Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Síða 55

Frjáls verslun - 01.03.2008, Síða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 55 Þessi tegund leiðtoga verður ekki til þegar ákveðinni stöðu eða ákveðnum titli er náð innan fyrirtækisins heldur ávinnur hann sér rétt til að leiða innan fyrirtækisins með því að sýna leiðtogahæfni hvar sem hann er innan skipulagsheildarinnar. Málið snýst um áhrif, ekki stöðu. Leiðtogar í miðjunni mæta mörgum áskor- unum í sínum störfum: Það fylgir því spenna og álag að vera milli- liður. Leiðtoginn í miðjunni hefur umboð til að leiða en það umboð er hægt að taka í burtu hvenær sem er. Því getur líka fylgt gremja, einkum og sér í lagi ef leiðtoginn fyrir ofan er af einhverjum orsökum ekki hæfur. Leiðtogar í miðjunni þurfa að bera marga hatta því ólíkt þeim sem sitja efst í skipulags- heildinni geta þeir ekki valið hvaða verk þeir vinna né heldur dreift verkefnum í sama mæli. Þeir þurfa jafnframt oft að ýta egóinu til hliðar þar sem sá sem efst situr fær oft hrósið fyrir árangurinn. Það getur verið erfitt að vera ánægður í starfi þar sem leiðtogum líkar betur að vera í forsvari en í miðjunni. Það er áskorun að hugsa um áhrif í stað stöðu því oft tengjum við árangur okkar í starfi þeirri stöðu sem við gegnum en ekki áhrifanna sem við höfum. Stærsta áskorunin Þessi hópur mætir mörgum áskorunum. Stærsta áskorun þessa hóps er þó tvímæla- laust sú að leiða upp. Þ.e. vera leiðtogar sinna yfirmanna. Það er einu sinni svo að flestir leiðtogar vilja leiða, ekki vera leiddir. Fókusinn í þessu tilliti ætti að vera að styðja við leiðtogann sem situr ofar, auka virði sitt innan skipulagsheildarinnar og skilja sig frá öðrum með því að vinna framúrskarandi störf. Með tímanum lærir yfirmaðurinn að treysta leiðtogum sem neðar eru, treysta á þá og leita til þeirra eftir ráðum. Með hverju skrefi aukast áhrif þeirra innan fyrirtækisins. Þeir þurfa að muna að það að vera leiðtogi snýst um áhrif en ekki stöðu. Að leiða til hliðar Það fylgir því áskorun að vera leiðtogi þeirra sem standa til hliðar við hann í skipuritinu og hann hefur ekki bein völd yfir. Hér ætti fók- usinn að vera á að rækta fólkið við hliðina í stað þess að keppa við það. Við eigum að virða og meta þá í jafningjahópnum sem leggja okkur lið og auka þannig áhrif okkar, byggjum upp samband við þessa aðila og vináttu. Það er afar mikilvægt að forðast að taka þátt í skrifstofupóli- tíkinni og illu umtali. Ein stærsta áskor- unin þegar „leitt er lárétt“ er sú að leyfa bestu hugmyndinni að vinna, forðast það að berjast fyrir sínum eigin hugmyndum. Það skiptir ekki máli hvaðan hugmyndin kemur, heldur það að hrinda góðum hugmyndum í fram- kvæmd. Með því að fylgja þessum ráðum og fleirum sem höfundur nefnir í bókinni þá aukum við áhrif okkar innan jafningjahóps- ins, styrkjum stöðu okkar og síðast en ekki síst aukum árangur fyrirtækisins í heild. Að leiða niður Þetta er sú stjórnun sem leiðtogar telja sig hafa vit á, þær tvær tegundir leiðtoga, sem áður hafa verið nefndar, eru sjálfsagt fram- andi - en þessi er sú sem við kunnum; eða hvað? Hér gilda í raun sömu lögmál og hafa verið nefnd við að leiða upp og til hliðar. Það sem skilur 360° leiðtoga frá öðrum leiðtogum er að þeir gefa sér tíma í að ávinna sér áhrif innan sinna starfsmannahópa, alveg eins og innan þeirra hópa sem þeir hafa ekki bein völd yfir. Þeir taka áhrifunum ekki sem sjálfsögðum hlut með stöðuheitinu heldur byggja þau upp með því að gefa sér tíma til að kynnast fólkinu sínu, sjá styrk- leika fólks, þróa hvern einstakling og styrk- leika hans, vera góð fyrirmynd, verðlauna árangur og með því að tryggja að allir liðs- mennirnir þekki sýn fyrirtækisins. Göngum ekki út frá því að stöð- unni fylgi áhrif. Við verðum alltaf að vinna fyrir leyfinu til að leiða hópinn okkar á áhrifa- ríkan hátt. Ávinningurinn Og af hverju ætti ég að leggja þetta allt á mig? Jú, munið að þetta snýst um áhrif en ekki stöðu. Um leið og við eru farin að hafa áhrif innan fyrirtækisins, niður fyrir okkur, upp fyrir og samhliða, þá erum við farin að auka árangur skipulagsheildarinnar. Bættur árangur er það sem vekur athygli. Árangur okkar í starfi er háður árangri heildarinnar. Og því sterkari sem heildin er, því betra. Fyrir fyrirtækið er ljóst að ef byggð er upp leiðtogamenning í stað menningar þar sem hver og einn otar sínum tota eru líkur á árangri mun meiri. Fyrir hverja er bókin? Bókin er fyrir leiðtoga sem eru í þeirri stöðu að leiða frá miðju fyrirtækisins, hafa upplifað það álag og þá gremju sem því fylgir. Hún er jafnframt mjög mikilvæg fyrir þá leiðtoga sem sitja á toppnum og hafa leiðtoga undir sér. Það er mikilvægt fyrir þá að átta sig á hvaða áskorunum þeirra starfsmenn mæta og hvað hægt er að gera til að tryggja að þeir upplifi ánægju í starfi en ekki gremju. Það er mun sterkara fyrir fyrirtækið að hafa yfir að ráða teymi leiðtoga sem vinnur saman að framtíðarmarkmiðum fyrirtækisins frekar en leiðtogum sem vinna hver í sínu horni. Bókin er því mjög gagnleg öllum þeim sem gegna leiðtogahlutverki innan fyrirtækis, sama á hvaða stigum, því sterkir leiðtogar leiða út fyrir stöðu og hafa áhrif á fleiri en einum stað innan skipulagsheildarinnar. Það eru leiðtogar framtíðarinnar. s t j ó r n u n a r b æ k u r Það er áskorun að hugsa um áhrif í stað stöðu því oft tengjum við árangur okkar í starfi þeirri stöðu sem við gegnum en ekki áhrifanna sem við höfum. John Maxwell heldur því fram að þessi hópur leiðtoga sé mikilvægasti hlekkurinn í árangri fyrirtækja og með því að leggja rækt við þennan hóp geti fyrirtæki bætt árangur sinn til muna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.