Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2008, Side 84

Frjáls verslun - 01.03.2008, Side 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8 K YN N IN GK YN N IN G Heimilistæki í hæsta gæðaflokki Eirvík er verslun og þjónustufyrirtæki sem flytur inn og selur heimilistæki, hótel- og veitingatæki, innréttingar og gjafa-vöru. Meðal þekktra vörumerkja, sem Eirvík er með umboð fyrir, má nefna: Miele, Liebherr, General Electric, Smeg, Elica, Fisher & Paykel, Witt, Magimix, Cristel, Dacor og IP. Af mörgu er að taka í glæsilegri verslun Eirvíkur. Hálfdán Guðmundsson verslunarstjóri greinir frá nokkrum nýjungum í heimilistækjum sem verslunin selur: „ Stærsta vörumerki okkar er Miele sem er þekkt fyrir gæði og glæsi- lega hönnun. Gæði eru einkennandi fyrir vörurnar frá Eirvík. Ný lína frá Miele samanstendur meðal annars af stærri og fullkomnari ofnum, m.a. gufuofnum, nýrri kynslóð kaffivéla og vínkæla. Kaffivélin á eftir að vekja mikla athygli hér eins og erlendis, enda um byltingarkennda vél að ræða þar sem með því að styðja á einn takka á upplýstum snertiskjá er hægt að velja á milli cappuccino, espresso, latte macchiato og venjulegs kaffis og froðu. Kaffivélin er felld inn í innréttingu. Gufuofnarnir frá Miele eru góður kostur nú þegar umræðan um hollan mat er ofarlega í huga fólks. Ofnarnir varðveita betur vítamín, steinefni og prótein. Grænmetið hefur sama lit og þegar það var sett inn í ofninn. Ofnarnir hafa vakið verðskuldaða athygli og umfjöllun. Ný og endurbætt lína er nýkomin og viðtökurnar hafa verið mjög góðar.“ Ein af merkilegum nýjungum hjá Eirvík eru háfar frá Elica. „Þetta eru allt öðru vísi háfar en við höfum þekkt. Þeir eru ekki með stálhólk upp í loft, heldur hanga þeir í vírum og skiptir ekki máli hvort loftið er hallandi eða hátt til lofts, sem oft hefur verið til vandræða. Háfurinn hangir í þeirri hæð sem óskað er og er lítið mál að breyta um hæð. Þetta eru virkilega stílhreinir og fallegir háfar sem minna meira á glæsileg stofudjásn og hafa vakið verð- skuldaða athygli.“ Að lokum minnist Hálfdán á vínkælana sem koma frá Miele og Liebherr: „ Þessir kælar njóta aukinna vinsælda og hægt er að fá þá í mismunandi stærðum. Vínið er geymt í réttu hita- og rakastígi og hægt að hafa kampavín, hvítvín og rauðvín í sama skápnum hvert með sínu hitastigi. Þessir vínskápar eiga heima á öllum betri heim- ilum. Stærri skáparnir eru ætlaðir til geymslu víns í lengri tíma og svo eru það neysluskáparnir sem eru tilvaldir t.d. í eldhúsið, þá er vínið geymt við bestu hugsanlegar aðstæður.“ EirvíkHálfdán Guðmundsson, verslunarstjóri í Eirvík. Prodomo er verslun í eigu S.Guðjónssonar ehf. sem m.a. hefur umboð fyrir GIRA og BTicino rafbúnað, Modular og Kreon ljósabúnað og hefur í áratugi boðið upp á hágæða tæknilausnir fyrir fagmenn og einstaklinga. Hlíðasmári 1 / 200 Kópavogur / Sími 520 4545 / www.prodomo.is / prodomo@prodomo.is Prodomo er glæsileg verslun fyrir framtíðarheimilið þar sem lýsingu, hljóð- og myndlausnum er stýrt með háþróuðum búnaði. Þú stjórnar lýsingunni í öllum herbergjum með einföldum aðgerðum á snertiskjá og með innfelldu takkaborði í veggnum stýrir þú hljóði í mismunandi herbergjum. Prodomo býður einnig sjónvarpsspegla, myndkerfislausnir og nýjustu hönnun í ljósum og ljósabúnaði. Í versluninni er sérstaklega hannað hljóð- og myndherbergi þar sem gestir geta upplifað nýjar víddir í hljóðstýringu. P IP A R • S ÍA • 8 0 6 8 5 Stærsta vörumerki okkar er Miele sem er þekkt fyrir gæði og glæsilega hönnun. Gæði eru einkennandi fyrir vörurnar frá Eirvík. Ný lína frá Miele samanstendur meðal annars af stærri og fullkomnari ofnum. Hálfdán Guðmundsson verslunarstjóri.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.