Frjáls verslun - 01.03.2008, Síða 31
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 31
Halla sagði að nær helm-
ingur fjármagns í hinum
vestræna heimi væri núna í
eigu kvenna og það fjármagn
þyrfti að virkja. Vísaði Halla
til nýlegrar skýrslu Economist
fyrir Barcleys bankann, en hún
sýndi að konur ættu um 48%
af sparnaði í Bretlandi og að
árið 2020 yrðu fleiri konur en
karlar orðnir milljónamæringar í
Bretlandi.
Þá hvatti Halla konur til
að fara fyrir fjármagni sínu og
setjast í stjórnir fyrirtækja.
Halla Tómasdóttir.
28. mars
Davíð Oddsson:
Árásin á Ísland
Það er sjaldan lognmolla þar
sem Davíð Oddsson fer. Á árs-
fundi Seðlabankans þennan
dag sagði hann að óprúttnir
miðlarar hefðu reynt að brjóta
niður íslenska fjármálakerfið.
Segja má að Davíð hafi lagt
línurnar því frá þessari stundu
hefur helsta umræðuefnið á
Íslandi verið þessi meinta árás
á Ísland og fjármálasamsæri
erlendra miðlara gegn Íslandi.
Sagði Davíð á ársfundinum
að atlaga að íslensku bönk-
unum og íslenska ríkinu lyktaði
óþægilega af því að óprúttnir
miðlarar hefðu ákveðið að gera
úrslitatilraun til að brjóta niður
íslenska fjármálakerfið.
„Þeim mun ekki takast
það. En til álita hlýtur að koma
að gera alþjóðlega opinbera
rannsókn á slíku tilræði við
heilbrigð fjármálakerfi,“ sagði
Davíð og vísaði einnig til þess
að síðustu mánuði hefði borið
á vafasamri hegðun á alþjóð-
legum mörkuðum.
Davíð nefndi að nýleg dæmi
væru rógsherferð gegn breska
HBOS bankanum sem skaðaði
hann mikið, þótt tímabundið
væri, en það mál væri nú í rann-
sókn. Þá benti hann á dæmi frá
Írlandi í sömu átt.
Davíð sagði í ræðu sinni að
fátt benti til þess að efnahags-
legt vor væri í vændum og að
ganga þyrfti út frá því sem vísu
að ástandið á fjármálamörk-
uðum lagaðist lítið í bráð. Og
þótt það kynni að lagast eitt-
hvað þá yrði ástandið ekki eins
og áður.
31. mars
Kaupþing:
Í mál við
Bear Stearns?
Vefmiðillinn Vísir sagði frá því
að fjórir alþjóðlegir vogunar-
sjóðir hefðu tekið skortstöðu
á íslenska markaðinum eftir
áramótin og að Kaupþing íhug-
aði málsókn gegn bandaríska
fjárfestingarbankanum Bear
Stearns vegna málsins.
Sagði Vísir að fulltrúar
þessara sjóða hefðu komið til
Íslands eftir áramótin á vegum
Bear Stearns ásamt þremur
fulltrúum Bear Stearns - og í
kjölfar ferðarinnar til Íslands
hefðu fulltrúar Bear Stearns
skrifað magnaða greiningu,
svarta skýrslu, sem hét
Samanburður á Íslandi og
Kazakstan þar sem mjög lítið
var gert úr Íslandi.
Vísir ræddi við Jónas
Sigurgeirsson, upplýsingafull-
trúa Kaupþings, sem sagði að
umfang skortstöðunnar lægi
Eftir að landsmenn voru meira og minna á
taugum í páskafríinu yfir gengisfalli krón-
unnar lét Seðlabankinn strax til skarar
skríða á fyrsta vinnudegi eftir páskafrí
þegar markaðir voru opnaðir og hækkaði
stýrivexti úr 13,75% í 15%. Síðan hafa stýri-
vextir að vísu verið hækkaðir í 15,5%.
Ýmsir fögnuðu þessari ákvörðun bankans
en aðrir mölduðu í móinn. Hæstu stýrivextir
í heimi voru hækkaðir enn meira.
Gengi krónunnar styrktist verulega í kjöl-
far tilkynningarinnar sem gekk út á hækkun
stýrivaxta samhliða því sem reglum bank-
ans var breytt til að auka lausafé á mark-
aði. Hlutabréf hækkuðu líka í verði þennan
dag og hækkaði úrvalsvísitalan um 6,16%
og hafði aldrei hækkað áður jafnmikið á
einum degi.
Bæði gengi krónunnar og hlutabréf
hafa sveiflast nokkuð síðan. Þannig hefur
hlutabréfavísitalan lónað meira og minna á
bilinu frá 5.000 stigum upp í 5.400 stig frá
því snemma í janúar. Segja má að þetta bil
sé botninn – enn sem komið er.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði
þetta um vaxtahækkunina: „Þetta er mesta
hækkun sem hefur verið ákveðin í einu lagi
af bankanum síðan núverandi fyrirkomulag
peningamála var tekið upp 2001, sem sýnir
auðvitað hinn mikla þunga sem býr að baki
ákvörðuninni.“
25. mars
Lét tiL Skarar SkrÍða eftir pÁSkafrÍ
Davíð Oddsson.