Frjáls verslun - 01.03.2008, Page 98
lífsstíll
98 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 8
The Chronicles of Narnia: Prince Caspian
The Lion, The Witch and the Wardrope, fyrsta myndin sem gerð
er eftir bókaflokki C.S. Lewis um ævintýralandið Narníu, er í 26.
sæti yfir vinsælustu kvikmyndir allra tíma og er búist við að Prince
Caspian, nái sömu vinsældum. Sagan gerist einu ári eftir atburðina
í fyrri myndinni. Krakkarnir fjórir heimsækja Narníu og kynnast
prinsinum Caspian, sem er hinn eini rétti erfingi af konungsríkinu,
en hann er á flótta undan frænda sínum, sem vill að sonur hans taki
við konungsríkinu. Það er sama hvar litið er á starfsmannalistann,
allir eru mættir aftur til leiks, bæði leikarar og tæknimenn. Í leik-
araliðið bætast við Liam Neeson og Eddie Izzard sem ljá raddir sínar
nýjum persónum í sögunni. Leikstjórinn, Andrew Adamson, er þegar
byrjaður að undirbúa þriðju myndina sem mun heita The Voyage of
the Dawn Treader. Prince Caspian verður frumsýnd hér á landi 20.
júní.
The Incredible Hulk Ekki eru nema fimm ár síðan Ang Lee leik-
stýrði Hulk, sem byggð er á einhverri vinsælustu teiknimyndahetju
sem sköpuð hefur verið. Áður hafði verið gerð vinsæl sjónvarpssería.
Ekki þótti Ang Lee takast vel upp og nú er búið að gera aðra tilraun
Eins og undanfarin ár verða stórar og dýrar
ævintýrakvikmyndir áberandi í sumar og
þurfa þær að fá góða aðsókn þar sem
með hverju árinu eykst kostnaður við
gerð slíkra kvikmynda. Er algengt að kvik-
myndir sem mest er lagt í kosti 200 millj-
ónir dollara og þá á eftir að reikna með
markaðssetningunni sem hleypur á tugum
milljóna dollara.
KvIKMYNdIr:
hilmar karlsson
LITríkT
kvIkMyNdASuMAr
The Chronicles of Narnia: Prince Caspian: Ungur og óþekktur leikari
Ben Barnes fer með hlutverk Caspians.
Sex and the City: The Movie:
Kristin Davis, Sarah Jessica
Parker, Cynthia Nixon og
Kim Catrall leika heimskon
urnar í New York.
Í síðasta tölublaði Frjálsrar verslunar var fjallað um Indiana Jones and the Kingdom of Crystal Skull, sem mun verða sú kvikmynd sem aðrar þurfa að keppa við um vinsældir í sumar. Hvort einhver
getur skákað henni er óvíst en hér verður sagt frá sex kvikmyndum
sem eiga möguleika. Fjórar þeirra eru byggðar á teiknimyndaseríum,
ein á vinsælum barnabókaflokki og sú fimmta er gerð eftir einni
vinsælustu sjónvarpsseríu sem litið hefur dagsins ljós.
Iron Man Iron Man er fyrsta kvikmyndin af þremur sem fyrirhugaðar
eru um Tony Stark, vinsæla teiknimyndahetju. Robert Downey yngri
leikur kappann sem hefur grætt á því að hanna vopn. Stark er staddur
í Afghanistan til að kynna nýjasta vopnið þegar hryðjuverkamenn
ræna honum og skipa honum að setja saman flugskeyti. Í stað þess
að fara að fyrirmælunum smíðar hann ofurbrynju sem er drekkhlaðin
vopnum og notar hana til að sleppa undan hryðjuverkamönnunum.
Þegar heim er komið þróar hann brynju sína enn meir og verður
ógnvaldur glæpamanna og skæruliða. Auk Robert Downeys yngri
leika í Iron Man Gwyneth Paltrow, Terrence Howard, Jeff Bridges og
Samuel L. Jackson. Jon Favreau, sem leikstýrir myndinni, er fyrrum
leikari sem hefur snúið sér að leikstjórn með ágætum árangri. Iron
Man verður frumsýnd á Íslandi og í Bandaríkjunum 2. maí.