Frjáls verslun - 01.03.2008, Blaðsíða 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
K
YN
N
IN
G
Kjartan Ágústsson, forstjóri Járns og glers, ásamt Jóni Halldóri Davíðssyni
sölustjóra og Sævar Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri.
Í Listalagernum, er allt sem snýr að
innrömmun og myndlist, allt efni
sem þarf til innrömmunar og allar
vörur sem myndlistarmaðurinn þarf
til sinnar listsköpunar.
Vörur frá fyrirtækjum sem eru leiðandi
í lausnum fyrir byggingariðnaðinn
Járn og gler er innflutningsverslun með langa og farsæla starfsemi, en fyrirtækið var stofnað
1942. Kjartan Ágústsson forstjóri segir bygging-
arvörur vera stóran hluta af rekstri fyrirtækisins:
„Við erum með mikla fjölbreytni í vörum sem
tilheyra byggingariðnaðinum, svo sem alls konar
járnvörur, hurðapumpur, sjálfvirkan búnað, þétti-
efni, kítti, innréttingahöldur og baðherbergisvörur,
gler, hert gler, rennihurðabrautir og glerveggi, sem
hafa aukist mikið í sölu hjá okkur, sérstaklega fyrir
skrifstofurými.
Eins erum við með lausnir sem snúa að öllu því sem er í kringum
glugga og hurðir, bréfalúgur, hurðarhúna, sjálfvirka opnara fyrir hurðir
og glugga, einnig hringhurðir sem við höfum selt hér í nokkur ár og
er mikil aukning í sölu á þeim. Þær koma frá Boon Edam, hollensku
fyrirtæki sem hefur framleitt hringhurðir í meira en 100 ár.“
Stærsti birgir Járns og glers er þýska fyrirtækið GEZE sem fram-
leiðir viðurkenndar og virtar vörur í byggingariðnaði: „Frá GEZE
koma meðal annars vörur sem tengjast gluggum og hurðum, má
þar nefna hurðarpumpur, rennibrautir, rafdrifna opnunarbúnaði
ásamt öðrum lausnum eins og reyklosunarkerfi og hringhurðum.
Einnig má nefna annan birgi í lím- og þéttiefnum, sem Járn og
gler er umboðsaðili fyrir, það er þýskt fyrirtæki sem heitir OTTO
CHEMIE og er leiðandi í þróun á alls kyns efnum og lausnum
fyrir byggingar og fleira, fyrirtækið þróar og framleiðir ný efni sem
leysa ákveðin vandamál varðandi límingu og þéttingu, og hafa þeir
unnið mikið og gott brautryðjendastarf í þeim
efnum og skilað vönduðum og góðum vörum
sem verktakar hér á landi hafa verið hrifnir af.“
Kjartan nefnir einnig svissneska fyrirtækið
HAWA, mjög gott og virt fyrirtæki sem starfar
mikið með arkitektum og einbeitir sér á markað
þar sem arkitektar starfa: „HAWA er með margar
góðar lausnir varðandi rennihurðabúnað og í sam-
bandi við timbur og glerveggi. Hefur sala aukist
hjá okkur á vörum sem tengjast þessari þróun.“
Fyrir utan að vera með mikinn fjölda af vörum fyrir bygging-
ariðnaðinn þá er ein starfsemi fyrirtækisins, Listalagerinn, þar sem
hægt er að fá allt sem snýr að innrömmun og myndlist, allt efni sem
þarf til innrömmunar og allar vörur sem myndlistarmaðurinn þarf til
sinnar listsköpunar, fjölbreytt úrval af litum, málarastriga á rúllum
eða ástrekktan striga og fleira: „Meðal þess sem við erum með í
Listalagernum eru hengibrautir frá Arti Teq sem eru til að hengja upp
myndir. Þessar brautir hafa þann kost að ekki þarf að negla í veggi
og er mjög auðvelt að breyta uppröðun mynda eða bæta við. Þetta
er nýjung hjá Járni og gleri og verður spennandi að geta boðið vænt-
anlegum viðskiptavinum þessar brautir.“
Weber-grillin eru tiltölulega nýleg viðbót hjá okkur og eru um
það bil átta ár síðan fyrirtækið fór að flytja grillin til landsins. „Sala í
grillum hefur aukist jafnt og þétt hjá okkur. Weber byrjaði að fram-
leiða grill fyrir um fimmtíu og sex árum í Chicago og er um mikla
gæðavöru að ræða, auk þess sem útlitið er glæsilegt.“
Járn og gler hf.
Glæsilegt grill
– á veröndina
– mikið úrval af aukahlutum
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar · Húsasmiðjan · Egg · www.weber.is
XEINN JG
SUM
S420 1/1
Sum
m
it S420
Harpa Dögg Kjartansdóttir á Listalagernum.