Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 8. maí Thomson blikkar Reuter Kanadíska fjármálaupplýs- ingaþjónustan Thomson gefur Reuter hýrt auga. Í sameigin- legri yfirlýsingu frá félögunum var greint frá því að Thomson íhugaði að leggja fram formlegt tilboð í bresku upplýsingaveit- una Reuters og að tilboðið myndi hljóða upp á 1.113 millj- arða króna. Stærstur hluti tekna Reuters kemur af því að selja fjármála- fréttir og upplýsingar tengdar fjármálum og viðskiptum. Thomson sérhæfir sig í að miðla upplýsingum frá og til fjár- málamarkaða. 8. maí Hneyksli í Carnegie Sænski fjárfestingabankinn Carnegie er þekktur hér á landi en Landsbankinn átti þar um tíma 20% hlut sem hann seldi með ágætum hagnaði á síð- asta ári. En nú berast hins vegar fréttir um að fjármála- hneyksli kunni að vera í upp- siglingu innan bankans því að komið hafi í ljós að yfirmaður verðbréfaviðskipta hjá sænska fjárfestingabankanum Carnegie og tveir aðrir starfsmenn bank- ans hafi gefið upp rangar tölur um verðmæti hlutabréfa í eigu bankans. Það leiddi til þess, að hagnaður Carnegie á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs var sagður um 1,25 milljörðum íslenskra króna meiri en hann í raun var. Skandall í Stokkhólmi. 8. maí Baugur ekki að selja Morgunblaðið birti viðtal við Gunnar Sigurðsson, framkvæmda- stjóra Baugs í Bretlandi, þar sem hann sagði að frétt breska blaðsins Daily Telegraph væri orðum aukin, en í henni sagði að Baugur ætlaði sér að selja ýmsar eignir í Bretlandi í sumar. Gunnar sagði að þvert á móti væri það stefna Baugs að styrkja eignasafn sitt í breskum verslanakeðjum, hvort sem væri í sölu á matvöru, fatnaði, leik- föngum eða skartgripum. Engar ákvarðanir hefðu verið teknar um að selja einhverja ákveðna hluta. DAGBÓK I N TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl. Lykilstjórnendur Saga Capital, talið frá vinstri: Ómar Sigtryggsson, fram- kvæmdastj. mark- aðsviðskipta, Geir Gíslason, fram- kvæmdastj., Hersir Sigurgeirsson, fram- kvæmdastj. áhættu- stýringar, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri, Rúnar Friðriksson, fram- kvæmdastj. eigin við- skipta og Helga Hlín Hákonardóttir hdl., framkvæmdastj. lög- fræðisviðs. 3. maí SAGA CAPITAL BLÆS TIL SÓKNAR Greint var frá því að Saga Capital fjárfestingabanki, sem starfræktur er á Akureyri, hefði hlotið fullt fjárfestingabanka- leyfi Fjármálaeftirlitsins. Eigið fé Saga Capital er 10 milljarðar króna. Félagið fékk aðild að Nordic Exchange á Íslandi frá og með 30. apríl sl. og varð þar með fyrsti aðilinn sem hefur við- skipti á hlutabréfa- og skulda- bréfamarkaði Nordic Exchange á Íslandi eftir sameininguna við OMX þann 2. apríl síðastliðinn. Saga Capital var stofnað í október 2006 af nokkrum fyrrverandi starfsmönnum íslensku viðskiptabankanna og völdum fagfjárfestum. Höfuðstöðvar félagsins eru á Akureyri en það er jafnframt með skrifstofur í Reykjavík. Ætlunin er að opna skrifstofu í Eystrasaltslöndunum á næst- unni. Stjórnendur Saga Capital störfuðu allir áður hjá íslensku viðskiptabönkunum. Fyrrum starfsmenn Kaupþings eru Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Hersir Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri áhættustýr- ingar, Geir Gíslason, fram- kvæmdastjóri útlánasviðs, og Rúnar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri eigin viðskipta. Örn Gunnarsson, fyrrum starfs- maður Glitnis, er framkvæmda- stjóri fyrirtækjaráðgjafar. Helga Hlín Hákonardóttir hdl., fram- kvæmdastjóri lögfræðisviðs, kom frá Straumi-Burðarási og Ómar Sigtryggsson, framkvæmdastjóri mark- aðsviðskipta, kom frá MP Fjárfestingabanka Gunnar Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.