlutabréfa-
markaðnum, þar sjást
varla erlendir fjárfestar.