Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 10
10 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
FRÉTTIR
Hugbúnaðarfyrirtækið Applicon
og Vélfang eru Fyrirtæki ársins
2007 og Skattrannsóknarstjóri
ríkisins er Stofnun ársins. Þetta
eru niðurstöður vinnumarkaðs-
könnunar VR og SFR, stétt-
arfélags í almannaþjónustu, á
dögunum og var stjórnendum af
því tilefni veitt viðurkenning.
VR hefur kannað starfsskilyrði
félagsmanna sinna í áratug og
SFR var nú með í annað sinn. Um
30.000 starfsmenn á almennum
og opinberum vinnumarkaði fengu
senda spurningalista. Svarhlutfall
var tæp 50%.
Skattrannsóknarstjóri ríkis-
ins varði titil sinn frá því í fyrra
sem Stofnun ársins en í næstu
sætum komu Biskupsstofa og
Skattstofa Suðurlands. „Það
sem gerir skattinn að vinsælum
vinnustað eru krefjandi og
áhugaverð verkefni þar sem
reynir á menntun og reynslu
starfsfólksins. Þau verkefni sem
skattyfirvöld sinna eru fjölbreytt
og síbreytileg sem ég held að
starfsfólk sé ánægt með,“ segir
Bryndís Kristjánsdóttir skattrann-
sóknarstjóri.
Stofnun ársins. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, afhendir Bryndísi
Kristjánsdóttur viðurkenningu. Að baki þeim sjást þeir Þorvaldur
Karl Helgason biskupsritari og Hreinn Sveinsson skattstjóri, en bæði
Biskupsstofa og Skattstofa Suðurlands skoruðu hátt.
Fyrirtæki og Stofnun ársins útnefnd:
Applicon, Vélfang og Skatturinn
Gunnar Páll Pálsson,
formaður VR, afhenti
Kristjáni Jóhannssyni hjá
Applicon viðurkenningu.
Kristján Ragnarsson, verslunarstjóri
hjá Vélfangi, tók við viðurkenningu
fyrir hönd fyrirtækisins.
BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is
Er þitt fyrirtæki að fá það besta sem við höfum að bjóða?
Persónuleg og vönduð þjónusta, sérsniðin að þörfum hvers og eins er það besta sem við
höfum að bjóða. Með lipru skipulagi og stuttum boðleiðum bjóðum við þér skýrar og
einfaldar þjónustuleiðir og þú velur það sem þér hentar hverju sinni. Kynntu þér málið
– við leitum lausna.