Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 13
FRÉTTIR
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 13
Guðmundur Steingrímsson, rithöfundur og varaþingmaður, stýrði
samkomunni.
Prentsmiðjan Oddi veitti á
dögunum verðlaun fyrir bestu
íslensku bókarkápurnar 2006.
Kápa Sendiherrans, skáldsögu
Braga Ólafssonar, var sú besta
að mati dómnefndar, en hönn-
uðir kápunnar voru Bjarney
R. Hinriksdóttir og Sigrún
Pálsdóttir. Í öðru sæti varð kápa
bókarinnar Halldór Laxness
– Kvæðakver, sem Ragnar Helgi
Ólafsson hannaði. Í þriðja sæti
lenti kápa bókar Andra Snæs
Magnasonar, Draumalandið –
Sjálfshjálparbók handa hræddri
þjóð, en Börkur Arnarson
hannaði hana.
Alls voru 118 bókarkápur
sendar til keppni. Skilyrðin voru
þau að íslenskur hönnuður hefði
séð um verkið og að bókin hefði
komið út og verið framleidd hér-
lendis á sl. ári.
Verðlaunaafhendingin fór
fram á Kjarvalsstöðum að við-
stöddu fjölmenni. Áður flutti
Ragnar Helgi Ólafsson, grafískur
hönnuður og heimspekingur,
erindi um bókarkápuhönnun. Í
máli hans kom fram að engar
reglur væru til um kápuhönnun,
hvorki hönnunarlegar né mark-
aðslegar, heldur fælist galdurinn
í að segja á bókarkápunni sögu
sem endurspeglaði verkið sjálft
og væri um leið trútt því.
Bókarkápa segir sögu
Sæl með Sendiherrann. Eyþór Páll Hauksson markaðsstjóri hjá
Odda og Bjarney R. Hinriksdóttir sem hannaði kápu þeirrar bókar
ásamt Sigrúnu Pálsdóttur, en hún var fjarri góðu gamni. Teikningu af
úlfinum á bókarkápunni gerði Einar Örn Benediktsson.
Hljómsveitin Sigríður Hagalín lék fyrir gesti og gangandi.
Andri Snær Magnason rithöfundur og Börkur Arnarson grafískur
hönnuður með viðurkenningu fyrir Draumalandið.
Borðin svignuðu undan góðum veitingum.