Frjáls verslun - 01.03.2008, Qupperneq 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
K
YN
N
IN
G
Dux rúmin standast væntingar
kröfuharðra viðskiptavina
Það var árið 1981 sem Rúnar Jónsson og félagi hans stofnuðu verslun þar sem rúm frá Dux voru seld: „Við byrjuðum í Mið-bæjarmarkaðinum á annarri hæð og þótti það mikil bjartsýni
að fara af stað með verslun með rúm á þessum árum þegar óðaverð-
bólga var í gangi og auk þess bindiskylda sem gerði það að verkum
að það þurfti að binda 30% af andvirði vörunnar í þrjá mánuði. En
við vorum bjartsýnir ungir menn og okkur gekk mun betur en flestir
bjuggust við og eftir tvö ár vorum við komnir á fljúgandi siglingu.
Það sem hafði afgerandi áhrif á reksturinn var að við fórum strax út í
það að vera með gæðavöru sem þeir kröfuhörðustu gátu sætt sig við,
vöru sem var viðurkennd úti um allan heim. Dux var og merki sem
fjölmargir hér þekktu meðal annars gegnum dönsku blöðin.“
Verslunin flutti 1987 í Faxafen og þaðan tíu árum síðar í eigið hús-
næði að Ármúla 10 þar sem fyrirtækið er enn, í góðu rými í miðju
athafnalífsins með næg bílastæði. Í millitíðinni hafði það gerst árið
1991 að Rúnar keypti félaga sinn út úr fyrirtækinu og keypti um sama
leyti annað fyrirtæki, GEGNuM GLERIð, og sameinaðist það Duxi-
ana. Elsa Ólafsdóttir, eiginkona Rúnars, er með honum í verslunar-
rekstrinum og er GEGNuM GLERIð að mestu í hennar höndum.
Bæði fyrirtækin eru í Ármúlanum og halda sínu nafni. GEGNuM
GLERIð sérhæfir sig í mörgum gerðum húsgagna, fataskápum sem
mikill uppgangur er í um þessar mundir, eldhúsinnréttingum frá ítalska
fyrirtækinu Boffi, sem er eitt virtasta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum
og leggur yfirleitt línurnar fyrir aðra í eldhúsinnréttingum. Auk þess er
GEGNuM GLERIð með ýmsar góðar smávörur og gjafavörur.
Rúnar segir Dux fyrst og fremst fyrirtæki sem framleiðir hágæða
rúm en hafi jafnframt framleitt húsgögn sem þekkt eru fyrir fallega
hönnun, meðal annars stóla eftir þeirra aðalhönnuð, Bruno Mathsson.
Hafa þeir stólar vakið mikla athygli og eru nánast klassískir í dag og
má benda á að stóllinn Jetson, sem fæst í Duxiana, er í Museum of
Modern Art í New York sem tákn fyrir nútíma húsgögn.
„Rúmin eru samt sterkasta einkennið fyrir Dux-vörurnar og eru í
hæsta gæðaflokki. Get ég nefnt sem dæmi að árið 2005 var tímaritið
Wallpaper með úttekt á rúmum og þar voru þeir ekkert að skafa
utan af því og sögðu að bestu rúmin í heiminum kæmu frá Dux og
einnig að eina 7 stjörnu hótelið í heiminum, Burj Al Arab, í Dubai,
valdi DuX rúm ( DuX 7007) á allar 200 svíturnar og þar á bæ
velja menn aðeins það besta. Með rúmunum erum við að selja sæng-
urfatnað, kodda, sængur og rúmteppi. Fólk sem kemur til okkar til
að kaupa Dux rúm hefur miklar væntingar og að við skulum enn vera
á markaðinum með þessa vöru eftir 27 ár segir okkur að varan stenst
allar kröfur sem kröfuharðir kaupendur gera til hennar.“
Duxiana
Tímaritið Wallpaper var með úttekt
á rúmum og þar voru þeir ekkert að
skafa utan af því og sögðu að bestu
rúmin í heiminum kæmu frá Dux.
Ármúla 10 • Sími: 5689950
AUSTRALIA • BELGIUM • CANADA • CHINA • CYPRUS • DENMARK • FINLAND • GERMANY • GREECE • ICELAND • IRELAND • NORWAY
SAUDI ARABIA • SOUTH KOREA • SPAIN • SWEDEN • SWITZERLAND • UNITED ARAB EMIRATES • UNITED KINGDOM • UNITED STATES
www.duxiana.com www.duxbed.com
R
O
YA
L
Ármúla 10 • Sími: 5689950
AUSTRALIA • BELGIUM • CANADA • CHINA • CYPRUS • DENMARK • FINLAND • GERMANY • GREECE • ICELAND • IRELAND • NORWAY
SAUDI ARABIA • SOUTH KOREA • SPAIN • SWEDEN • SWITZERLAND • UNITED ARAB EMIRATES • UNITED KINGDOM • UNITED STATES
www.duxiana.com www.duxbed.com
R
O
YA
L