Frjáls verslun - 01.03.2008, Qupperneq 53
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 53
e n g l a n e t
Íslenskur engill
Á síðasta ári setti Eggert Claessen sig í sam-
band við David Grahame, framkvæmdastjóra
LINC. Í kjölfarið var Eggert skráður inn í skoska
englanetið LINC.
Á síðasta ári setti Eggert Claessen sig í samband við David Grahame, fram-kvæmdastjóra LINC. Í kjölfarið var
Eggert skráður inn í skoska englanetið LINC
og hann hóf að fjárfesta í skoskum vaxtarfyr-
irtækjum, í einu tilviki í samstarfi við mót-
framlagssjóð Skota. Eggert varð svo hrifinn
af útfærslu Skota á englanetum og stuðningi
þeirra í formi mótframlagssjóðs að hann
fór að kynna þessar hugmyndir hér á landi.
Talverður áhugi var á málefninu en lítið
gerðist fyrr en Klak- Nýsköpunarmiðstöð
atvinnulífsins tók verkefnið upp á sína arma.
Þátttaka Eggerts í skoska englanetinu LINC
gerir hann sennilega að einum fyrsta Íslend-
ingnum sem gerist formlega viðskiptaengill.“
Af hverju gerðist þú viðskiptaengill?
„Ég var búinn að vera í rekstri í um 25 ára
skeið og árið 2002 ákveð ég að gera tals-
verða breytingu á lífi mínu. Ég seldi mig
út úr þeim fyrirtækjarekstri sem ég var í á
þeim tíma og skráði mig í doktorsnám við
Henley Management College í Bretlandi. Ég
hafði engu síður enn mikinn áhuga að starfa
í fyrirtækjarekstri, þó ekki lengur sem fram-
kvæmdastjóri eða stjórnandi heldur frekar í
tengslum við stefnumótun og eftirfylgni, og
geta jafnframt tekið þátt í fleiri en einu verk-
efni á sama tíma. Á ferlinum hef ég farið í
gegnum sex fyrirtæki og lært mikið af því og
þess vegna fannst mér það mjög spennandi
þegar ég las um viðskiptaengla. Englar eru
nefnilega ekki einungis í að fjárfesta heldur
einnig í að gefa eitthvað til baka af sinni
reynslu. Frumkvöðullinn er ekki einungis að
fá peninga heldur einnig hlut af reynslu og
þekkingu fjárfestis, þess vegna hefur þetta
stundum verið kallað „peningar með sál“.“
Eru þá englar að vona að þeirra reynsla
geti fleytt fyrirtækinu til frekari vaxtar?
„Já, menn eru að vissu leyti í þessu til þess að
geta haft meiri áhrif og hjálpað meira til við
að móta reksturinn. Það er þessi þátttaka sem
gerir viðskiptaengilinn talsvert frábrugðinn
örðum fjárfestum og að fjárfesta í hlutabréfum
markaði þar sem maður getur haft mjög lítil
áhrif á reksturinn. Engillinn getur verið frum-
kvöðlafyrirtækjum gríðarlega mikilvægur þar
sem oft er það ekki fjármagnið sem er stærsti
þröskuldurinn í vaxtaferli fyrirtækja heldur
skortur á reynslu og þekkingu.“
Hver er hvatning viðskiptaengils til að
fjárfesta?
„Miðað við það sem ég hef kynnst þá er það
yfirleitt að taka þátt í skemmtilegum verk-
efnum. Auðvitað vilja menn græða í leiðinni.
En það má ekki gleyma því að gróðinn getur
verið samfélagslegur jafnt sem fjárhagslegur.
Viðskiptaengillinn verður að gera sér grein
fyrir því að það er ekki líklegt að öll verkefni
verði arðsöm. Stundum er talað um að eitt af
hverjum sex geti orðið mjög árangursrík og
skilað þeirri margföldun sem viðskiptaeng-
illinn gerir kröfu til. Það er stundum talað
um að þumalfingursregla viðskiptaengils sé
að miða margföldun ávöxtunar við þann
árafjölda sem hann vinnur í verkefninu. Ef
hann er eitt ár, þá er það tvöföldun, tvö ár
þreföldum, þrjú ár fjórföldun og svo fram-
vegis. Það eru árangursríku dæmin sem borga
fyrir þau sem reynast risminni. Þess vegna er
ávöxtunarkrafan há.“
Hvernig draga englar úr áhættu sinni?
„Yfirleitt velja viðskiptaenglar verkefni sem
tengjast því sviði sem þeir þekkja mjög vel og
hafa þónokkur sambönd til að byggja á. Þeir
reyna að velja einstaklinga sem þeir treysta
og trúa á, að það sé fólk sem er líklegt til þess
að leiða næstu skref fyrirtækisins. Þeir reyna
að meta fyrirtækin á þeim upplýsingum sem
liggja fyrir, það er að miklu leyti huglætt mat
frekar en mjög vísindaleg nálgun. Yfirleitt
er mjög erfitt að meta möguleika nýrra fyr-
irtækja eða vaxtarmöguleika fyrirtækja. Það
er líka einn kosturinn við viðskiptaengla að
þeir eru tiltölulega fljótir að ákveða hvort þeir
hafi áhuga á þátttöku eður ei.“
Er þörf fyrir viðskiptaengla og englanet á
Íslandi?
„Ef menn eru sammála um það að forsenda
fyrir hagvexti til lengri tíma sé nýsköpun
og að forsendan fyrir nýsköpun sé að miklu
leyti fólgin í stofnun nýrra sprotafyrirtækja
sem geta vaxið tiltölulega hratt þá er ekki
spurning að englar og englanet geta verið
mikilvægur þáttur í að slík fyrirtæki geti vaxið
og dafnað.“
Eggert Claessen var á síðasta ári skráður inn í skoska
englanetið LINC og hóf eftir það að fjárfesta í skoskum
vaxtarfyrirtækjum.