Frjáls verslun - 01.03.2008, Qupperneq 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
7. Stjórnkerfi
Sífellt öflugri stjórnkerfi fyrir heimilið eru að
koma á markaðinn, en þau tvinna saman
stýringu á öllum þeim þáttum sem taldir
voru upp hér að framan. Þannig má t.d.
með einni fjarstýringu stilla ljós og hita,
kveikja á hljómflutningstækjunum, flakka
milli sjónvarpsstöðva og ræsa örygg-
iskerfið. Þetta er þá jafnframt allt sam-
tengt við stjórnstöð við útihurð, þannig
að um leið og kveikt er á öryggiskerfinu
þegar farið er frá heimilinu sér kerfið um
að slökkva á ljósum og raftækjum sem
þurfa ekki að vera í gangi, lækka hitann og
draga fyrir alla glugga.
8. Heimilistölva
Stór og mikil heimilistölva verður nátt-
úrlega að vera til staðar, bæði fyrir hefð-
bundna tölvuvinnslu og svo til að halda
utan um ýmsa stafræna miðlun. Með því að
tengja tölvuna við sjónvarpið og hljóðkerfið
má svo spila hljóð- og myndefni beint úr
tölvunni í sjónvarpinu og jafnvel taka upp
sjónvarpsútsendingar. Með slíkri uppsetn-
ingu er líka hægt að sýna stafrænu mynd-
irnar í sjónvarpinu og spila tölvuleikina á
50 tommu flatskjá og heimabíóhljóðkerfi
frekar en fyrir framan tíkarlegan tölvuskjá.
9. Harðdisksflakkari
Flakkarar eru orðin þarfaþing hin mestu
nú til dags. Með þeim má á einfaldan hátt
taka öryggisafrit af öllum mikilvægustu
gögnum heimilistölvunnar, þeir eru fínn
geymslustaður fyrir eldri gögn sem maður
vill létta af heimilistölvunni og svo eru þeir
flottustu komnir með mjög góða skjái,
þannig að hægt er að nota þá til að horfa
á bíómyndir eða sjónvarpsþætti á ferðalag-
inu. Að sjálfsögðu eru harðdisksflakkarar
svo mjög hentugir á heimilum þar sem
heimilistölvan er ekki tengd sjónvarpinu,
þar sem þeir geta verið þægilegur milliliður
milli tölvunnar og sjónvarpsins þegar kemur
að því að spila stafrænt myndefni í sjón-
varpinu.
10. iPhone
Þótt farsímar séu e.t.v. strangt til tekið
ekki heimilistæki heldur frekar svona per-
sónuleg græja, þá er eiginlega ekki hægt
annað en nefna þetta undratól frá Apple.
Hér er kominn farsími, tónlistar- og mynd-
spilari, handtölva, myndavél og internet-
flakkari, allt í einum ofursvölum pakka.
Þó svo það sé í raun ekki ætlast til þess
að iPhone sé notaður utan Bandaríkjanna
eru ótrúlega margir komnir með þennan
síma hér á landi. Allir sem ég þekki sem
eiga svona síma ganga um með mjög vafa-
samt kjánaglott sem engin leið er að ná
af þeim, þannig að eitt stykki iPhone fyrir
helstu fjölskyldumeðlimi er óumdeilanlega
nauðsynlegur hluti af því að halda hátækni-
heimili.
11. Fingrafaralás á útidyrnar
Það er náttúrlega afar gamaldags að
nota hefðbundna lykla til að opna og loka
hátækniheimilinu. Þess vegna er þjóðráð
að setja fingrafaralás á útidyrnar, þannig
að engin þörf sé lengur á að allt heimilis-
fólk burðist með húslykla daginn út og dag-
inn inn. Maður einfaldlega skellir puttanum
á skynjarann og dyrnar opnast! Slíkir lásar
geta skráð fjölda fingrafara, þannig að allir
sem eiga lögmætt erindi á heimilið geta
skráð sig í minni fingrafaralássins.
12. Sjálfvirk ryksuga
Roomba-ryksugu-róbótinn er sennilega hvað
frægastur úr Lottó-auglýsingunum, en þetta
er ekkert grín – hvað er nútímalegra en að
láta ryksuguna bara sjá um það sjálfa að
halda heimilinu rykfríu? Það er einfaldlega
kveikt á henni áður en farið er að heiman
og svo þegar komið er heim aftur hefur
ryksugan fækkað leiðinda húsverkunum
um eitt. Svo á Roomba systur sem kallast
Scooba og hún kann að skúra...
13. Sjálfvirk sláttuvél
Fjarskyldur ættingi Roomba er MowBot-
sláttuvélin, sem sér um að halda grasinu
í skefjum yfir sumartímann. Eigandinn
byrjar á að afmarka sláttusvæði garðsins
með smáum rafmagnsvír, sem gerir það að
verkum að sláttuvélin lendir ekki í neinum
ógöngum. MowBot getur meira að segja
15
8