Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 36

Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 DAGBÓK I N 15. apríl lýður í stjórn Sampo Sagt var frá því að Lýður Guðmundsson, stjórnarfor- maður Exista, hefði á aðalfundi Sampo verið kjörinn í stjórn félagsins. Exista er stærsti hluthafinn í Sampo með 20% hlut en hefur ekki áður átt full- trúa í stjórn. Þess má geta að Exista fær 16,5 milljarða króna í arð af eign sinni í þessum finnska tryggingarisa. 16. apríl Gunnar Smári hættur Morgun blaðið sagði frá því að Gunnar Smári Egilsson væri hættur störfum fyrir Dagsbrún Media sem gefur út fríblaðið Nyheds- avisen í Danmörku og kom einnig að útgáfu bandaríska fríblaðsins BostonNOW í Boston, en útgáfu þess blaðs hefur núna verið hætt. Morgunblaðið sagði að Gunnar Smári hefði staðfest það við blaðið að hann væri hættur hjá Dagsbrún Media. Hefur hann verið fjarverandi í nokkra mánuði þar sem hann fór í fæðingarorlof um áramót. Gunnar Smári sagði að hann hefði ekkert ákveðið með fram- haldið. Hann ætti inni gott frí og hefði nóg að gera í barneign- arfríinu, eins og það var orðað. 8. apríl rúmEnÍu-ÞotAn á EinStöKu KynninGArvErði Þetta er eitt af þessum málum sem gjósa upp og verða risastór. Líklegast vegna þess að þau snúast um prinsipp fremur en krónur og aura. Um er að ræða ferð forsætisráðherra og utanrík- isráðherra ásamt föruneyti á leiðtoga- fund NATO í Rúmeníu. Um fátt hefur verið meira rætt manna á meðal. Kostnaður vegna leigu á einkaþotunni nam 4,2 milljörðum króna. En þennan dag sendi forsætisráðu- neytið frá sér tilkynningu þar sem fram kom að heildarkostnaðurinn vegna þessarar ferðar ráðherranna og embætt- ismanna til Rúmeníu hefði orðið um 3,7 milljónir króna hefði verið flogið með áætlunarflugi. „IceJet bauð leigu á þotunni á ein- stöku kynningarverði, 4,2 milljónir króna. Með því að nýta þann kost var hægt að leggja af stað 2. apríl og komast heim 4. apríl. Þá spöruðust um 5 vinnudagar alls sem reikna má á u.þ.b. 200 þúsund kr. og dagpeningar upp á um 100 þúsund kr. Þetta fyrirkomulag gerði mögulegt að nýta mánudaginn 1. apríl til funda- halda, m.a. funduðu forsætisráðherra og utanríkisráðherra með bankastjórn Seðlabankans síðdegis 1. apríl. Í vélinni eru 14 sæti og var ákveðið að bjóða fjöl- miðlum þau fjögur sæti sem ónýtt voru. Það þáðu þrír fjölmiðlar: Fréttablaðið, Stöð 2 og Morgunblaðið. RÚV sendi fréttamann til fundarins frá London,“ sagði í tilkynningunni. Þá sagði í fréttatilkynningunni að flogið hefði verið með 19 sæta flugvél af gerðinni Jetstream 32 frá flugfélaginu Erni til Kiruna í Svíþjóð á fund norrænu forsætisráðherranna um alþjóðavæð- ingu og áhrifa hennar. Í þá för fóru Geir H. Haarde forsætisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ásamt fylgdarliði. Kom fram að með þessu fyrirkomulagi hefðu sparast 1-2 ferðadagar. Kostnaður við leigu þot- unnar var um 2,7 milljónir króna en hefði orðið um 1,1 milljón með áætlunar- flugi. Hótelkostnaður, sem ekki þurfti að greiða vegna styttri ferðar, hefði orðið 180 þúsund krónur. Dagpeningar, sem ekki þurfti að greiða vegna styttri ferðar, hefðu numið 187 þúsund krónum. Ávinning í vinnusparnaði vegna færri ferðadaga mætti meta á 360 þúsund krónur. Að þessu samanlögðu hefði kostn- aðarauki miðað við að fljúga í áætl- unarflugi verið tæplega 850 þúsund krónur. 10. apríl 30% rAunvirðiSlæKKun ÍbúðAvErðS Mikið fjaðrafok varð þennan dag þegar Seðlabankinn birti spá sína um allt að 30% lækkun íbúðaverðs að raunvirði fram til ársloka 2010. Bankinn hækkaði stýrivexti sína sama dag um 0,5%. Fram kom í ræðu Davíðs Oddssonar, formanns banka- stjórnar, að spá bankans væri sú að verðbólga næði hámarki í 11% á þessu ári en verðbólgumarkmiðum yrði náð 2010 en það ár yrði atvinnuleysi komið í 4%. Þær umræður, sem fylgdu í kjölfarið á meðal fasteignasala, voru á þá leið að með þessari spá væri Seðlabankinn að leggja línurnar með þeim hrikalega hætti að enginn þyrði að kaupa fast- eignir á næstunni því þær ættu eftir að lækka í verði og viðkomandi að tapa. Mátti heyra á fasteignasölum að svona spá gæti ein og sér stöðvað alla sölu á fasteignum á næstu mánuðum. Gunnar Smári Egilsson. Davíð Oddsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.